18.12.2008
Réttindi og skyldur nema og meistara
Í ljósi aðstæðna á vinnumarkaði hvetjum við vinnuveitendur til að leita allra leiða til að komast hjá því að segja nemum á námssamningi upp störfum. Vinsamlega kynnið ykkur reglugerð um námssamninga og starfsþjálfun ef áætlað er að segja nema upp störfum. Starfsmenn IÐUNNAR fræðsluseturs veita upplýsingar er varða nema á námssamningi.
Reglugerð um námssamninga og starfsþjálfun nr. 280 frá 1997 með breytingu 423/2000.
18.12.2008
Chris Aires kennir podcasting í mars
18.12.2008
Rannsókn á afdrifum nemenda og umfangi náms í upplýsinga- og fjölmiðlagreinum
18.12.2008
Sveinsprófssýning málara
Sýning á sveinsprófsstykkjum málara verður næstkomandi laugardag, þann 20. des. kl. 15:00 í aðstöðu Iðnskólans í Hafnafirði að Gjótuhrauni 7.
Þetta er í fyrsta sinn sem að málarar taka sveinspróf eftir að hafa farið gegnum raunfærnimat hjá IÐUNNI fræðslusetri. Allt ferlið gekk mjög vel og undirtektir frábærar. Að þessu sinni eru það sex aðilar sem fóru þessa leið í sínu námi og eru að ljúka núna við sveinspróf. Við óskum þeim hjartanlega til hamingju.
16.12.2008
Námskeið prenttæknisviðs á vorönn 2009 - skráning hafin
8.12.2008
Menntaáætlun Evrópusambandsins
Mannaskipta verkefni IÐUNNAR fræðsluseturs er meðal 9 fyrirmyndarverkefna í Leonardo áætluninni.
Annað hvert ár eru veittar gæðaviðurkenningar fyrir Leonardo mannaskiptaverkefni. Nú er komið að því að veita viðurkenningar fyrir Leonardó fyrirmyndarverkefni fyrir árin 2005 og 2006. Það er sérstök ánægja að tilkynna að IÐAN fræðslusetur er meðal 9 fyrirmyndarverkefna fyrir árin 2005-2006 og verða kynnt sérstaklega nýjum bæklingi Leonardo mannaskiptaverkefna.
Alls uppfylltu 55 verkefni skilyrði fyrir þátttöku.
3.12.2008
Kristín Ragna og Halldór Baldursson kenna á námskeiðum prenttæknisviðs
Kristín Ragna Gunnarsdóttir og Halldór Baldursson munu kenna á námskeiðum prenttæknisviðs á vorönn 2009. Kristín Ragna kennir námskeiðið ,,Frásagnarteikning" en Halldór kennir námskeiðið ,,myndskreytingar". Námskeiðið með Kristínu hefst 12. janúar og verður kennt í húsnæði IÐUNNAR að Skúlatúni 2.
Kennt verður tvisvar í viku á mánudögum og miðvikudögum frá 9.00-12.00. Í febrúar tekur Halldór við og kennir áfram á mánudögum og miðvikudögum út febrúar. Námskeiðin eru ætluð fagfólki í hönnun og grafískri miðlun.
Hægt er að skrá sig hér og með því að hringja í 5906400.
Rétt er að benda á að atvinnulausir félagar FGT og FBM fá ókeypis á námskeið prenttæknisviðs.
Leit
Mynd














