20.4.2008
Bronsverðlaun í Norrænu nemakeppninni
Norræna nemakeppnin í matreiðslu og framreiðslu fór fram dagan 18. - 20. apríl í Odense í Danmörku. Fimm lönd taka þátt í keppninni eða Noregur, Svíþjóð, Finnland, Danmörk og Ísland. Löng hefð er fyrir keppninni en hún hófst fyrir 27 árum. Keppnin var hörð að þessu sinni. Ísland lenti í þriðja sæti í keppni matreiðslunema og í fimmta sæti í keppni framreiðslunema.
19.4.2008
Jóhann Geir og Arnar Már sigruðu!
Þeir Jóhann Geir Úlfarsson, nemi í grafískri miðlun á Expo og Arnar Már H. Guðmundsson, nemi í ljósmyndun við Iðnskólann í Reykjavík fóru með sigur af hólmi á Íslandsmóti iðngreina sem lauk í Laugardalshöll í dag. Dómnefnd sem skipuð var þeim Kalman le Sage de Fontenay, Hirti Guðnasyni og Birni M. Sigurjónssyni valdi milli fjögurra verkefna. Dómarastörfin voru óvenju snúin þar sem úrlausnir keppenda voru mjög jafnar að gæðum. Greinilegt er að þarna eru einbeittir og hæfileikaríkir nemendur á ferð. Allir keppendur fengu glaðning frá prenttæknisviði að lokinni drengilegri og spennandi keppni.
Á myndinni eru frá vinstri: Jóhann Geir Úlfarsson (sigurvegari í grafískri miðlun), Ólafur Tómas Guðbjartsson nemi í grafískri miðlun, Tinna Ósk Grímarsdóttir nemi í grafískri miðlun, Ólöf Dómhildur Jóhannsdóttir nemi í ljósmyndun, Arnar Már H. Guðmundsson (sigurvegari í ljósmyndun), Viktor Örn Guðlaugsson nemi í ljósmyndun, Silja Rut Thorlacius nemi í ljósmyndun og Tinna Ásgeirsdóttir nemi í grafískri miðlun.
19.4.2008
Taugarnar þandar
Það var allt á suðupunkti á Íslandsmóti iðngreina um hádegið í dag, þegar keppendur í upplýsinga- og fjölmiðlagreinum voru að ljúka keppni. Þær Tinna Ósk Grímarsdóttir og Silja Rut Thorlacius voru að minnsta kosti spenntar að sjá þegar Jón Sandholt aðstoðaði þær við að skila verkefninu. Nú er spennandi að sjá hver fer með sigur af hólmi. Úrslit verða kynnt kl. 16.30 í dag laugardag.
18.4.2008
Íslandsmót iðngreina sett í dag!
Iðnaðarráðherra, Össur Skarphéðinsson, setti Íslandsmót iðngreina kl. 11.00 í dag, 18. apríl í anddyri Laugardalshallarinnar á annarri hæð. Íslandsmótið er nú árviss viðburður þar sem iðnnemar þreyta keppni í sínum faggreinum. Alls keppa um 80 nemar úr 20 greinum. Mótið stendur yfir 18. og 19. apríl. Verðlaunaafhending verður kl. 16.30 19. apríl. Dagskrá mótsins er hér.
Aðgangur er ókeypis og eru allir hvattir til að fylgjast með spennandi og skemmtilegri keppni.
17.4.2008
Verk og vit 2008
IÐAN fræðslusetur kynnir starfsemi sína á sýningunni Verk og vit 2008 sem tileinkuð er byggingariðnaði, skipulagsmálum og mannvirkjagerð. Þeir sem leggja leið sína til okkar á svæði C12 geta tekið þátt í skemmtilegu netfangahappdrætti. Gestir skilja eftir netföngin sín og þegar sýningunni lýkur verða fimm netföng dregin út. Hinir heppnu fá gjafabréf að upphæð 50.000 krónur. Gjafabréfið gildir sem greiðsla upp í einhver hinna fjölmörgu námskeiða á vegum IÐUNNAR fræðsluseturs.
15.4.2008
Starfsfólk IÐUNNAR skoðar nýja húsnæðið
Starfsfólk IÐUNNAR fór mánudaginn 14.apríl í skoðunarferð í Skúlatún 2 en þangað mun starfssemin flytjast í byrjun júní. Eins og myndin gefur til kynna eru framkvæmdir við breytingar þegar hafnar og miðar verkinu nokkuð vel. Mikil eftirvænting er meðal starfsfólks eftir nýju húsnæði og var skoðunarferðin vel heppnuð í alla staði.
14.4.2008
Úthlutun úr starfsmenntasjóði félagsmálaráðuneytisins 2008
Starfsmenntaráð félagsmálaráðuneytisins hefur úthlutað rúmlega 46 milljónum króna úr starfsmenntasjóði til 32 verkefna, vegna ársins 2008.
IÐAN fræðslusetur fékk úthlutað styrkjum fyrir tvö rannsóknarverkefni, eitt á prenttæknisviði og annað á matvæla- og veitingasviði. Auk þess styrki fyrir fimm verkefni á vegum IÐUNNAR.
10.4.2008
Fræðslufundur - Sveinsprófsnefndir
Skráning fer fram til og með mánudeginum 5. maí í síma 590 6400. Nánari upplýsingar veitir Helen Williamsdóttir Gray í síma 594 4023. Einnig má senda tölvupóst á hwg@idan.is (sjá auglýsingu)
7.4.2008
Úthlutun úr AKK, styrktar- og menningarsjóði vélstjóra og vélfræðinga
Á aðalfundi VM fékk málm- og véltæknisvið IÐUNNAR úthlutað 1,8 milljón króna til þess að smíða tvö kennslutæki í kæli- og frystivélatækni.
Samkvæmt reglugerð evrópusambandsins og væntanlegra undirreglugerða verða gerðar strangar kröfur til þeirra sem vinna við kæli- og frystitæki. Þessi nýi tækjabúnaður verður m.a. notaður til þess að sinna þessum kröfum.
Úthlutun þessi kemur að góðum notum og er til þess fallin að styrkja málm- og véltæknisvið IÐUNNAR á sviði kæli- og frystivélavirkjunar verulega.
4.4.2008
Vel heppnað námskeið fyrir kjötiðnaðarmenn
Kjötmeistararnir Jens Munch og Jan Olsen kynntu aðferðir við framleiðslu á soðnum og hráverkuðum kjötvörum á umfangsmiklu námskeiði fyrir kjötiðnaðarmenn um helgina. Þemað var framleiðsla á Ítölskum kjötvörum, s.s. á paté, skinkum, salami, pylsum bæði soðnum og hráverkuðum, grillpylsum o.s.frv. Samtals tóku yfir 30 kjötiðnaðarmenn þátt í námskeiðinu sem heppnaðist mjög vel og var haldið í samstarfi við Ísam og AVO.
Leit
Mynd














