14.12.2007
Sveinspróf í matvæla- og veitingagreinum
7.12.2007
Sveinsprófsnámskeið í bifvélavirkjun"
Sveinsprófsnámskeið í bifvélavirkjun
Sveinsprófsnámskeið í bifvélavirkjun verður haldið dagana 20. og 21. des í Bílgreinahúsinu að Gylfaflöt 19.
Farið verður yfir uppbyggingu rafmagnsteikninga, tákna og teikniaðferða.
5.12.2007
Sveinsprófsnefndir - Fræðslufundur
29.11.2007
Kynningarfundur - Frumvarp til laga um framhaldsskóla
Haldinn var kynningarfundur um frumvarp til laga um framhaldsskóla 29. nóvember. Starfsfólk IÐUNNAR fræðsluseturs, stjórn IÐUNNAR fræðsluseturs og varastjórn ásamt sviðstjórnir voru boðuð sérstaklega til fundarins. Magnús Þorkelsson og Kristján Karlsson frá menntamálaráðuneytinu skýrðu frá frumvarpinu og svöruðu spurningum.
Frumvarp til laga um framhaldsskóla lagt fyrir Alþingi á 135. löggjafarþingi 2007-2008
21.11.2007
Námskeið um löggildingu mannvirkjahönnuða
Námskeið fyrir mannvirkjahönnuði verður haldið dagana 4., 5., 11., 12., 18. og 19 apríl nk. Umsóknum skal skila til IÐUNNAR fræðsluseturs á sérstökum eyðublöðum.
Upplýsingar gefur Birgir Hólm í síma 590 6434
13.11.2007
Bættu um betur Norðurland
Bættu um betur er tilraunaverkefni um að meta færni sem aflað hefur verið á vinnumarkaði inn í iðnnám. Verið er að kanna áhuga einstaklinga sem eru starfandi í húsasmíði eða bifvélavirkjun og hafa hug á að ljúka sveinsprófi. Ef áhugi og næg þátttaka eru fyrir hendi er stefnt að því að fara af stað með verkefnið. Samstarfsaðilar í verkefninu eru IÐAN fræðslusetur, Fræðslumiðstöð atvinnulífsins, Símey - Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar og Verkmenntaskólinn á Akureyri.
Nánari upplýsingar veitir Símey í síma 460-5720.
11.11.2007
Bættu um betur í málaraiðn
Nú stendur yfir skráning í verkefnið Bættu um betur í málaraiðn. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu IÐUNNAR undir http://www.idan.is/radgjof/bub/bub-mal/ Jafnframt er hægt að senda rafrænar fyrirspurnir á radgjof@idan.is
9.11.2007
Að keppa á gæðum en ekki verðum
George Thomas, framkvæmdastjóri Oxuni-Print, prentsmiðju Oxford University Press hélt málstofu 9. nóvember. Á málstofunni fjallaði George um samkeppnisforskot sem myndast þegar iðnfyrirtæki keppa á aukinni þjónustu. M.a sagði hann frá því hvernig Oxuni-Print hefði aukið afkastagetu sína með skýrari framtíðarsýn og markmiðum. Þá greindi hann frá því hvaða forskoti er hægt að ná á markaði þar sem verð og gæði eru ákveðin af viðskiptavinum. Glærur af fyrirlestri George Thomas má finna hér.
9.11.2007
Hádegisfyrirlestur George Thomas vel sóttur
9.11.2007
Að ráða rétta fólkið
Prýðileg þátttaka var á málstofu Terry O´Reilly í morgun. Í fyrirlestri sínum fjallaði Terry um starfsmannastefnu, afkastaaukningu og markmiðssetningu í rekstri iðnfyrirtækja á borð við prentsmiðju Oxford University Press. Hann sagði frá því hvernig Oxuni-Print, prentsmiðja Oxford University Press hefur laðað til sín ungt hæfileikafólk með nútímalegum og markvissum stjórnunarháttum. Lykilatriði í árangri Oxuni-Print er gagnsæi fyrirtækisins og upplýsingagjöf til starfsmanna um afkomu og árangur. Fyrirlestur Terry má finna hér.
9.11.2007
IÐAN og Frostmark gera samning um kennslubúnað
IÐAN fræðslusetur og Frostmark hafa gert með sér samning um að Frostmark smíði fyrir IÐUNA tvö kennslutæki í kælitækni. Annað verður bæði með kæli og frysti meðan hitt verður eingöngu með frysti. Á þessi tæki verður kennt til vottunar í kælitækni. Meðal annars verða tuttugu og átta mismunandi bilanir á kerfunum bæði í stýri- og kælikerfinu. Þá verður annað kerfið sérstaklega ætlað til þjálfunar á af- og átöppun kælimiðils. Einnig verður kerfið ætlað til þjálfunar á af- og átöppun smurolíu. Þetta er aðeins fyrsta skrefið í að málm- og véltæknisvið IÐUNNAR taki að sér vottun íslenskra kælifyrirtækja og manna.
8.11.2007
Hádegisfyrirlestur George Thomas í sal 337 Stjórnendaskóla HR
George Thomas heldur hádegisfyrirlestur 9. nóvember í sal 337 (ekki bláa salnum eins og áður var auglýst) í Stjórnendaskóla Háskólans í Reykjavík kl. 12.00 - 13.00.
1.11.2007
Terence O´Reilly fjallar um starfsmannastjórnun í prentiðnaði
Terence O´Reilly, starfsmannastjóri Oxford University Press fjallar um starfsmannastefnu Oxford U.P. á málstofu 9. nóvember nk. kl. 9.30-11.00. Hann kemur í stað George Thomas sem gerði sér lítið fyrir og bauð samstarfsmanni sínum með til Íslands.
Skráning á málstofur með þeim Terence og George eru undir linknum námskeið hér til hægri.
30.10.2007
Nemakeppnin í matreiðslu og framreiðslu 2007
30.10.2007
Blikksmiðir framtíðar
Félag blikksmiðjueigenda og Ísloft ehf buðu nemendum í málmiðnabraut Borgarholtsskóla í heimsókn. Strákarnir fóru vítt og breitt um Ísloft og kynntu sér starfsemina. Verulegur hluti hennar snýst um framleiðslu og uppsetningu loftræsikerfa. Smíðavinnan felst m.a. í formun plötuefnis í stórar einingar, stokka og aðra íhluti í tölvustýrðum vélum.
30.10.2007
Fimm suðunámskeiðum lokið í samvinnu við Fronius í Austurríki
Lokið er fimm mismunandi suðunámskeiðum námskeiðum hjá Málm- og véltæknisviði IÐUNNAR. Námskeiðin voru í Ál suðu, MIG- brasing og CMT. Yfir fjörutíu manns sóttu námskeiðin.
23.10.2007
Forstjóri Oxford University press til Íslands
George Thomas, forstjóri Oxford University Press heldur fyrirlestra og málstofur 9. nóvember nk. George hefur náð undraverðum árangri í rekstri prentsmiðju Oxford bókaútgáfunnar. Hann hefur ma. aukið hagnað um 58% og sölu um 33% á sama tíma og starfsmannafjöldi hefur eingöngu vaxið um 4%. Þá hefur hann náð miklum árangri í ráðningum starfsmanna og lækkað starfsmannaveltu niður í 4%.
22.10.2007
Kynningarfundur Bættu um betur í húsasmíði verður 24. október kl. 18:00.
Nú er verkefnið Bættu um betur í húsasmíði að hefjast að nýju og hvetjum við áhugasama að mæta miðvikudaginn 24. október, kl. 18:00 að Hallveigarstíg 1, 101 Reykjavík og kynna sér það nánar. Einnig eru frekari upplýsingar á heimasíðu IÐUNNAR undir námsráðgjöf, http://www.idan.is/radgjof
18.10.2007
Létt og gott með Marentzu
Mikil ánægja var með námskeiðið Létt og gott í hádeginu með Marentzu Poulsen. Eldaðar voru dýrindis....
12.10.2007
Málm- og véltæknisvið vígir glæsilega aðstöðu til suðuþjálfunar
Málm-og véltæknisvið IÐUNNAR vígði glæsilega aðstöðu til suðuþjálfunar á Gylfaflöt 19 í dag. Gústav Adolf Hjaltason málmtæknifræðingur sýndi gestum nýjustu tækni við málmsuðu og leyfði viðstöddum að grípa í græjurnar. Aðstaðan gerir kleift að kenna nemendum TIG suðu, koparbras og silfurkveikingu, MIG/MAG suðu, pinnasuðu og logsuðu. Næsta námskeið verður haldið í álsuðu 16. október. Skráning hér.
11.10.2007
Ingi Erlingsson fjallaði um teiknimyndir í auglýsingum
Ingi Erlingsson, ungur hönnuður sem starfar í London hélt hádegisfyrirlestur í Bláa salnum í húsnæði Háskólans í Reykjavík (gamla Morgunblaðshúsinu) í dag. Ingi fjallaði um hugmyndavinnuna á bak við auglýsingagerðina, sköpun persóna og ,,storyboard" við auglýsingu sem unnin var fyrir Umferðarstofu í sumar. Ingi starfar hjá auglýsingastofunni ilovedust í London og er yfirmaður hreyfimyndadeildar þeirra. Ingi starfaði áður í New York og lauk námi í grafískri hönnun frá College for the Creative Arts í London fyrir rúmu ári. Fyrirlesturinn var vel sóttur. Næsti hádegisfyrirlestur er áætlaður 9. nóvember með George Thomas, forstjóra Oxford University Press.
10.10.2007
Kynningarfundur Bættu um betur í framreiðslu og kjötiðn
Kynningarfundur verkefnanna Bættu um betur í framreiðslu og kjötiðn verður haldinn 11. október 2007, kl. 16:00 í húsakosti IÐUNNAR fræðslusetur, Hallveigarstíg 1, 101 Reykjavík.
10.10.2007
Námskeið um efnainnihald og mælingar í vatnsverki prentunar
Hermann Þórðarson kenndi nokkrum nemendum um efnainnihald og mælingar á vatnsverki prentunar á námskeiði prenttæknisviðs í dag. Einnig fjallaði Hermann um samsetningu fount lausnar og alkohólfría prentun. Námskeiðið var samvinnuverkefni Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og IÐUNNAR fræðsluseturs.
Markmiðið með námskeiðinu var að freista þess að byggja upp þekkingu á efnafræði vatns fyrir prentun innanlands. Hingað til hefur þessi þekking verið sótt til erlendra fyrirlesara. Námskeiðið tókst með ágætum og verður framhald á vorönn 2008.
10.10.2007
Sérfræðingar frá LASTEK kenna á suðunámskeiði
Sérfræðingar frá Lastek kenna á sérhæfðu suðunámskeiði. Farið var í mjög sérhæfðar aðferðir varðandi bras og lóðningar. Þá var einnig farið í aðferðir varðandi suðu í vatni og sérstakar suðuaðferðir varðandi viðgerðir á steypujárni.
9.10.2007
Námskeið hefjast við Háskólann í Reykjavík
Námskeiðið ,,Bestu aðferðir rekstrar" hófst stundvíslega klukkan 14.00 í dag. Tólf þátttakendur eru skráðir til leiks og kennari er Jón Hreinsson, fjármálastjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands. Námskeiðið er hið fyrsta af tveimur námskeiðum á haustönn sem aðildarfélögum IÐUNNAR standa til boða við Háskólann í Reykjavík. Á þessu námskeiði verður veitt yfirlit yfir rekstraraðferðir, fjármálastjórnun og framleiðslustjórnun í iðnaði. Seinna námskeiðið hefst 29. október og fjallar um mannauðsstjórnun. Námskeiðin eru sérsniðin fyrir stjórnendur og verðandi stjórnendur í iðnaði og eru hluti af samningi milli IÐUNNAR fræðsluseturs og Háskólans í Reykjavík sem undirritaður var síðastliðið vor.
9.10.2007
Iðntölvunámskeið
IÐAN fræðslusetur heldur iðntölvunámskeið PLC.
Frábært iðntölvunámskeið er í gangi hjá málm- og véltæknisviði Iðunnar. Mikil ásókn hefur verið í iðntölvunámskeið Iðunnar. Annað námskeiðið á haustönn er í gangi núna og það þriðja verður haldið á Reyðarfirði í næstu viku. Líkur eru á að það fjórða verði sett upp nú á haustönn. Þeir sem vilja taka þátt verða að skrá sig sem fyrst.
Skráning á Idan.is eða kristjankr@idan.is og í síma: 5906400
8.10.2007
Sveinspróf í vélvirkjun
Dagana 5. - 7. október voru haldin sveinspróf í vélvirkjun.
Sveinsprófin voru haldin á Akureyri og í Reykjavík. Alls voru 28 sveinsprófstakar.
Mynd úr sveinsprófinu
5.10.2007
AutoCAD á fullu
AutoCAD-námskeið IÐUNNAR hafa verið vel sótt í haust. Tveimur Autocad- námskeiðum er lokið auk Inventor-námskeiðs.
4.10.2007
Sandee kennir InDesign
Sandee Cohen hóf kennslu á InDesign í dag með fullskipuðu námskeiði. Sandee er líflegur kennari og var ekki annað að sjá en nemendur hennar lifðu sig inn í námsefnið.
Sandee kennir InDesign fyrir lengra komna 4. og 5. október og Illustrator fyrir lengra komna 8. og 9. október.
3.10.2007
Iðntölvustýringar hjá Alcoa
Málm- og véltæknisvið hélt sitt fyrsta námskeið hjá Alcoa Fjarðaáli í september s.l. Kennari er Kristján Haukur Flosason sem vinnur nú ásamt Kristjáni Kristjánssyni MVS að þróun námskeiðs í iðntölvustýringum.
1.10.2007
Nemakeppni í matreiðslu og framreiðslu 2007
28.9.2007
Stjórnarfundur EGIN á Íslandi
27.9.2007
Blái salurinn vaknar á ný!
Fyrirlestur um notkun teiknimynda í auglýsingum!
Ingi Erlingsson, ungur hönnuður í London, heldur fyrirlestur um notkun teiknimynda í auglýsingum.
25.9.2007
Bættu um betur - Náms- og starfsráðgjöf
Náms- og starfsráðgjöf IÐUNNAR fræðsluseturs sérhæfir sig í að aðstoða einstaklinga við raunfærnimat og náms- og starfsval.
Sjá nánar tengil inn á síðu náms- og starfsráðgjafa hér hægra megin á síðunni.
18.9.2007
Málmsuða - Grunnur
17.9.2007
Yfirlit yfir bestu aðferðir rekstrar
IÐAN fræðslusetur heldur námskeið í samvinnu við Háskólann í Reykjavík um bestu aðferðir rekstrar lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Námskeiðið er ætlað stjórnendum, millistjórnendum og tilvonandi stjórnendum.
13.9.2007
Vel mætt á Ben Willmore
30.8.2007
Sundmeistari afhendir nýjan námsvísi

Jakob Jóhann Sveinsson margfaldur Íslandsmeistari í sundi afhenti Finnbirni Hermannssyni stjórnarformanni IÐUNNAR fyrsta eintakið af nýjum námsvísi í gær. Jakob Jóhann prýðir forsíðu námsvísisins að þessu sinni. Námskeiðsframboð IÐUNNAR er glæsilegt sem fyrr og geta aðiladarfélagar valið úr rúmlega 100 námskeiðum á haustönn. Námsvísirinn berst félagsmönnum í pósti á næstu dögum. Skráningar á námskeið eru á heimasíðunni hér til vinstri og í síma 5906400.
15.8.2007
Námskeiðstyrkur - viltu fara til Finnlands?
8.8.2007
Nýsveinar í bókiðngreinum
10 nýsveinar tóku við sveinsbréfi við hátíðlega athöfn í húsi Félags bókagerðarmanna við Hverfisgötu þann 15. júní s.l.
Efsta röð frá vinstri: Guðmundur Ragnar Guðmundsson frkvstj. Prentmets, Hjörtur Guðnason formaður sveinsprófsnefndar í grafískri miðlun, Stefán Jón Sigurðsson bókbandsmeistari, Hrefna Ársælsdóttir, Aldís Sigríður Sigurðardóttir, Katrín Jónsdóttir, Sigrún Ásgeirsdóttir, Jónína Ósk Lárusdóttir, Ingibjörg Dís Gylfadóttir og Þóra Kristín Sveinsdóttir. Á myndina vantar Sigurð Kjartansson og Pálma Sigurðsson nýsveina í prentun.
30.7.2007
Löggilding mannvirkjahönnuða
Námskeiðið Löggilding mannvirkjahönnuða verður haldið 2. - 3. nóv. 9. - 10. nóv. 16. - 17. nóv. og próf verður 1. des.
Verð: kr. 90.000-
21.6.2007
Bættu um betur í húsasmíði lokið
Nú hefur fyrsti hópurinn í Bættu um betur í húsasmíði lokið raunfærnimatsferlinu. Þrjátíu og einn einstaklingur tók þátt í tilraunaverkefninu en umsækjendur voru 60.
18.6.2007
Íslensk þýðing „Fachkunde Metall“
14.6.2007
Ben Willmore aftur til Íslands!
13.6.2007
Írarnir eru farnir....
12.6.2007
Sveinspróf í rennismíði
|
Ásgeir Páll Gústafsson fékk 9.35 fyrir sveinsstykki sitt í rennismíði. |
|
7.6.2007
Danir undirbúa kennslu með farsímum
Í Danmörku er rannsakað hvort kenna megi með þriðju kynslóðar farsímum. Tilraunir hafa verið gerðar með að senda stutta kennslumola til stétta sem nota ekki tölvur í sínum störfum.
7.6.2007
Handbók um prentmiðlun væntanleg
Bókaútgáfan Iðnú hyggst gefa út Handbók um prentmiðlun næsta haust. Bókin er vegleg í alla staði, á fjórða hundrað blaðsíður með fjölda ljósmynda og skýringarmynda.
7.6.2007
Próf fyrir bílasala - endurtökupróf
Ákveðið hefur verið að halda endurtökupróf fyrir þá sem hafa sótt námskeið fyrir bifreiðasala en náðu ekki tilskildum árangri.
6.6.2007
Bættu um betur
IÐAN fræðslusetur hefur á þessu misseri unnið að tveimur þróunarverkefnum undir heitinu Bættu um betur. Annað þeirra snýr að einstaklingum sem ekki hafa lokið námi sínu í húsasmíði en hitt að þeim sem eiga ólokið námi sínu í bílgreinum.
6.6.2007
Bættu um betur – húsasmíði
31.5.2007
Írarnir eru komnir...
Sex írskir nemendur ásamt kennara komu til landsins fyrir rúmri viku. Þau hafa fengið frábærar móttökur frá veitingamönnum. Einn orðaði það svo að hann væri búin að finna sinn stað í lífinu og vill helst flytja hingað...þessi ummæli eru frá Patrick sem er á Perlunni.
25.5.2007
Útskrift nýsveina í bókiðngreinum 15. júní
Útskrift nýsveina úr bókiðngreinum verður 15. júní n.k. kl. 17.30 í húsi FBM að Hverfisgötu 21. Allir nýsveinar, fjölskyldur þeirra og meistarar eru velkomnir.
ATH. Breyttan tíma, 15. júní kl. 17.30
Ellefu nemar gengust undir sveinspróf að þessu sinni. 2 í bókbandi, 2 í prentun og 7 í prentsmíð. Sveinspróf í ljósmyndun verða haldin í september 2007. Þá verður einnig framkvæmt mat á starfsreynslu til styttingar á vinnustaðanámi nemenda í fjölmiðlatækni, bókasafnstæki og veftækni ef umsóknir um slíkt berast.
15.5.2007
Fyrsti samningur um raunfærnimat undirritaður
Raunfærni er öll færni sem einstaklingur hefur náð með starfsreynslu, starfsnámi, frístundanámi, skólanámi, félagsstörfum og í einkalífi.
26.4.2007
Úthlutun úr starfsmenntasjóði félagsmálaráðuneytisins í apríl 2007
Starfsmenntaráð auglýsti í febrúar sl. eftir umsóknum um styrki til starfsmenntunar í atvinnulífinu. Auglýst var eftir umsóknum í 3 flokka verkefna auk opins flokks, en til úthlutunar voru 55 milljónir.
25.4.2007
Aðalfundur IÐUNNAR-fræðsluseturs
11.4.2007
IÐAN og HR undirrita samning um stjórnendanám
11.4.2007
FOWL PLAY - Írarnir koma....
Tólf írskir matreiðslunemar koma til landsins fyrir tilstuðlan matvæla- og veitingasviðs IÐUNNAR.
29.3.2007
Bættu um betur - Bílgreinar
Hófst þú nám í bifvélavirkjun, bílamálun eða bifreiðasmíði en laukst því ekki?
28.3.2007
Íslandsmót iðnnema 2007
Íslandsmót iðnnema - Gerðu betur
Íslandsmót iðnnema - Gerðu betur!
var haldið í Kringlunni 23. mars sl.
Leit
Mynd














