29.2.2008
Leon Baird kennir InDesign og Flash
26.2.2008
Stillum hitann hóflega, námskeið Orkuveitu Reykjavíkur
26.2.2008
Námskeið í hita- og neysluvatnskerfi
20.2.2008
Sveinsbréfaafhending í matvæla- og veitingagreinum
20.2.2008
Hver sér vefinn þinn? Hádegisfyrirlestur 26. febrúar
Hver sér vefinn þinn? er yfirskrift hádegisfyrirlestrar sem Kristján Már Hauksson flytur þriðjudaginn 26. febrúar. Hann fjallar um nýjustu rannsóknir á því hvernig netnotendur skoða vefi og greinir frá aðferðum til að hámarka leitarniðurstöður leitarvéla. Fjölmörg fyrirtæki nýta sér ekki þá möguleika sem felast í internetinu. Með einföldum aðgerðum má auka notkun vefjanna og þannig ná betri útbreiðslu á veraldarvefnum.
20.2.2008
Bestu aðferðir rekstrar í fullum gangi
10 nemendur sitja námskeiðið bestu aðferðir rekstrar sem hófst 19. febrúar. Jón Hreinsson fjármálastjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands kennir nýjust aðferðir í rekstri, hámörkun afkasta, framlegð á vinnustöð, ferla, skipulag og innra verkbókhald svo nokkuð sé nefnt. Þá kennir Jón hvernig snúa má núllstöðu í hagnað. Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa rekstur á sinni könnu eða hyggjast takast rekstur á hendur á næstunni. Nemendum gefst kostur á lengra námi innan símenntar HR í kjölfarið.
18.2.2008
Starfsnám í Skotlandi
14.2.2008
Dagur menntunar í ferðaþjónustu
|
|
|
Dagur menntunar í ferðaþjónustu verður haldinn þann 19. febrúar nk. og hefur SAF forgöngu um alla skipulagningu. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra mun fytja ávarp og tveir skoskir fyrirlesarar munu segja frá góðri reynslu tengdri sí- og endurmenntun starfsfólks þar í landi, annars vegar hjá hótelkeðjunni MacDonald og hins vegar hjá afþreyingarfyrirtækinu CairnGorm Mountain í skosku hálöndunum. |
| Sjá dagskrá fundarins hér. |
12.2.2008
Viltu bæta námstækni þína?
Þann 20. febrúar kl. 16:00-18:00 hefst námskeiðið Bætt námstækni - betri árangur. Á námskeiðinu er lögð áhersla á bættar námsvenjur og aukið skipulag í námi. Til umfjöllunar eru þættir eins og tímastjórnun, áætlanagerð, skipulag, markmiðssetning í námi og framkvæmd markmiða. Ýmsar aðferðir við glósugerð eru kynntar ásamt lestrar- og minnistækniaðferðum. Rætt verður um prófkvíða, próflestur og prófundirbúning. Skráning fer fram í síma: 590-6400.
11.2.2008
Bættu um betur á Norðulandi
Hefur þú áhuga á að ljúka námi í húsasmíði, bifvélavirkjun eða pípulögnum.
Bættu um betur er tilraunaverkefni þar sem skoðuð er færni einstaklinga sem hafa unnið í iðngrein sinni í 5 ár. Kannað er hvort að sú færni og þekking samsvarist faggreinum iðnnámsins sem áætlað er að ljúka.
Komdu á kynningarfund hjá Símey miðvikudaginn 13. febrúar kl. 20:00.
Nánari upplýsingar veitir Símey í síma 460-5720 og einnig á http://idan.is/radgjof/bub/.
11.2.2008
Námskeið fyrir mannvirkjahönnuði
Námskeið fyrir mannvirkjahönnuði verður haldið dagana 4., 5., 11., 12., 18. og 19. apríl nk. Umsóknum skal skila til IÐUNNAR fræðsluseturs á sérstöku eyðublaði.
Upplýsingar gefur Birgir Hólm í síma 590 6434.
11.2.2008
Litstýringar með Jóni Sandholt 12. febrúar
5.2.2008
Mikil þátttaka á námskeiðum IÐUNNAR - fræðsluseturs
Fjöldi þátttakenda á námskeiðum hefur aukist úr 1366 í 1882 eða 37% á milli ára.
Mikill áhugi er á námskeiðum sem haldin eru á þessari önn, þannig að bæta hefur þurft við námskeiðum.
5.2.2008
Verðlaun Iðnaðarmannafélags Reykjavíkur
Hátíð Iðnaðarmannafélagsins í Reykjavík var haldin í Ráðhúsi Reykjavíkur laugardaginn 2. febrúar. Þá voru verðlaunaðir nýsveinar sem náð höfðu framúrskarandi árangri á sveinsprófi. Forseti Íslands hr. Ólafur Ragnar Grímsson afhenti verðlaunin en alls hlutu níu nýsveinar og meistarar þeirra viðurkenningu.
Ágúst Ingi Davíðsson, silfurverðlaun í rafvirkjun.
Ásgeir Páll Gústafsson, silfurverðlaun í rennismíði.
Guðlaugur Sigurgeirsson, silfurverðlaun í húsasmíði.
Hanna Elina Arima, silfurverðlaun í söðlasmíði.
Hermann Geir Rúnarsson, bronsverðlaun í prentun.
Katrín Jónsdóttir fékk silfurverðlaun í grafískri miðlun. Katrín fékk einnig námsstyrk við Háskólann í Reykjavík.
Krístín Þórsdóttir, bronsverðlaun í hársnyrtiiðn.
Sigurður Guðbrandsson, silfurverðlaun í rafeindavirkjun.
Þorsteinn Árnason, bronsverðlaun í skrúðgarðyrkju.
Leit
Mynd













