29.11.2007
Kynningarfundur - Frumvarp til laga um framhaldsskóla
Haldinn var kynningarfundur um frumvarp til laga um framhaldsskóla 29. nóvember. Starfsfólk IÐUNNAR fræðsluseturs, stjórn IÐUNNAR fræðsluseturs og varastjórn ásamt sviðstjórnir voru boðuð sérstaklega til fundarins. Magnús Þorkelsson og Kristján Karlsson frá menntamálaráðuneytinu skýrðu frá frumvarpinu og svöruðu spurningum.
Frumvarp til laga um framhaldsskóla lagt fyrir Alþingi á 135. löggjafarþingi 2007-2008
21.11.2007
Námskeið um löggildingu mannvirkjahönnuða
Námskeið fyrir mannvirkjahönnuði verður haldið dagana 4., 5., 11., 12., 18. og 19 apríl nk. Umsóknum skal skila til IÐUNNAR fræðsluseturs á sérstökum eyðublöðum.
Upplýsingar gefur Birgir Hólm í síma 590 6434
13.11.2007
Bættu um betur Norðurland
Bættu um betur er tilraunaverkefni um að meta færni sem aflað hefur verið á vinnumarkaði inn í iðnnám. Verið er að kanna áhuga einstaklinga sem eru starfandi í húsasmíði eða bifvélavirkjun og hafa hug á að ljúka sveinsprófi. Ef áhugi og næg þátttaka eru fyrir hendi er stefnt að því að fara af stað með verkefnið. Samstarfsaðilar í verkefninu eru IÐAN fræðslusetur, Fræðslumiðstöð atvinnulífsins, Símey - Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar og Verkmenntaskólinn á Akureyri.
Nánari upplýsingar veitir Símey í síma 460-5720.
11.11.2007
Bættu um betur í málaraiðn
Nú stendur yfir skráning í verkefnið Bættu um betur í málaraiðn. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu IÐUNNAR undir http://www.idan.is/radgjof/bub/bub-mal/ Jafnframt er hægt að senda rafrænar fyrirspurnir á radgjof@idan.is
9.11.2007
Að keppa á gæðum en ekki verðum
George Thomas, framkvæmdastjóri Oxuni-Print, prentsmiðju Oxford University Press hélt málstofu 9. nóvember. Á málstofunni fjallaði George um samkeppnisforskot sem myndast þegar iðnfyrirtæki keppa á aukinni þjónustu. M.a sagði hann frá því hvernig Oxuni-Print hefði aukið afkastagetu sína með skýrari framtíðarsýn og markmiðum. Þá greindi hann frá því hvaða forskoti er hægt að ná á markaði þar sem verð og gæði eru ákveðin af viðskiptavinum. Glærur af fyrirlestri George Thomas má finna hér.
9.11.2007
Hádegisfyrirlestur George Thomas vel sóttur
9.11.2007
Að ráða rétta fólkið
Prýðileg þátttaka var á málstofu Terry O´Reilly í morgun. Í fyrirlestri sínum fjallaði Terry um starfsmannastefnu, afkastaaukningu og markmiðssetningu í rekstri iðnfyrirtækja á borð við prentsmiðju Oxford University Press. Hann sagði frá því hvernig Oxuni-Print, prentsmiðja Oxford University Press hefur laðað til sín ungt hæfileikafólk með nútímalegum og markvissum stjórnunarháttum. Lykilatriði í árangri Oxuni-Print er gagnsæi fyrirtækisins og upplýsingagjöf til starfsmanna um afkomu og árangur. Fyrirlestur Terry má finna hér.
9.11.2007
IÐAN og Frostmark gera samning um kennslubúnað
IÐAN fræðslusetur og Frostmark hafa gert með sér samning um að Frostmark smíði fyrir IÐUNA tvö kennslutæki í kælitækni. Annað verður bæði með kæli og frysti meðan hitt verður eingöngu með frysti. Á þessi tæki verður kennt til vottunar í kælitækni. Meðal annars verða tuttugu og átta mismunandi bilanir á kerfunum bæði í stýri- og kælikerfinu. Þá verður annað kerfið sérstaklega ætlað til þjálfunar á af- og átöppun kælimiðils. Einnig verður kerfið ætlað til þjálfunar á af- og átöppun smurolíu. Þetta er aðeins fyrsta skrefið í að málm- og véltæknisvið IÐUNNAR taki að sér vottun íslenskra kælifyrirtækja og manna.
8.11.2007
Hádegisfyrirlestur George Thomas í sal 337 Stjórnendaskóla HR
George Thomas heldur hádegisfyrirlestur 9. nóvember í sal 337 (ekki bláa salnum eins og áður var auglýst) í Stjórnendaskóla Háskólans í Reykjavík kl. 12.00 - 13.00.
1.11.2007
Terence O´Reilly fjallar um starfsmannastjórnun í prentiðnaði
Terence O´Reilly, starfsmannastjóri Oxford University Press fjallar um starfsmannastefnu Oxford U.P. á málstofu 9. nóvember nk. kl. 9.30-11.00. Hann kemur í stað George Thomas sem gerði sér lítið fyrir og bauð samstarfsmanni sínum með til Íslands.
Skráning á málstofur með þeim Terence og George eru undir linknum námskeið hér til hægri.
Leit
Mynd













