17.1.2012
Raunfærnimat
Kynningarfundur verður vegna raunfærnimats í:
- húsasmíði - pípulögnum - vélvirkjun - stálsmíði - rennismíði og blikksmíði
miðvikudaginn 18. janúar kl.17:00 að Skúlatúni 2, 6.hæð.
Inntökuskilyrði í raunfærnimat er 25 ára lífaldur og 5 ára starfsaldur staðfestur með opinberum gögnum. Frekari upplýsingar er hægt að finna á http://idan.is/radgjof/raunfaerni/ .
11.1.2012
Námsvísir vorannar 2012
Námsvísir vorannar er kominn á netið. Hann er í prentun og mun berast til félagsmanna okkar á næstunni. Öll námskeið eru komin inn á netið og er hægt að skrá sig þar beint eða hringja í síma 590-6400. Auk hefðbundinna námskeiða eru mörg ný námskeið í boði og vonumst við til að allir finni eitthvað við sitt hæfi.
Hægt er að nálgast námsvísinn hér
Við hlökkum til að starfa með ykkur á komandi önn.
Starfsfólk IÐUNNAR fræðsluseturs
6.1.2012
Styrkir til vinnustağanáms
15.12.2011
Sveinspróf í húsasmíği haldiğ í FB
Aðbúnaður húsasmíðabrautar Fjölbrautaskólans í Breiðholti er mjög góður hentar vel til að halda sveinspróf.
Á myndinni má sjá Guðrúnu Hrefnu Guðmundsdóttir skólameistara FB og þá Kristján Bjartmars, Braga Finnbogason og Finn Jón Nikulásson sem skipa sveinsprófsnefndina og Stefán Rafnar Jóhannsson fagstjóra húsasmíðabrautar.25.11.2011
68% af bókatitlum prentağir á Íslandi
Prentstaður íslenskra bóka 2011
Bókasamband Íslands hefur gert könnun á prentstað íslenskra bóka sem getið er í Bókatíðindum Félags íslenskra bókaútgefenda 2011. Fjöldi titla sem prentaðir eru innanlands dragast saman um rúmlega 3 prósentustig milli ára en árið 2010 var 71,4% hlutfall á prentun bókatitla innanlands.
Heildarfjöldi prentaðra bókatitla er 690 í Bókatíðindunum í ár en var 710 árið 2010
Skoðað var hvert hlutfall prentunar innanlands og erlendis er eftir flokkum. Þar kemur fram að stór hluti barnabóka er prentaður erlendis en það er m.a. vegna þess að samprent er algengt í útgáfu barnabóka þar sem prentað er sameiginlega fyrir mörg lönd.
· Fræðibækur, bækur almenns efnis og listir eru alls 203; 148 (73%) eru prentaðar á Íslandi og 55 (27%) prentaðar erlendis.
· Skáldverk, íslensk og þýdd, eru 182; 156 (86%) prentuð á Íslandi og 26 (14%) prentuð erlendis.
· Saga, ættfræði, ævisögur, handbækur, matur og drykkur eru alls 110; 83 (75%) prentaðar á Íslandi og 27 (25%) prentaðar erlendis.
· Barnabækur, íslenskar og þýddar, eru alls 195; 83 (43%) prentaðar á Íslandi og 112 (57%) prentaðar erlendis.
Fjöldi titla %
Ísland 470 68,1
Asía 119 17,2
Evrópa 100 14,6
Annað 1 0,1
Samtals 690 100%
1.11.2011
Stórt skref til eflingar starfsnámi
Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra úthlutaði í gær styrkjum til fyrirtækja og stofnana sem taka nemendur í vinnustaðanám. Þetta er merkur áfangi í eflingu starfsnáms í landinu en samtals var úthlutað 57 milljónum til 65 fyrirtækja og njóta um 170 nemar góðs af þessari fyrstu úthlutun. Ingólfur Haraldsson hótelstjóri á Hilton Nordica tók á móti styrknum fyrir hönd síns fyrirtækis.
31.10.2011
Bílasalar
Undirbúningsnámskeið vegna prófs til leyfis sölu notaðra bifreiða verður haldið í Reykjavík 7.-23. nóvember 2011.
Leit
Mynd














