Beint á leiðarkerfi vefsins

18.12.2008

Réttindi og skyldur nema og meistara

Í ljósi aðstæðna á vinnumarkaði hvetjum við vinnuveitendur til að leita allra leiða til að komast hjá því að segja nemum á námssamningi upp störfum. Vinsamlega kynnið ykkur reglugerð um námssamninga og starfsþjálfun ef áætlað er að segja nema upp störfum. Starfsmenn IÐUNNAR fræðsluseturs veita upplýsingar er varða nema á námssamningi.

Reglugerð um námssamninga og starfsþjálfun nr. 280 frá 1997 með breytingu 423/2000.

18.12.2008

Chris Aires kennir podcasting í mars

Chris Aires, breskur sérfræðingur í podcasting mun halda eins dags námskeið í Podcasting 9. mars. Podcasting eða hlaðvarp er nú að ryðja sér til rúms við útvarpssendingar á vefnum. Námskeiðið hentar mjög vel þeim sem vilja auka færni sína við vefmiðlun og hafa nokkra þekkingu á umsýslu vefmiðla. Námskeiðið tekur einn dag og er hluti af syrpu styttri námskeiða í mars. Í vikunni á undan verður Nigel French með framhald í InDesign CS4 og strax í vikunni þar á eftir verður Karsten Vestergaard með námskeið í Flash. 

18.12.2008

Rannsókn á afdrifum nemenda og umfangi náms í upplýsinga- og fjölmiðlagreinum

Prenttæknisvið IÐUNNAR fræðsluseturs og Rannóknir og greining Háskólans í Reykjavík hafa gert með samning um að kanna umfang náms í upplýsinga- og fjölmiðlagreinum. Auk þess verða afdrif nemenda í þessum greinum könnuð. Líklegt er að niðurstöður liggi fyrir snemma vors 2009. Hugmyndin er upphaflega orðin til innan Starfsgreinaráðs upplýsinga- og fjölmiðlagreina en fjármagn til rannsóknarinnar fékkst úr Starfsmenntasjóði. Rannsóknin og niðurstöður hennar munu nýtast við endurskoðun námskrár í upplýsinga- og fjölmiðlagreinum á næstu misserum. Prenttæknisvið ásamt Rannóknum og greiningu HR munu gangast fyrir opnum fundi um niðurstöðurnar þegar þær liggja fyrir í vor.

18.12.2008

Sveinsprófssýning málara

Sýning á sveinsprófsstykkjum málara verður næstkomandi laugardag, þann 20. des. kl. 15:00 í aðstöðu Iðnskólans í Hafnafirði að Gjótuhrauni 7.

Þetta er í fyrsta sinn sem að málarar taka sveinspróf eftir að hafa farið gegnum raunfærnimat hjá IÐUNNI fræðslusetri. Allt ferlið gekk mjög vel og undirtektir frábærar. Að þessu sinni eru það sex aðilar sem fóru þessa leið í sínu námi og eru að ljúka núna við sveinspróf. Við óskum þeim hjartanlega til hamingju.

16.12.2008

Námskeið prenttæknisviðs á vorönn 2009 - skráning hafin

Skráning er nú hafin á námskeið prenttæknisviðs á vorönn 2009. Alls eru 17 námskeið í boði á þessarri vorönn sem er talsverð aukning námskeiða frá því sem verið hefur. Þessi aukning helgast ekki síst af þeirri þörf sem skapast þegar atvinnuleysi knýr dyra. Sérstaklega er bent á námskeið í vefmiðlun sem haldið er af Tækniskólanum, námskeið í málmiðnaði, málmsuðu og vélfræði auk námskeiða fyrir hönnuði. Einfaldast er að skrá sig með því að smella á hnappinn hér til hægri eða hringja í síma 5906400.

8.12.2008

Menntaáætlun Evrópusambandsins

Mannaskipta verkefni IÐUNNAR fræðsluseturs er meðal 9 fyrirmyndarverkefna í Leonardo áætluninni.
mannaskipti_rorAnnað hvert ár eru veittar gæðaviðurkenningar fyrir Leonardo mannaskiptaverkefni. Nú er komið að því að veita viðurkenningar fyrir Leonardó fyrirmyndarverkefni fyrir árin 2005 og 2006. Það er sérstök ánægja að tilkynna að IÐAN fræðslusetur er meðal 9 fyrirmyndarverkefna fyrir árin 2005-2006 og verða kynnt sérstaklega nýjum bæklingi Leonardo mannaskiptaverkefna.
Alls uppfylltu 55 verkefni skilyrði fyrir þátttöku.

3.12.2008

Kristín Ragna og Halldór Baldursson kenna á námskeiðum prenttæknisviðs

 Kristín Ragna kennari Kristín Ragna Gunnarsdóttir og Halldór Baldursson munu kenna á námskeiðum prenttæknisviðs á vorönn 2009. Kristín Ragna kennir námskeiðið ,,Frásagnarteikning" en Halldór kennir námskeiðið ,,myndskreytingar". Námskeiðið með Kristínu hefst 12. janúar og verður kennt í húsnæði IÐUNNAR að Skúlatúni 2.

Kennt verður tvisvar í viku á mánudögum og miðvikudögum frá 9.00-12.00. Í febrúar tekur Halldór við og kennir áfram á mánudögum og miðvikudögum út febrúar. Námskeiðin eru ætluð fagfólki í hönnun og grafískri miðlun.

Hægt er að skrá sig hér og með því að hringja í 5906400.

Rétt er að benda á að atvinnulausir félagar FGT og FBM fá ókeypis á námskeið prenttæknisviðs.  

21.11.2008

Fyrirmyndir í raunfærnimati á aðalfundi FA

Svanur Þór Brandsson og Egill Þórarinsson tóku báðir þátt í raunfærnimatsverkefni okkar í húsasmíði 2007. Þeir luku báðir sveinsprófi maí 2008. Á aðalfundi FA sögðu þeir frá reynslu sinni og þökkuðu IÐUNNI fræðslusetri fyrir frábært starf.

21.11.2008

Prenttæknisvið gerir samning við Tækniskólann um námskeið í vefmiðlun

Boðið verður upp á námskeið í vefmiðlun fyrir aðildarfélaga prenttæknisviðs. Námskeiðið er haldið af Margmiðlunarskólanum og hefst um miðjan janúar. Á námskeiðinu verða kenndar ítarlegar aðferðir við Flash, action scripting og html á 16 vikum. Þátttakendur ættu því að vera vel færir í vefmiðlun að námskeiðinu loknu. Námskeiðið er sérstaklega ætlað prentsmiðum, grafískum miðlurum, hönnuðum og öðru fagfólki í upplýsinga- og fjölmiðlagreinum. Námskeiðið skerðir ekki bótarétt atvinnulausra en bent er á sérstök skilyrði um tilkynningarskyldu og mætingar fyrir þá sem þiggja bætur Vinnumálastofnunar. Nánari upplýsingar veitir Björn M. Sigurjónsson sviðsstjóri prenttæknisviðs IÐUNNAR.

20.11.2008

Menntun og nýliðun í matvæla- og veitingagreinum

MATVÍS - Matvæla- og veitingafélag Íslands stóð fyrir ráðstefnu um menntun og nýliðun í matvæla- og veitingagreinum. Ráðstefnan var haldin á Grand Hótel Reykjavík þann 18. nóvember sl.
Meðal annars var fjallað um eftirfarandi spurningar:

  • Hvaða áhrif hafa ný lög um framhaldsskóla?
    Hvaða afleiðingar hefur atvinnuástandið á þessar greinar?
    Skapast ný tækifæri til nýliðunar í ljósi ástandsins?
    Hvaða hlutverki gegnir meistarakerfið í framtíðinni?

Sjá umfjöllun á heimasíðu MATVÍS

15.11.2008

Úrslit nemakeppni í matreiðslu

nemakeppni_09Úrslitakeppni í nemakeppni matreiðslunema fór fram föstudaginn 14. nóvember. Sjö stigahæstu nemarnir eftir forkeppni sl. þriðjudag kepptu til úrslita. Keppendur matreiddu tvo rétti á samtals þremur klukkutstundum, aðalrétt úr þorski og eftirrétt úr skyri. Keppni sjömenningana var mjög hörð og jöfn en sigurvegarar keppninnar voru þeir Ari Þór Gunnarsson nemi á Sjávarkjallaranum og Bjarni Siguróli Jakobsson nemi á Vox.  

14.11.2008

Auglýsing um sveinspróf

Auglýsing um sveinspróf var birt í Morgunblaðinu og Fréttablaðinu sunnudaginn 26. október.

14.11.2008

Opinn fundur um stöðu námssamninga í löggiltum iðngreinum

Fundur um stöðu iðnnemaFjölmennur fundur um stöðu námssamninga í löggiltum iðngreinum var haldinn í húsnæði IÐUNNAR fræðsluseturs föstudaginn 14. nóvember.
Óvissan í efnahagsmálum þjóðarinnar kemur niður á námsmönnum í samningsbundnu iðnnámi eins og öðrum.
Rætt var um möguleg úrræði sem hægt væri að grípa til og ítrekaður réttur nema samkvæmt Reglugerð um námssamninga og starfsþjálfun, nr. 280/1997. Með reglugerð um breytingu nr, 423/2000.
Ákveðið var að vinna áfram að því að leita lausna.

 

11.11.2008

Nemakeppni í matreiðslu

Matreidslunemar08Nemakeppnin í matreiðslu hófst í morgun með forkeppni matreiðslunema. Samtals taka 22 nemar þátt í keppninni sem fer fram í Hótel- og matvælaskólanum í Kópavogi. Í forkeppninni fá nemarnir sýniskörfu með matvælum og verkefnið er að búa til fjögurra rétta matseðil úr þeim hráefnum sem eru í körfunni. Sjö hæstu nemarnir taka þátt í lokakeppni matreiðslunema nk. föstudag.

7.11.2008

Áhugi fyrir GEMS

Helen_breyttÞann 6. Nóvember voru  niðurstöður tilraunaverkefnisins GEMS - Guidance for Educators, mentors and Students (http://www.leogems.org/) kynntar.  Ólöf Ýrr Atladóttir, Ferðamálastjóri setti ráðstefnuna en María Kristín Gylfadóttir verkefnisstjóri Alþjóðaskrifstofunnar stýrði henni.

5.11.2008

InDesign og Illustrator á vorönn

Framhaldsnámskeið í InDesign, Illustrator og Photoshop á vorönn
Vegna tíðra fyrirspurna verður látið uppi að framhaldsnámskeið fyrir lengra komna notendur í InDesign, Illustrator og Photoshop verða haldin á vorönn. Íslandsvinurinn og Photoshop-gúrúinn Ben Willmore er væntanlegur auk Nigel French sem er orðinn okkur vel kunnugur.

5.11.2008

Svartlistarnámskeið hófst í gær

SvartlistSvartlistarnámskeið hófst í gærkvöldi með 10 þátttakendum úr prentiðnaði. Jóhann Ludwig Torfason kennari við Listaháskóla Íslands leiðbeinir á námskeiðinu. Námskeiðið hefur vakið nokkra forvitni enda nýstárlegt og spennandi. Námskeiðið spannar fjögur kvöld og nemendur vinna verkefni undir handleiðslu Jóhanns.
Þegar tíðindamaður pts.is leit við í gærkvöldi voru þátttakendur að gera sig klára fyrir verkefni.

31.10.2008

Bættu um betur í húsasmíði

bub-husHefur þú áhuga á að ljúka námi í húsasmíði? Ert þú 25 ára eða eldri og með 5 ára staðfestan vinnutíma? Þá á þetta við þig. Kynningarfundur verður miðvikudaginn 5. nóvember kl. 18:00 í húsakynnum okkar, Skúlatún 2, 105 Reykjavík. Láttu sjá þig! Nánar

29.10.2008

IÐAN fræðslusetur og Starfsafl fræðslusjóður í samstarf

IÐAN og StarfsaflsUndirritaður hefur verið samningur á milli IÐUNNAR fræðsluseturs og Starfsafls, starfsmenntar Samtaka atvinnulífsins og Flóabandalagsins. Samningurinn gerir iðnfyrirtækjum kleift að senda alla starfsmenn, jafnt iðnaðarmenn sem almenna starfsmenn Flóabandalagsins á námskeið IÐUNNAR og greiða fyrir það lágmarksgjald samkvæmt gjaldskrá IÐUNNAR. Starfsafl greiðir mismun félagsgjalds og almenns námskeiðsgjalds fyrir félagsmenn Flóabandalagsins (Eflinga, Hlífar og VSFK).

20.10.2008

Afhending sveinsbréfa á Akureyri

Afhending sveinsbréfa á AkureyriFöstudaginn 17. október s.l. fór fram afhending sveinsbréfa á Akureyri.  Afhendingin fór fram í lok kynningarviku IÐUNNAR á Norðurlandi.

20.10.2008

Raunfærnimat í vélvirkjun á Austurlandi

Hefurðu áhuga á að ljúka námi í vélvirkjun? Ert þú 25 ára eða eldri og með staðfestan vinnutíma upp á 5 ár? Þá á þetta við þig. Kynningarfundur verður þriðjudaginn 21. október kl. 20:00 á Egilsstöðum í húsakynnum Þekkingarnets Austurlands. Láttu sjá þig!

16.10.2008

IÐAN á Akureyri

Móttaka IÐUNNAR á AkureyriÍ tilefni af heimsókn IÐUNNAR í fyrirtæki og skóla norðurlandi var boðið til móttöku á efstu hæðinni á Strandgötunni á Akureyri. Ferð IÐUNNAR hefur tekist mjög vel og fjöldi fyrirtækja og skóla hefur verið heimsóttur. Mikilvægar upplýsingar hafa fengist í ferðinni sem verið er að vinna nánar úr. Skólafólk og fagmenn úr greinunum sem tengjst IÐUNNI mættu í móttökuna á Strandgötunni sem tókst með ágætum.

15.10.2008

IÐAN á norðurlandi

VMAkynningStarfsmenn IÐUNNAR fræðsluseturs eru þessa vikuna að kynna starfsemi fyrirtæksins á norðurlandi. Í boði eru fjölbreytt námskeið og þjónusta fyrir félagsmenn IÐUNNAR. Starfsmenntadeildin kynnir þjónustu fyrirtækisins við iðn- og starfsnámsnemendur og náms- og starfsráðgjafar IÐUNNAR kynna upplýsingaveitu um iðn- og starfsnám. Í Verkmenntaskólanum á Akureyri fór fram kynning á þjónustu starfsnámsdeildar.   

24.9.2008

EUROSKILLS Rotterdam

Evrópska iðnnemakeppnin var haldin 18.-20. október s.l. Þriggja manna hópur af prenttæknisviði fór utan til að kynna sér sýninguna, þau Georg Páll Skúlason frá FBM, Hanna Þórunn Skúladóttir frá SI og Björn M. Sigurjónsson sviðsstjóri prenttæknisviðs IÐUNNARRotterdam. Um leið sátu þau málþing og fund EGIN samtakanna. Keppnin í upplýsinga- og fjölmiðlagreinum var athyglisverð fyrir margra hluta sakir. Keppt var í þriggjamanna liðum, grafísks miðlara, vefmiðlara og prentara. Keppnisverkefnið var að búa til vefgrafík, plaköt, bæklinga og dreifpóst fyrir skífuþeytarann Jean sem er þekktur skemmtikraftur í Hollandi.Íslenska sendinefndin safnaði nokkrum upplýsingum um keppnisreglur og fyrirkomulag keppninnar ytra sem verður nýtt við næstu iðnnemakeppni á Íslandi.

23.9.2008

Hársnyrtinámskeið

LitafradiFyrsta námskeið fyrir sveina, meistara og nema í hársnyrtifræðum var haldið að Skúlatúni 2, þriðjudaginn 23. september. Á námskeiðinu var fjallað um litun á hári, meðhöndlun efna og áhalda. Kennari á námskeiðinu var Steinunn Braga Bragadóttir. Námskeiðið tókst mjög vel í alla staði.   

22.9.2008

EuroSkills

EShar1Keppnin EuroSkills 2008 lauk laugardaginn 20. september. Samtals var keppt í 49 greinum og voru þátttakendur um 400 talsins frá samtals um 30 löndum. Keppnin var skipulögð ýmist sem keppni á milli einstaklinga og liðsveita eða eingöngu sem einstaklingskeppni. Í hársnyrtigreinum var einstaklingskeppni og þar kepptu þær Arnbjörg og Þorbjörg fyrir hönd Íslands. Þær voru báðar fyrir ofan miðju. Sjá nánar niðurstöður á heimsíðu EuroSkills 

18.9.2008

EuroSkills í Rotterdam

EuroskillsEuroSkills keppnin fer fram í Rotterdam dagana 18. - 20. september. Samtals taka um 30 lönd í Evrópu þátt í keppninni og Íslendingar eru þar á meðal. Frá Íslandi taka þær Arnbjörg Jóhannsdóttir og Þorbjörg Bergþórsdóttir þátt í keppni í hársnyrtigreinum. Arnbjörg er nemi á stofunni Lína Lokkafína og Þorbjörg á hársnyrtistofunni Ónix.  

17.9.2008

Vika símenntunar 2008

Vika símenntunarVika símenntunar verður haldin dagana 22. - 28. september næstkomandi. Markmið hennar er að auka símenntun í íslensku atvinnulífi og hvetja fólk til að leita sér þekkingar alla ævi.

IÐAN fræðslusetur býður upp á fimm námskeið í Viku símenntunar . Við  hvetjum sérstaklega félagsmenn IÐUNNAR, sem og aðra , til að styrkja stöðu sína í atvinnulífinu og auka við hæfni sína, þekkingu og færni. Með því tryggjum við  markvissa uppbyggingu iðnaðar í landinu.

5.9.2008

Tekið á móti gestum í nýjum húsakynnum

Hildur_opnunÞann 4. september var boðið til fagnaðar í nýjum húsakynnum IÐUNNAR. Fjölmargir gestir heiðruðu okkur með nærveru sinni.

4.9.2008

Nýr námsvísir kemur út í dag!

Námsvísir IÐUNNAR kemur út í dag. Að vanda býður IÐAN upp á fjölbreytt námskeið fyrir aðildarfélaga. Meðal nýjunga má nefna námskeið í stjórnun og rekstri. T.d. má nefna námskeið um skuldastýringu og gengisvarnir, birgðastjórnun í iðnaði, framleiðslustjórnun iðnfyrirtækja, gæðastjórnun og móttöku viðskiptavina.

Fyrstu stjórnunar- og rekstrarnámskeið hefjast 15. september en þá hefst námskeið í framleiðslustjórnun í iðnaði.

21.8.2008

Björgvin Páll Gústafsson hæstur á sveinsprófi í bakaraiðn

Björgvin Páll Gústafsson var hæstur á sveinsprófi í bakaraiðn í maí sl. Björgvin lærði hjá Jóa Fel bakarameistara. Björgvin er jafnframt lykilmaður í íslenska landsliðinu í handbolta sem keppir á Olympíuleikunum í Peking.
Björgvin Páll með sveinsverkefnið sitt

2.7.2008

Nýtt heimilisfang að Skúlatúni 2

Skúlatún 2Mánudaginn 16. júní opnuðu skrifstofur IÐUNNAR fræðsluseturs að Skúlatúni 2 í Reykjavík.

23.6.2008

Raunfærnimat: Bættu um betur

BUBÞann 18.júní útskrifaðist 12 manna hópur úr fyrsta raunfærnimatsverkefninu á Norðurlandi sem stýrt var af IÐUNNI fræðslusetri í samstarfi við Símey, VMA og Fræðslumiðstöð atvinnulífsins.
IÐAN fræðslusetur vinnur að raunfærnimati innan iðngreina og í þessu verkefni voru þátttakendur úr bílgreinum, húsasmíði og pípulögnum. Þátttakendur fóru í gegnum ákveðið ferli með viðtölum við námsráðgjafa, færnimöppugerð, yfirferð matslista og matsviðtöl.
IÐAN fræðslusetur óskar þátttakendum til hamingju með árangurinn og þakkar samstarfsaðilum afar skemmtilegt samstarf í verkefninu.

4.6.2008

Sveinspróf málara vel heppnað

próftaki að vinna sitt verkefniDagana 26. til 30. maí var haldið sveinspróf málara en það var nokkuð frábrugðið þeim sveinsprófum sem áður hafa verið haldin. Verkefnin sem þurfti að leysa voru mjög frábrugðin þeim sem hingað til hafa verið notuð.  Prófið þótti takast virkilega vel að mati sveinsprófsnefndar sem og þeirra próftaka sem sá er þetta skrifar ræddi við. Alls voru próftakar þrettán að þessu sinni en hver og einn fékk ákveðið þema sem var dregið um og átti að vinna sitt verkefni í takt við það. Hér með er mynd af einu prófverkefni en myndir af hinum er hægt að skoða á heimasíðu Bygginga- og mannvirkjasviðs (valhnappur hér til hægri á síðu IÐUNNAR).

26.5.2008

Enn fjölgar greinum hjá IÐUNNI

Samningur við hársnyrtiiðnNýlega var undirritaður samningur milli IÐUNNAR fræðsluseturs, Meistarafélags í hárgreiðslu og Félags hársnyrtisveina um endurmenntun í hársnyrtiiðn. Fyrsta samstarfsárið, frá júní 2008 til loka maí 2009, er eins konar reynslutími. Að honum loknum verður starfið endurmetið með það að markmiði að greinin verði fullgildur aðili að IÐUNNI fræðslusetri og gangi að því samkomulagi sem gildir milli eigenda IÐUNNAR.  

20.5.2008

Ársfundur matvæla- og veitingasviðs IÐUNNAR

Ársfundur Matvæla- og veitingasviðs IÐUNNAR fræðsluseturs verður haldinn að Stórhöfða 31, þriðjudaginn 27. maí nk., kl. 15. Þema ársfundarins í ár verða fyrirhugaðar breytingar á Lögum um matvæli en frumvarp þessa efnis liggur nú fyrir á Alþingi. Í frumvarpinu er m.a. gert ráð fyrir því að heimila innflutning á fersku kjöti til landsins. Sigurður Örn Hansson forstöðumaður matvælaöryggis og neytendamála Matvælastofnunar mun kynna helstu ástæður fyrir þessum breytingum og útskýra afleiðingar þeirra fyrir fyrirtæki og félagsmenn í matvæla- og veitingagreinum.  

16.5.2008

Sveinspróf í matvæla- og veitingagreinum

Sveinspróf í matvæla- og veitingagreinum fóru fram dagana 8. til 15. maí. Samtals þreyttu 34 nemendur sveinspróf að þessu sinni. Í matreiðslu 24, fjórir í framreiðslu, þrír í bakaraiðn og þrír í kjötiðn.

Sveinspróf í maí 2008

11.5.2008

Aðalfundur IÐUNNAR fræðslusetur

Aðalfundur var haldinn þriðjudaginn 29. apríl sl. á Grand Hótel. Í stjórn IÐUNNAR fræðsluseturs árið 2008 eru:

Aðalmenn:   Varamenn:
 Bjarni Thoroddsen SI  Atli Vilhjálmsson BGS
 Finnbjörn Hermannsson Samiðn  Erna Hauksdóttir SAF
 Georg Páll Skúlason FBM  Heimir Kristinsson Samiðn
 Guðmundir I. Skúlason BGS  Haraldur Dean Nelson SI
 Hilmar Harðarson FIT  Hákon Hákonarson Samiðn
 Magnús Magnússon VM  Ingi Bogi Bogason SI
 Níels Olgeirsson MATVÍS  Ingólfur Sverrisson SI
 Ragnheiður Héðinsdóttir SI  Stefán Ólafsson FBM
Jón Steindór Valdimarsson SI  Sveinn Ingason FIT
 Þorsteinn Víglundsson SI  Þorsteinn Gunnarsson MATVÍS

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

8.5.2008

Sveinspróf í grafískri miðlun og prentun vorið 2008

Sveinspróf í grafískri miðlun og prentun verða haldin 19. - 23. maí. Sveinsbréf verða afhent föstudaginn 13. júní við hátíðlega athöfn í húsi Félags bókagerðarmanna að Hverfisgötu 21 milli kl. 18.00 og 19.00. Velunnarar nýsveina, meistarar og tilsjónarmenn þeirra ásamt fjölskyldu og vinum eru velkomnir.

20.4.2008

Bronsverðlaun í Norrænu nemakeppninni

Norræna nemakeppnin í matreiðslu og framreiðslu fór fram dagan 18. - 20. apríl í Odense í Danmörku. Fimm lönd taka þátt í keppninni eða Noregur, Svíþjóð, Finnland, Danmörk og Ísland. Löng hefð er fyrir keppninni en hún hófst fyrir 27 árum. Keppnin var hörð að þessu sinni. Ísland lenti í þriðja sæti í keppni matreiðslunema og í fimmta sæti í keppni framreiðslunema. 

Norræan matur
 

19.4.2008

Jóhann Geir og Arnar Már sigruðu!

Keppendur uppl og fjölmÞeir Jóhann Geir Úlfarsson, nemi í grafískri miðlun á Expo og Arnar Már H. Guðmundsson, nemi í ljósmyndun við Iðnskólann í Reykjavík fóru með sigur af hólmi á Íslandsmóti iðngreina sem lauk í Laugardalshöll í dag. Dómnefnd sem skipuð var þeim Kalman le Sage de Fontenay, Hirti Guðnasyni og Birni M. Sigurjónssyni valdi milli fjögurra verkefna. Dómarastörfin voru óvenju snúin þar sem úrlausnir keppenda voru mjög jafnar að gæðum. Greinilegt er að þarna eru einbeittir og hæfileikaríkir nemendur á ferð. Allir keppendur fengu glaðning frá prenttæknisviði að lokinni drengilegri og spennandi keppni.

Á myndinni eru frá vinstri: Jóhann Geir Úlfarsson (sigurvegari í grafískri miðlun), Ólafur Tómas Guðbjartsson nemi í grafískri miðlun, Tinna Ósk Grímarsdóttir nemi í grafískri miðlun, Ólöf Dómhildur Jóhannsdóttir nemi í ljósmyndun, Arnar Már H. Guðmundsson (sigurvegari í ljósmyndun), Viktor Örn Guðlaugsson nemi í ljósmyndun, Silja Rut Thorlacius nemi í ljósmyndun og Tinna Ásgeirsdóttir nemi í grafískri miðlun.  

19.4.2008

Taugarnar þandar

Það var allt á suðupunkti á Íslandsmóti iðngreina um hádegið í dag, þegar keppendur í upplýsinga- og fjölmiðlagreinum voru að ljúka keppni. Þær Tinna Ósk Grímarsdóttir og Silja Rut Thorlacius voru að minnsta kosti spenntar að sjá þegar Jón Sandholt aðstoðaði þær við að skila verkefninu. Nú er spennandi að sjá hver fer með sigur af hólmi. Úrslit verða kynnt kl. 16.30 í dag laugardag.

18.4.2008

Íslandsmót iðngreina sett í dag!

Iðnaðarráðherra, Össur Skarphéðinsson, setti  Íslandsmót iðngreina kl. 11.00 í dag, 18. apríl í anddyri Laugardalshallarinnar á annarri hæð. Íslandsmótið er nú árviss viðburður þar sem iðnnemar þreyta keppni í sínum faggreinum. Alls keppa um 80 nemar úr 20 greinum. Mótið stendur yfir 18. og 19. apríl. Verðlaunaafhending verður kl. 16.30 19. apríl. Dagskrá mótsins er hér.

Aðgangur er ókeypis og eru allir hvattir til að fylgjast með spennandi og skemmtilegri keppni.

17.4.2008

Verk og vit 2008

IÐAN fræðslusetur kynnir starfsemi sína á sýningunni Verk og vit 2008 sem tileinkuð er byggingariðnaði, skipulagsmálum og mannvirkjagerð. Þeir sem leggja leið sína til okkar á svæði C12 geta tekið þátt í skemmtilegu netfangahappdrætti. Gestir skilja eftir netföngin sín og þegar sýningunni lýkur verða fimm netföng dregin út. Hinir heppnu fá gjafabréf að upphæð 50.000 krónur. Gjafabréfið gildir sem greiðsla upp í einhver hinna fjölmörgu námskeiða á vegum IÐUNNAR fræðsluseturs.

15.4.2008

Starfsfólk IÐUNNAR skoðar nýja húsnæðið

Skoðunarferð í Skúlatún 2Starfsfólk IÐUNNAR fór mánudaginn 14.apríl í skoðunarferð í Skúlatún 2 en þangað mun starfssemin flytjast í byrjun júní.  Eins og myndin gefur til kynna eru framkvæmdir við breytingar þegar hafnar og miðar verkinu nokkuð vel. Mikil eftirvænting er meðal starfsfólks eftir nýju húsnæði og var skoðunarferðin vel heppnuð í alla staði.

14.4.2008

Úthlutun úr starfsmenntasjóði félagsmálaráðuneytisins 2008

Starfsmenntaráð félagsmálaráðuneytisins hefur úthlutað rúmlega 46 milljónum króna úr starfsmenntasjóði til 32 verkefna, vegna ársins 2008.

IÐAN fræðslusetur fékk úthlutað styrkjum fyrir tvö rannsóknarverkefni, eitt á prenttæknisviði og annað á matvæla- og veitingasviði. Auk þess styrki fyrir fimm verkefni á vegum IÐUNNAR.

10.4.2008

Fræðslufundur - Sveinsprófsnefndir

Haldinn verður fræðslufundur um gerð prófa og námsmat fimmtudaginn 8. maí kl. 15.00-17.30 að Hallveigarstíg 1, 101 Reykjavík. Aðgangur er ókeypis en hvetjum fólk til að skrá sig. Hlökkum til að sjá sem flesta.

Skráning fer fram til og með mánudeginum 5. maí  í síma 590 6400. Nánari upplýsingar veitir Helen Williamsdóttir Gray í síma 594 4023. Einnig má senda tölvupóst á hwg@idan.is (sjá auglýsingu)

 

7.4.2008

Úthlutun úr AKK, styrktar- og menningarsjóði vélstjóra og vélfræðinga

Á aðalfundi VM fékk málm- og véltæknisvið IÐUNNAR úthlutað 1,8 milljón króna til þess að smíða tvö kennslutæki í kæli- og frystivélatækni.

Samkvæmt reglugerð evrópusambandsins og væntanlegra undirreglugerða verða gerðar strangar kröfur til þeirra sem vinna við kæli- og frystitæki. Þessi nýi tækjabúnaður verður m.a. notaður til þess að sinna þessum kröfum.

Úthlutun þessi kemur að góðum notum og er til þess fallin að  styrkja málm- og véltæknisvið IÐUNNAR á sviði kæli- og frystivélavirkjunar verulega. 

 

4.4.2008

Vel heppnað námskeið fyrir kjötiðnaðarmenn

Jan Olsen og Jens MunchKjötmeistararnir Jens Munch og Jan Olsen kynntu aðferðir við framleiðslu á soðnum og hráverkuðum kjötvörum á umfangsmiklu námskeiði fyrir kjötiðnaðarmenn um helgina. Þemað var framleiðsla á Ítölskum kjötvörum, s.s. á paté, skinkum, salami, pylsum bæði soðnum og hráverkuðum, grillpylsum o.s.frv. Samtals tóku yfir 30 kjötiðnaðarmenn þátt í námskeiðinu sem heppnaðist mjög vel og var haldið í samstarfi við Ísam og AVO.

31.3.2008

Norskir aðilar fá kynningu á starfssemi IÐUNNAR

Starfsmenn OBI fá kynningu á starfsemi HellisheiðavirkjunarFimmtudaginn 27. mars nýttu sér sjö starfsmenn OBI ba (Opplæringskontoret for byggfagene i Inn-Tröndelag, www.obi-ba.no ) sér heimboð Bygginga- og mannvirkjasviðs IÐUNNAR (BYG).  Í upphafi dags héldu báðir aðilar kynningu á starfssemi sinni, áherslum, umgjörð og aðferðum. Kynning á starfssemi IÐUNNAR var í höndum þeirra Iðunnar Kjartansdóttur og Helen Williamsdóttur Gray. Iðunn sá um kynningu á þeirri starfssemi sem snýr að námsráðgjöf og raunfærnimati. Helen var svo með almenna kynningu á starfssemi IÐUNNAR, með áherslu á starfssemi Bygginga- og mannvirkjasviðs. Jafnóðum og ekki síður að kynningum loknum spunnust svo umræður um mismunandi aðferðir og umhverfi, kosti og galla þess umhverfis sem báðir aðilar starfa í. Þessi heimsókn er mikilvægur liður í þeirri vinnu BYG að mynda tengslanet við félög og stofnanir erlendis sem einnig hafa það hlutverk að sinna endur- og símenntun starfsmanna í byggingariðnaði.

31.3.2008

Hádegisfyrirlestur um lánsfjárþurrð á mörkuðum

Hádegisfyrirlestur um lánsfjárþurrð á mörkuðum verður haldinn í Bláa Sal Háskólans í Reykjavík (gamla Morgunblaðshúsið) þriðjudaginn 8. apríl kl. 12.15. Fyrirlesarar eru Bjarni Már Gylfason hagfræðingur SI, Jón Hreinsson fjármálastjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og Helgi Björn Kristinsson forstöðumaður ráðgjafar Glitnis. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill meðan húsrúm leyfir en gestir eru beðnir að skrá sig hér.

27.3.2008

Dagsetningar sveinsprófa í upplýsinga- og fjölmiðlagreinum

Sveinspróf verða haldin í grafískri miðlun, prentun og bókbandi frá 19. - 23. maí nk. Þeir sem hyggjast taka sveinspróf eru beðnir að skrá sig fyrir 1. apríl hjá IÐUNNI fræðslusetri. Skráningareyðublöð sveinsprófs má nálgast  á www.idan.is undir liðnum námssamningar og sveinspróf. Sveinsprófsgjald er kr. 5000 sem verður innheimt að prófinu loknu. Sveinsbréf verða afhent föstudaginn 13. júní.

18.3.2008

IÐAN fræðslusetur flytur

 

   undirskrift_leigusamningur

 

Undirritaður hefur verið leigusamningur um nýtt húsnæði fyrir IÐUNA fræðslusetur. Húsnæðið er að Skúlatún 2 og er miðað við að húsnæðið verði afhent í júní næst komandi.

17.3.2008

Auglýsing um sveinspróf

Sveinspróf verða haldin í maí og júní. Umsóknarfrestur er til 1. apríl eða 1. maí. Sjá nánar auglýsingu og undir námssamningar og sveinspróf

14.3.2008

Stjórnun og stjórnandinn

Námskeiðinu Stjórnun og stjórnandinn lauk nú í vikunni. Kennari var Auður Arna Arnardóttir, sérfræðingur í viðskiptadeild HR. IÐAN fræðsluseturs hefur í samvinnu við Háskólann í Reykjavík skipulagt þrjú námskeið á vorönn. Tveimur þeirra er nú lokið og tókust þau mjög vel. Þriðja námskeiðið, 360°stjórnendamat - aðgerðaáætlun og eftirfylgni er haldið í samráði við þátttakendur.

Sjá námskeiðsmat

11.3.2008

Yfirlit yfir bestu aðferðir rekstrar

IÐAN fræðslusetur og Símennt HR héldu námskeið þar sem fjallað var m.a. um aðferðir til að auka skilvirkni, gæði og afköst í rekstri fyrirtækja. Þátttakendur voru mjög ánægðir með námskeiðið og allir töldu sig geta nýtt það sem þeir lærðu.
Kennari var Jón Hreinsson, Fjármálastjóri hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands.

Sjá umsagnir þátttakenda

5.3.2008

Bættu um betur

alm

Verið er að kanna áhuga einstaklinga á raunfærnimati í eftirtöldum greinum:

Blikksmíði                Hársnyrtiiðn
Bifvélavirkjun           Bílamálun            Bílasmíði
Húsasmíði                Málaraiðn            Pípulögnum
Framreiðslu              Kjötiðn               
Matreiðsla                Matartækni
Vinnustaðanám í ljósmyndun
Vinnustaðanám í matreiðslu

29.2.2008

Leon Baird kennir InDesign og Flash

Leon Baird kennir InDesign og Flash námskeið 8.-11. apríl nk. Leon Baird er brautarstjóri margmiðlunar við Southwark College í London. Hann hefur starfað við margmiðlun, umbrot, prentiðnað og hönnun frá 1993 í London. Skrá mig á námskeiðið!

26.2.2008

Stillum hitann hóflega, námskeið Orkuveitu Reykjavíkur

námskeið OR_stillum hitann hóflega_nov.07Í apríl 2007 hleypti Orkuveita Reykjavíkur í samstarfi við Sjóvá Forvarnarhús, Landspítala Háskólasjúkrahús og byggingafulltrúann í Reykjavík af stokkunum átakinu „Stillum hitann hóflega". Markmiðið með átakinu var að fækka brunaslysum af völdum heits neysluvatns og höfða til almennings og fagaðila um hitastýringu á heitu neysluvatni.

26.2.2008

Námskeið í hita- og neysluvatnskerfi

Mynd af námskeiðiÁ námskeiðinu var fjallað um mismunandi hitakerfi þ.e. ofnakerfi, blásarakerfi, geislakerfi og gólfhitunarkerfi. Farið var í val á ofnum og ofnlokum til stýringa ofnakerfa. Fjallað var um varmatap, flutning varma með geislum, leiðni og lofthreyfingu, um uppsetningu tækja og lagna í tækjaklefa. Farið var í val á þrýstijafnara og p-band og kv-gildi kynnt.

20.2.2008

Sveinsbréfaafhending í matvæla- og veitingagreinum

Sveinsbréfaafhending í matvæla- og veitingagreinumSamtals bættust 23 sveinar við hóp fagmanna í matvæla- og veitingagreinum í dag þegar nýsveinar fengu sveinsbréfin sín afhent. Í tilefni sveinsbréfaafhendingar efndi MATVÍS til hófs til heiðurs nýsveinum sem var hin veglegasta.

20.2.2008

Hver sér vefinn þinn? Hádegisfyrirlestur 26. febrúar

 Kristján Már HaukssonHver sér vefinn þinn? er yfirskrift hádegisfyrirlestrar sem Kristján Már Hauksson  flytur þriðjudaginn 26. febrúar. Hann fjallar um nýjustu rannsóknir á því hvernig netnotendur skoða vefi og greinir frá aðferðum til að hámarka leitarniðurstöður leitarvéla. Fjölmörg fyrirtæki nýta sér ekki þá möguleika sem felast í internetinu. Með einföldum aðgerðum má auka notkun vefjanna og þannig ná betri útbreiðslu á veraldarvefnum.

20.2.2008

Bestu aðferðir rekstrar í fullum gangi

bestu adferdir 10 nemendur sitja námskeiðið bestu aðferðir rekstrar sem hófst 19. febrúar. Jón Hreinsson fjármálastjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands kennir nýjust aðferðir í rekstri, hámörkun afkasta, framlegð á vinnustöð, ferla, skipulag og innra verkbókhald svo nokkuð sé nefnt. Þá kennir Jón hvernig snúa má núllstöðu í hagnað.  Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa rekstur á sinni könnu eða hyggjast takast rekstur á hendur á næstunni. Nemendum gefst kostur á lengra námi innan símenntar HR í kjölfarið.  

18.2.2008

Starfsnám í Skotlandi

Þau Craig Thompson frá CATHM hótelstjórnunarskólanum og Wendy Sylvester frá CarinGorm Mountain afþreyingarfyrirtækinu í Skotlandi komu á fund starfsgreinaráðs í matvæla- veitinga- og ferðaþjónusgreinum og kynntu helstu áherslur og áskoranir skoska starfsmenntakerfisins í hótel- og ferðaþjónustugreinum.
WendyogCraig

14.2.2008

Dagur menntunar í ferðaþjónustu

Dagur menntunar í ferðaþjónustu verður haldinn þann 19. febrúar nk. og hefur SAF forgöngu um alla skipulagningu. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra mun fytja ávarp og tveir skoskir fyrirlesarar munu segja frá góðri reynslu tengdri sí- og endurmenntun starfsfólks þar í landi, annars vegar hjá hótelkeðjunni MacDonald og hins vegar hjá afþreyingarfyrirtækinu CairnGorm Mountain í skosku hálöndunum.

Sjá dagskrá fundarins hér.  

12.2.2008

Viltu bæta námstækni þína?

Þann 20. febrúar kl. 16:00-18:00 hefst námskeiðið Bætt námstækni - betri árangur. Á námskeiðinu er lögð áhersla á bættar námsvenjur og aukið skipulag í námi. Til umfjöllunar eru þættir eins og tímastjórnun, áætlanagerð, skipulag, markmiðssetning í námi og framkvæmd markmiða. Ýmsar aðferðir við glósugerð eru kynntar ásamt lestrar- og minnistækniaðferðum. Rætt verður um prófkvíða, próflestur og prófundirbúning. Skráning fer fram í síma: 590-6400.

11.2.2008

Bættu um betur á Norðulandi

Hefur þú áhuga á að ljúka námi í húsasmíði, bifvélavirkjun eða pípulögnum.

 

Bættu um betur er tilraunaverkefni þar sem skoðuð er færni einstaklinga sem hafa unnið í iðngrein sinni í 5 ár. Kannað er hvort að sú færni og þekking samsvarist faggreinum iðnnámsins sem áætlað er að ljúka. 
Komdu á kynningarfund hjá Símey miðvikudaginn 13. febrúar kl. 20:00.  

Nánari upplýsingar veitir Símey í síma 460-5720 og einnig á http://idan.is/radgjof/bub/.

11.2.2008

Námskeið fyrir mannvirkjahönnuði

Námskeið fyrir mannvirkjahönnuði verður haldið dagana 4., 5., 11., 12., 18. og 19. apríl nk.  Umsóknum skal skila til IÐUNNAR fræðsluseturs á sérstöku eyðublaði.

Upplýsingar gefur Birgir Hólm í síma 590 6434.

11.2.2008

Litstýringar með Jóni Sandholt 12. febrúar

Námskeið í Litstýringum fyrir hönnuði, prentara, prentsmiði og aðra áhugasama hefst kl. 09.00 þriðjudaginn 12. febrúar. Á námskeiðinu er fjallað um litstýringar prentgagna. Kennt er í tölvuhúsi Iðnskólans í Reykjavík í stofu 621 frá kl. 09.00 - 15.00 þriðjudaginn 12. febrúar og frá kl. 08.00 - 14.00 fimmtudaginn 14. febrúar.

5.2.2008

Mikil þátttaka á námskeiðum IÐUNNAR - fræðsluseturs

 Á námskeiði hjá Ben WillmoreÁ árinu 2007 voru haldin 196 námskeið á vegum IÐUNNAR - fræðsluseturs, þetta er 58% aukning frá árinu 2006 en þá voru haldin 124 námskeið. Námskeiðin eru allt frá því að vera einföld tölvunámskeið upp í mjög sérhæfð námskeið. Á vegum IÐUNNAR hafa líka verið haldin réttindanámskeið fyrir mannvirkjahönnuði og bílasala.  

Fjöldi þátttakenda á námskeiðum hefur aukist úr 1366 í 1882 eða 37% á milli ára.

Mikill áhugi er á námskeiðum sem haldin eru á þessari önn, þannig að bæta hefur þurft við námskeiðum.

5.2.2008

Verðlaun Iðnaðarmannafélags Reykjavíkur

Hermann og Olafur RagnarHátíð Iðnaðarmannafélagsins í Reykjavík var haldin í Ráðhúsi Reykjavíkur laugardaginn 2. febrúar. Þá voru verðlaunaðir nýsveinar sem náð höfðu framúrskarandi árangri á sveinsprófi. Forseti Íslands hr. Ólafur Ragnar Grímsson afhenti verðlaunin en alls hlutu níu nýsveinar og meistarar þeirra viðurkenningu.

Ágúst Ingi Davíðsson, silfurverðlaun í rafvirkjun.
Ásgeir Páll Gústafsson, silfurverðlaun í rennismíði.
Guðlaugur Sigurgeirsson, silfurverðlaun í húsasmíði.
Hanna Elina Arima, silfurverðlaun í söðlasmíði.
Hermann Geir Rúnarsson, bronsverðlaun  í prentun.
Katrín Jónsdóttir fékk silfurverðlaun í grafískri miðlun. Katrín fékk einnig námsstyrk við Háskólann í Reykjavík.
Krístín Þórsdóttir, bronsverðlaun í hársnyrtiiðn.
Sigurður Guðbrandsson, silfurverðlaun í rafeindavirkjun.
Þorsteinn Árnason, bronsverðlaun í skrúðgarðyrkju. 

29.1.2008

Stemning á vélfræði fyrir bókbindara!

Velfraedi bokbandsÞað var stemning á námskeiðinu ,,Vélfræði fyrir bókbindara" sem stendur yfir um þessar mundir. 15 bókbindarar læra um vélfræði og stýrt viðhald bókbandslína. Hluti af námskeiðinu fjallar um málma og málmþreytu. Það var þó ekki að sjá neina þreytu á þessum tveimur nemendum sem tóku í suðutækin í gær.

28.1.2008

Útskrift bættu um betur

BUB útskriftIÐAN fræðslusetur útskrifaði 3 hópa úr verkefninu Bættu um betur fimmtudaginn 24. janúar. Alls útskrifuðust 54 þátttakendur, 23 úr BUB bílgreinum, 15 úr BUB málaraiðn og 16 úr BUB húsasmíði. Samstarfsaðilar IÐUNNAR fræðsluseturs í verkefnunum voru Fræðslumiðstöð atvinnulífsins, Mímir símenntun, Borgarholtsskóli, Iðnskólinn í Reykjavík og Fjölbrautarskólinn í Breiðholti. Næstu skref hjá þátttakendum er að klára námið og hafa nú þegar margir þeirra sest á skólabekk. Á myndinni má sjá Iðunni og Eddu náms- og starfsráðgjafa Iðunnar fræðsluseturs ásamt Ingólfi úr BUB bílgreinum.

 

 

 

 

24.1.2008

Ferðaþjónusta – Dreifnám

Spennandi verkefni er hafið. Nú hefur farið af stað samvinnuverkefni við Framhaldsskólann í Austur Skaftafellssýslu um nám í ferðaþjónustu fyrir nemendur skólans. Fyrstu námslotunni er lokið og voru móttökurnar fas1frábærar. Fimm staðbundnar lotur verða haldnar og fara fram á FAS og Hótel Höfn, þar sem öll aðstaða er til fyrirmyndar. Nemendahópurinn var skemmtilegur og áhugsamur um ferðaþjónustu og gera miklar væntingar til áfangans. Þau hafa flest öll unnið við ferðaþjónustu og vilja styrkja sig í starfi. Áfanginn verður kenndur í dreifnámi.

23.1.2008

IÐAN fær styrk til námsefnisgerðar

namsefnissjodur afhendingIÐAN fræðslusetur fékk styrk úr námsefnissjóði Samtaka Iðnaðarins að upphæð 2 milljónir króna í dag á menntadegi iðnaðarins. Styrkurinn er til útgáfu ferilbóka í húsasmíði, kjötiðn, blikksmíði og framreiðslu. Þegar hafa ferilbækur verið gefnar út í byggingagreinum, matvælagreinum, málm- og véltæknigreinum auk upplýsinga- og fjölmiðlagreina. Hildur Elín Vignir framkvæmdastjóri IÐUNNAR fræðsluseturs tók við styrknum úr hendi Höllu Boga formanni úthlutunarnefndar námsefnissjóðsins.

Við sama tækifæri var IÐNÚ bókaútgáfu veittur styrkur auk Sýnis og Skjámynda.  

17.1.2008

Grunnnámskeið í Illustrator hefst 29. janúar

Grunnnámskeið í Illustrator hefst 29. janúar. Illustrator er nú að verða aðalteikniforrit atvinnumanna í hönnun og auglýsingagerð. Í CS3 hafa möguleikar forritsins vaxið töluvert frá CS2 og segja má að Illustrator sé grunnur að margvíslegri myndgerð fyrir hreyfiskilti, vef- og prentmiðla.

Á þessu námskeið kennir Höskuldur Harri Gylfason grunnatriðin við Illustrator. Kenndar eru algengustu skipanir og aðgerðir til að vinna með myndir, skreytingar, línur og texta. Farið er í stílsnið og nemendur leysa hagnýt verkefni undir leiðsögn kennara. Með námskeiðinu fylgir kennslubókin ,,Real World Illustrator CS3, industrial strength production techniques". Mælt er með námskeiðinu fyrir alla sem hafa hug á að ná tökum á nýmiðlun á skjá og prent.  ´

Námskeiðið verður haldið 29. janúar, 30. janúar, 5. febrúar og 6. febrúar frá kl. 18.00-22.00 í tölvuhúsi Iðnskólans í Reykjavík. Skráning á www.idan.is og www.pts.is  eða í síma 5906400.

11.1.2008

Fullt á vélfræði fyrir bókbindara

Námskeiðið vélfræði fyrir bókbindara fylltist í gær og því verður ekki tekið við fleiri skráningum í bili. Þeir sem hefðu viljað sækja námskeiðið geta skráð sig á biðlista og verður nýtt námskeið sett upp um leið og fært er.

Námskeiðið hefst á mánudaginn kl. 15 að Gylfaflöt 19. Þátttakendur eru beðnir að mæta tímanlega.

2.1.2008

Spennandi námskeið á vorönn 2008

Fjöldi spennandi námskeiða eru í boði á prenttæknisviði á vorönn 2008. Auk hefðbundinna námskeiða í InDesign og Illustrator verða boðin námskeið í hönnun fyrir farsíma með Mordy Golding. Hann mun einnig halda námskeið í hönnun fyrir mismunandi miðla innan Adobe svítunnar. Þá verða haldin námskeið í litstýringum og prófílum fyrir skjá og prentun auk námskeiðs í lökkun prentgripa. Önninni lýkur í maí með spennandi námskeiði Jespers Clements í umbúðahönnun.

Menn eru hvattir til að skrá sig strax því eingöngu er hægt að taka við takmörkuðum fjölda á hvert námskeið.

Skráning á námskeið prenttæknisviðs er í síma 5906400 og á www.idan.is eða með því að smella á borðann hér til hægri. 


Slóðin mín:

Forsíða

Heim

Forsíða IÐUNNARIDAN.IS

Stjórnborð

Minnka letur Upphaflegt letur Stækka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd