30.10.2007
Nemakeppnin ķ matreišslu og framreišslu 2007
30.10.2007
Blikksmišir framtķšar
Félag blikksmiðjueigenda og Ísloft ehf buðu nemendum í málmiðnabraut Borgarholtsskóla í heimsókn. Strákarnir fóru vítt og breitt um Ísloft og kynntu sér starfsemina. Verulegur hluti hennar snýst um framleiðslu og uppsetningu loftræsikerfa. Smíðavinnan felst m.a. í formun plötuefnis í stórar einingar, stokka og aðra íhluti í tölvustýrðum vélum.
30.10.2007
Fimm sušunįmskeišum lokiš ķ samvinnu viš Fronius ķ Austurrķki
Lokið er fimm mismunandi suðunámskeiðum námskeiðum hjá Málm- og véltæknisviði IÐUNNAR. Námskeiðin voru í Ál suðu, MIG- brasing og CMT. Yfir fjörutíu manns sóttu námskeiðin.
23.10.2007
Forstjóri Oxford University press til Ķslands
George Thomas, forstjóri Oxford University Press heldur fyrirlestra og málstofur 9. nóvember nk. George hefur náð undraverðum árangri í rekstri prentsmiðju Oxford bókaútgáfunnar. Hann hefur ma. aukið hagnað um 58% og sölu um 33% á sama tíma og starfsmannafjöldi hefur eingöngu vaxið um 4%. Þá hefur hann náð miklum árangri í ráðningum starfsmanna og lækkað starfsmannaveltu niður í 4%.
22.10.2007
Kynningarfundur Bęttu um betur ķ hśsasmķši veršur 24. október kl. 18:00.
Nú er verkefnið Bættu um betur í húsasmíði að hefjast að nýju og hvetjum við áhugasama að mæta miðvikudaginn 24. október, kl. 18:00 að Hallveigarstíg 1, 101 Reykjavík og kynna sér það nánar. Einnig eru frekari upplýsingar á heimasíðu IÐUNNAR undir námsráðgjöf, http://www.idan.is/radgjof
18.10.2007
Létt og gott meš Marentzu
Mikil ánægja var með námskeiðið Létt og gott í hádeginu með Marentzu Poulsen. Eldaðar voru dýrindis....
12.10.2007
Mįlm- og véltęknisviš vķgir glęsilega ašstöšu til sušužjįlfunar
Málm-og véltæknisvið IÐUNNAR vígði glæsilega aðstöðu til suðuþjálfunar á Gylfaflöt 19 í dag. Gústav Adolf Hjaltason málmtæknifræðingur sýndi gestum nýjustu tækni við málmsuðu og leyfði viðstöddum að grípa í græjurnar. Aðstaðan gerir kleift að kenna nemendum TIG suðu, koparbras og silfurkveikingu, MIG/MAG suðu, pinnasuðu og logsuðu. Næsta námskeið verður haldið í álsuðu 16. október. Skráning hér.
11.10.2007
Ingi Erlingsson fjallaši um teiknimyndir ķ auglżsingum
Ingi Erlingsson, ungur hönnuður sem starfar í London hélt hádegisfyrirlestur í Bláa salnum í húsnæði Háskólans í Reykjavík (gamla Morgunblaðshúsinu) í dag. Ingi fjallaði um hugmyndavinnuna á bak við auglýsingagerðina, sköpun persóna og ,,storyboard" við auglýsingu sem unnin var fyrir Umferðarstofu í sumar. Ingi starfar hjá auglýsingastofunni ilovedust í London og er yfirmaður hreyfimyndadeildar þeirra. Ingi starfaði áður í New York og lauk námi í grafískri hönnun frá College for the Creative Arts í London fyrir rúmu ári. Fyrirlesturinn var vel sóttur. Næsti hádegisfyrirlestur er áætlaður 9. nóvember með George Thomas, forstjóra Oxford University Press.
10.10.2007
Kynningarfundur Bęttu um betur ķ framreišslu og kjötišn
Kynningarfundur verkefnanna Bættu um betur í framreiðslu og kjötiðn verður haldinn 11. október 2007, kl. 16:00 í húsakosti IÐUNNAR fræðslusetur, Hallveigarstíg 1, 101 Reykjavík.
10.10.2007
Nįmskeiš um efnainnihald og męlingar ķ vatnsverki prentunar
Hermann Þórðarson kenndi nokkrum nemendum um efnainnihald og mælingar á vatnsverki prentunar á námskeiði prenttæknisviðs í dag. Einnig fjallaði Hermann um samsetningu fount lausnar og alkohólfría prentun. Námskeiðið var samvinnuverkefni Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og IÐUNNAR fræðsluseturs.
Markmiðið með námskeiðinu var að freista þess að byggja upp þekkingu á efnafræði vatns fyrir prentun innanlands. Hingað til hefur þessi þekking verið sótt til erlendra fyrirlesara. Námskeiðið tókst með ágætum og verður framhald á vorönn 2008.
10.10.2007
Sérfręšingar frį LASTEK kenna į sušunįmskeiši
Sérfræðingar frá Lastek kenna á sérhæfðu suðunámskeiði. Farið var í mjög sérhæfðar aðferðir varðandi bras og lóðningar. Þá var einnig farið í aðferðir varðandi suðu í vatni og sérstakar suðuaðferðir varðandi viðgerðir á steypujárni.
9.10.2007
Nįmskeiš hefjast viš Hįskólann ķ Reykjavķk
Námskeiðið ,,Bestu aðferðir rekstrar" hófst stundvíslega klukkan 14.00 í dag. Tólf þátttakendur eru skráðir til leiks og kennari er Jón Hreinsson, fjármálastjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands. Námskeiðið er hið fyrsta af tveimur námskeiðum á haustönn sem aðildarfélögum IÐUNNAR standa til boða við Háskólann í Reykjavík. Á þessu námskeiði verður veitt yfirlit yfir rekstraraðferðir, fjármálastjórnun og framleiðslustjórnun í iðnaði. Seinna námskeiðið hefst 29. október og fjallar um mannauðsstjórnun. Námskeiðin eru sérsniðin fyrir stjórnendur og verðandi stjórnendur í iðnaði og eru hluti af samningi milli IÐUNNAR fræðsluseturs og Háskólans í Reykjavík sem undirritaður var síðastliðið vor.
9.10.2007
Išntölvunįmskeiš
IÐAN fræðslusetur heldur iðntölvunámskeið PLC.
Frábært iðntölvunámskeið er í gangi hjá málm- og véltæknisviði Iðunnar. Mikil ásókn hefur verið í iðntölvunámskeið Iðunnar. Annað námskeiðið á haustönn er í gangi núna og það þriðja verður haldið á Reyðarfirði í næstu viku. Líkur eru á að það fjórða verði sett upp nú á haustönn. Þeir sem vilja taka þátt verða að skrá sig sem fyrst.
Skráning á Idan.is eða kristjankr@idan.is og í síma: 5906400
8.10.2007
Sveinspróf ķ vélvirkjun
Dagana 5. - 7. október voru haldin sveinspróf í vélvirkjun.
Sveinsprófin voru haldin á Akureyri og í Reykjavík. Alls voru 28 sveinsprófstakar.
Mynd úr sveinsprófinu
5.10.2007
AutoCAD į fullu
AutoCAD-námskeið IÐUNNAR hafa verið vel sótt í haust. Tveimur Autocad- námskeiðum er lokið auk Inventor-námskeiðs.
4.10.2007
Sandee kennir InDesign
Sandee Cohen hóf kennslu á InDesign í dag með fullskipuðu námskeiði. Sandee er líflegur kennari og var ekki annað að sjá en nemendur hennar lifðu sig inn í námsefnið.
Sandee kennir InDesign fyrir lengra komna 4. og 5. október og Illustrator fyrir lengra komna 8. og 9. október.
3.10.2007
Išntölvustżringar hjį Alcoa
Málm- og véltæknisvið hélt sitt fyrsta námskeið hjá Alcoa Fjarðaáli í september s.l. Kennari er Kristján Haukur Flosason sem vinnur nú ásamt Kristjáni Kristjánssyni MVS að þróun námskeiðs í iðntölvustýringum.
1.10.2007
Nemakeppni ķ matreišslu og framreišslu 2007
Leit
Mynd













