Beint á leiðarkerfi vefsins

10.12.2009

Sveinspróf í matvæla- og veitingagreinum

Baksturh09Sveinspróf í matreiðslu, framreiðslu og bakaraiðn standa yfir dagana 8. - 10. desember. Prófin eru haldin í Hótel- og matvælaskólanum í Kópavogi. Samtals þreyta 24 nemendur sveinspróf í greinunum að þessu sinni.   

8.12.2009

Sveinspróf í málaraiðn

Sveinsprófi í málaraiðn sem halda átti í janúar hefur verið frestað fram á vor. Nánari tímasetning auglýst síðar.

5.12.2009

Auglýsing um sveinspróf

Umsóknarfrestur fyrir sveinspróf í matvælagreinum, húsasmíði og pípulögnum var til 1. nóvember.

Umsóknarfrestur fyrir sveinspróf í málaraiðn, bílgreinum, málmiðngreinum, hársnyrtiiðn og snyrtifræði var til 1. desember.

30.11.2009

IÐAN fræðslusetur hlaut Starfsmenntaverðlaunin 2009

StarfmenntaverðlauninStarfsmenntaverðlaunin voru afhent í tíunda sinn föstudaginn 27. nóvember síðastliðinn. Forseti Íslands hr. Ólafur Ragnar Grímsson afhenti verðlaunin en þau hlutu: Í flokki fyrirtækja; Securitas fyrir fræðslustarf fyrirtækisins þar sem öryggisvarðanám fær sérstaka viðurkenningu, í flokki  skóla og fræðsluaðila; IÐAN fræðslusetur fyrir fjölbreytt fræðslustarf þar sem raunfærnimat fær sérstaka viðurkenningu og í flokki félagasamtaka og einstaklinga  Stjórnvísi fyrir faghópastarf.

20.11.2009

Raunfærnimat í fréttum

Með raunfærnimati er færni og þekking einstaklings skoðuð, styrkleikarnir kortlagðir og metnir á móti áföngum í Aðalnámsskrá viðkomandi greinar. Inntökuskilyrði í raunfærnimat er: 25 ára lífaldur og 60 mánaða staðfestur vinnutími í viðkomandi iðngrein. Þrettán iðngreinar hafa verið í raunfærnimati. Fréttin

20.11.2009

Hannað í málm lokið

HÍM  hópurinnHannað í málm lauk með sýningu þátttakenda á smíðisgripum sínum og hönnun fimmtudaginn 19. nóvember í IÐUNNI fræðslusetri.  Fjöldi gesta lagði leið sína á sýninguna þar sem þátttakendur greindu frá verkefninu og reynslu sinni af því að taka þátt í því.  Verkefnið hófst 1. maí s.l. og hefur því staðið í sex mánuði.

Þátttakendum var skipt í tvo hópa sem unnu með Járnsmiðju Óðins að hönnun Detox stól og Teknís að hönnun hliðgrinda fyrir Norðurmýri í Reykjavík.  Teikningar og prótótýpur má sjá næstu daga hjá IÐUNNI að Skúlatúni 2.  (Á mynd f.v. Jósef Gíslason, Katrín Jónsdóttir, Óðinn Jónsson vélsm. Óðins, Matthildur Jóhannsdóttir, Arnar Jónsson, Þorleifur Eggertsson og Jón Þór Sigurðsson frá Teknís).

18.11.2009

Námskeið í niðurlögn og meðhöndlun steypu.

Steinsteypufélagið, í samstarfi við IÐUNA fræðslusetur, heldur þriðjudaginn 24.nóvember kl 8:30 til 12:30 námskeið í meðhöndlun og niðurlögn steypu. Leiðbeinendur verða helstu helstu sérfræðingar á þessu sviði á Íslandi.  Námskeiðið er haldið á Nýsköpunarmiðstöð Íslands og er opið fyrir alla en einkum ætlað þeim sem meðhöndla steypuna á byggingastöðum. Markmiðið er að þáttakendur öðlist skilning á steypu og meðhöndlun hennar og læri réttu vinnubrögðin við hana.

10.11.2009

Völundarverk - Reykjavík, fyrsta námskeiði lokið

Fyrsta námskeiði verkefnisins Völundarverk - Reykjavík lauk sl. föstudag 6. nóvember.  Efnt var til samkomu á Árbæjarsafni í lok dagsins þar sem þátttakendur fengu afhentar viðurkenningar frá IÐUNNI fræðslusetri og bókina Íslensk byggingarfleifð.  Óskar Bergsson formaður stjórnar Völundarkverks, Margrét Leifsdóttir formarður verkefnisstjórnar og fulltrúi þátttakenda, Finnbogi Már Guðmundsson fluttu ávörp. 

5.11.2009

IÐAN fræðslusetur vinnur með Vinnumálastofnun og býður atvinnuleitendum í viðtal hjá náms- og starfsráðgjafa

Atvinnuleitendur geta á grundvelli þessa samstarfs átt von á að vera kallaðir til skylduviðtals á vegum IÐUNNAR, en ekki eingöngu hjá Vinnumálastofnun eins og áður hefur verið.

3.11.2009

Hönnuðu Detox stól og hliðgrindur!

Þann 1. maí hófst  tilraunaverkefnið Hannað í málm, með stuðningi Starfsmenntasjóðs.
IÐAN  fræðslusetur setti upp tvo tilraunahópa hönnuða í atvinnuleit, sem störfuðu  með málmiðnfyrirtækjunum Járnsmiðju Óðins og Teknís.
Verkefnið var að  endurhanna smíðisgrip úr málmi og koma honum í framleiðslu og á markað. Það heppnaðist. Annar hópurinn hannaði Detox stól. Hinn hópurinn  hannaði nútímalegar og töff hliðgrindur.

Lokakynning á niðurstöðum verður 19. nóvember kl. 17.00 í IÐUNNI Skúlatúni 2.
Verkefnið var styrkt af Starfsmenntasjóði og var útnefnt  fyrirmyndarverkefni ársins 2009 af sjóðnum.

3.11.2009

Raunfærnimat í húsasmíði

Nú er að hefjast raunfærnimat í húsasmíði. Þeir sem hafa áhuga eru hvattir til að hafa samband sem allra fyrst. Uppfylla þarf eftirfarandi skilyrði: 25 ára lífaldur og 60 mánaða vinnu í greininni - staðfest með opinberum gögnum (lífeyrissjóðsyfirlit).

23.10.2009

Breytingar á sviðsstjórn prenttæknisviðs

Á síðasta sviðsstjórnarfundi prenttæknisviðs létu þeir Sveinbjörn Hjálmarsson og Kristján G. Bergþórsson af setu í sviðsstjórn. Í þeirra stað koma Sölvi Sveinbjörnsson og Guðbrandur Magnússon.

Þeim Sveinbirni og Kristjáni voru þökkuð vel unnin störf í þágu prentiðnaðar á Íslandi en þeir hafa gegnt trúnaðarstörfum fyrir iðnaðinn í hartnær tvo áratugi. 

Stjórn prenttæknisviðs býður þá Sölva og Guðbrand velkomna. Guðbrandur er framkvæmdastjóri Landsprents og hefur áratuga reynslu af rekstri í prentiðnaði. Sölvi hefur nýtekið við framkvæmdastjórn Umslags og er því fulltrúi ungu kynslóðarinnar í prentiðnaði. 

12.10.2009

Völundarverk - Reykjavík, fyrsta námskeiðið hafið

Fyrsta námskeið Völundarverks - Reykjavíkur hófst í morgun á Árbæjarsafni.  Námskeiðið sitja 18 þátttakendur, 16 húsasmiðir og 2 arkitektar.  Námskeiðið sem stendur í 4 vikur er bæði bóklegt og verklegt.  Bóklegi hlutinn verður kenndur í Kornhúsinu í Árbæjarsafni en verklegi hlutinn mun að mestu fara fram á hverfismiðstöð Reykjavíkurborgar á Ártúsnshöfða.  Á námskeiðinu verður farið í gegnum sögu húsagerðar fyrri tíma og þátttakendum kennt verklag og handverk við viðgerðir á gömlum timburhúsum.  Verkefnið er átaksverkefni í samstarfi Reykjavíkurborgar, Vinnumálastofnunar, Húsafriðunarnefndar, Árbæjarsafns og Iðunnar fræðsluseturs. 

6.10.2009

Rúmlega 200 hafa setið RGB námskeið

Þátttakendur á RGB námskeiðum Ólafs Brynjólfssonar eru nú komnir yfir 200. Góður rómur er gerður að námskeiðunum og er ljóst að þessi nýbreytni mun ganga í gegn af miklum krafti. Fyrirtæki í prentiðnaði hafa tekið Ólafi með kostum og kynjum og augljóst mál að mikill sparnaður hlýst af breyttu vinnulagi auk þess sem sparnaður er þó nokkur í farfagjöf. Þeir sem vilja komast á RGB námskeið gera best í því að hafa samband við Björn M. Sigurjónsson sviðsstjóra prenttæknisviðs með því að senda póst á bjorn@idan.is.

 

5.10.2009

Afhending sveinsbréfa á Norðurlandi

Laugardaginn 3. október s.l. stóð Fagfélagið fyrir hófi þar sem nýútskrifaðir sveinar í byggingariðnaði fengu í hendurnar sveinsbréf því til staðfestingar að þeir hafi lokið námi í sinni iðngrein.  Þetta eru nemar sem tóku sveinspróf í desember 2008 og júní 2009.  Hér er um að ræða stærsta hóp sem útskrifaður hefur verið í byggingariðnaði í Eyjafirði á sama tíma. Er þessi stóri hópur dæmi um þann mikla uppgang sem verið hefur í byggingariðnaði á undanförnum árum.Alls útskrifuðust 48 nýsveinar í 4 iðngreinum, 2 húsgagnasmiðir, 31 húsasmiðir,  7 málarar og 8 pípulagningarmenn.  Síðast var sveinspróf í húsgagnasmíði haldið á Akureyri 1989. 

Sveinarnir hafa flestir stundað nám sitt við Verkmennaskólann á Akureyri og fjölbrautarskóla  Sauðárkróks.  Sveinarnir fengu allir útskriftargjöf frá Fagfélaginu og gjafabréf á námskeið hjá Iðunni fræðslusetri

24.9.2009

Völundarverk - umsóknarfrestur framlengdur til 1. október

Laugavegur 6Umsóknarfrestur um þáttöku í Völundarverki - Reykjavíkur, átaksverkefni um endurgerð eldri húsa hefur verið framlengdur til 1. október nk. Gert er ráð fyrir að þátttakendur séu skráðir atvinnuleitendur hjá Vinnumálastofnun.  Verkefnið sjálft er tvíþætt. Annars vegar undirbúningsnámskeið u.þ.b  1 mánuður sem hefst í október og hins vegar tímabundin störf þátttakenda á byggingarstað/teiknistofu að því loknu í 2-5 mánuði. 

Umsóknareyðublað má nálgast hér

21.9.2009

Afhending sveinsbréfa í bygginga- bíl-, málm- og véltæknigreinum

Föstudaginn 18. september sl. fór fram á Grand Hotel afhending sveinsbréfa.  Að þessu sinni fengu sveinsbréf 84 húsasmíðir, 15 pípulagningamenn, 10 múrarar, 23 málarar, 9 bifvélavirkjar, 7 bifreiða- smiðir 4 bílamálarar og 7 vélvirkjar.  Formenn sveinsprófs- nefnda afhentu sveinsbréfin og formenn meistarafélaga í viðkomandi grein afhentu verðlaun fyrir hæstu einkunnir á sveinsprófi.  Fulltrúar IÐUNNAR afhentu öllum nýsveinum gjafabréf á námskeið að eigin vali.

21.9.2009

Starfsmenn GuðjónÓ fá námskeið í RGB vinnuferlinu

Starfsmenn GuðjónÓ fengu námskeið í RGB vinnuferlinu hjá Ólafi Brynjólfssyni sem fer nú milli prentsmiðja og breiðir út erindið. Ólafur fer í gegnum nýja prentprófíla, fer yfir vinnustöðvar í forvinnslunni og stillir skjái þar sem það á við. Vel er tekið á móti Ólafi í hvívetna og er ekki annað að sjá en verkefnið gangi að óskum. Þeir sem óska eftir heimsókn Ólafs hafi samband við Björn í síma 5906400 eða með tölvupósti á bjorn@idan.is.

16.9.2009

Völundarverk - Umsóknarfrestur er til 21. september

Völundarverk-Reykjavík í samvinnu við Vinnumálastofnun, Minjasafn Reykjavíkur og IÐUNA Fræðslusetur auglýsir eftir húsasmiðum og arkitektum í átaksverkefni um endurgerð eldri húsa í Reykjavík. Gert er ráð fyrir að þátttakendur séu skráðir atvinnuleitendur hjá Vinnumálastofnun.  Verkefnið sjálft er tvíþætt. Annars vegar undirbúningsnámskeið u.þ.b  1 mánuður sem hefst í október og hins vegar tímabundin störf þátttakenda á byggingarstað/teiknistofu að því loknu í 2-5 mánuði.  Umsóknarfrestur er til 21. september nk.

Umsóknareyðublað má nálgast hér

14.9.2009

World Skills í Kanada 2009

WorldskillsNú er keppni lokið á World Skills í Kanada 2009 en  fulltrúar IÐUNNAR fylgdust með keppninni sem fór mjög faglega fram í alla staði. Keppnisgleði skein af ungum iðnnemum ekki síst þeim íslensku.

Okkar fólk stóð sig mjög vel og niðurstaðan varð svona:

Kristófer Þorgeirsson keppti í pípulögnum og  lenti í 12. sæti með 505 stig.

Þorbjörg Bergþórsdóttir keppti í hársnyrtiiðn og lenti í 17. sæti með 471 stig.

Stefán Ingi Ingvason keppti í rafvirkjun og lenti í 27. sæti með 472 stig.

Kristófer fékk sérstök fagverðlaun fyrir að vera með meira en 500 stig og einnig með besta árangur Íslendinga. (Best of nation)

 

14.9.2009

Kynningarfundur um Völundarverk

Þriðjudaginn 15. september kl. kl. 13:30 verður haldinn kynningarfundur í húsakynnum Vinnumálastofnunar í Engjateigi 11 á 2. hæð um Völundarverk - Reykjavík. Atvinnuleitendur í röðum húsasmiða og arkitekta sem áhuga hafa á að kynna sér verkefnið eru eindregið hvattir til að sækja fundinn.  IÐAN fræðslusetur er þátttakandi í verkefninu fyrir hönd Samiðnar, Samtaka Iðnaðarins og Meistarafélags byggingamanna.

 Umsóknir um þátttöku í verkefninu er að finna hér.

14.9.2009

RGB námskeið í fullum gangi!

Nemendur á námskeiði Ólafs BrynjólfsÓlafur Brynjólfsson fer nú eins og stormsveipur um fyrirtæki í prentiðnaði og innleiðir nýtt verklag við forvinnslu mynda og litgagna. Aðferðin hefur verið kölluð RGB vinnuflæði og leysir úr vanda þeirra sem hafa glímt við ójafna CMYK vinnslu milli hönnuða, ljósmyndara og prentsmiðja. Vinnuhópur skipaður af lykiltæknimönnum úr prentiðnaði þróaði lausnina sem er líkt við byltinguna sem varð þegar .pdf var innleitt fyrir 10 árum.

Þeir sem vilja fá Ólaf í heimsókn á sinn vinnustað hafa samband við Björn sviðsstjóra prenttæknisviðs IÐUNNAR í síma 5906400 eða með tölvuskeyti á bjorn@idan.is 

(Á myndinni eru ánægðir starfsmenn Svansprents að loknu námskeiði hjá Ólafi).

10.9.2009

Afhending sveinsprófsskírteina í matvæla- og veitingagreinum

Sveinsprófmai09Afhending sveinsprófsskírteina í matvæla- og veitingagreinum fór fram miðvikudaginn 9. september. Prófin fóru fram í maí sl. en samtals luku 31 sveinsrófi. Matreiðslusveinar voru 11, framreiðslumenn 11, bakarar 5 og kjötiðnarmenn samtals 4. Afhendingin fór fram að Stórhöfða 31 í húsakynnum MATVÍS.

8.9.2009

Völundarverk - Reykjavík auglýsir eftir þátttakendum

Völundarverk-Reykjavík í samvinnu við Vinnumálastofnun (VMST), Minjasafn Reykjavíkur og IÐUNA Fræðslusetur auglýsir eftir húsasmiðum og arkitektum í átaksverkefni um endurgerð eldri húsa í Reykjavík. Gert er ráð fyrir að þátttakendur séu skráðir atvinnuleitendur hjá Vinnumálastofnun.  Verkefnið sjálft er tvíþætt. Annars vegar undirbúningsnámskeið u.þ.b  1 mánuður sem hefst í október og hins vegar tímabundin störf þátttakenda á byggingarstað/teiknistofu að því loknu í 2-5 mánuði.  Umsóknarfrestur er til 21. september nk.

 

Umsóknareyðublað má nálgast hér

3.9.2009

Námsvísir haustsins kominn út

Námsvísir haustannar er nú kominn út. Í boði eru margvísleg námskeið og hvetjum við félagsmenn okkar til að athuga framboðið vel og skrá sig á www.idan.is eða í síma 590-6400.

 

Félagsmenn án atvinnu þurfa að sækja vottorð hjá Vinnumálastofnun áður en þeir koma á námskeiðin. Vottorðið gildir sem greiðsla. Við hvetjum ykkur sem eruð án atvinnu að nýta þennan tíma til að viðhalda og byggja ofan á þekkingu ykkar.

 

Námsvísi haustannar er hægt að nálgast hér

 

Bestu kveðjur,

starfsfólk IÐUNNAR fræðsluseturs 

 

31.8.2009

Skipuleg nálgun hugmyndavinnu

Starfsfólki í upplýsinga- og fjölmiðlagreinum býðst nú námskeið í skipulegri nálgun hugmyndavinnu. Námskeiðið hefst mánudaginn 7. september og er kennt á mánudögum og miðvikudögum út september. 

Kristín Ragna Gunnarsdóttir grafískur hönnuður kennir námskeiðið þar sem fjallað verður um aðferðir við að byggja upp hugmyndabanka, og vinna úr hugmyndum við grafísk verkefni. 

Skráning á námskeiðið er í síma 5906400 og hér.

24.8.2009

MANNVIT MIKIÐ - Norræn ráðstefna um fræðslumál fullorðinna

Fræðslunetið Nordiskt nätverk för formell vuxenutbildning stendur fyrir ráðstefnu dagana 10. – 12. nordisk natverkseptember 2009 í Reykjavík  á Hótel Loftleiðum. Dagana 10. – 12. september verður haldin Norræn ráðstefna um fræðslumál fullorðinna. Fræðslunetið Nordiskt nätverk för formell vuxenutbildning tilheyrir Netvärk för Vuxnas lärande(NVL). NVL er samnorrænn vettvangur sem fjallar um menntun fullorðinna og starfar í umboði Norrænu ráðherranefndarinnar. Hægt er að nálgast dagskrána hér.  

17.8.2009

Sveinspróf í blikksmíði

Sveinspróf verða haldin sem hér segir:

Kynningarfundur og skriflegt próf 28. ágúst á Akureyri og í Reykjavík.
Mjög mikilvægt er að umsækjendur mæti til að kynna sér nýja tilhögun prófa.

Verkleg próf 9. og 10. september í Reykjavík. (Breytt frá áætlun)

Verkleg próf verða dagana 18. og 19. september á Akureyri.

17.8.2009

Podcasting með Chris Aires 9. nóvember

Chris Aires kennir podcasting á stuttu námskeiði prenttæknisviðs 9. nóvember næstkomandi. Námskeiðið hefst kl. 13.00 og stendur yfir til kl. 20.00. Podcasting er að verða vinsæl aðferð við miðlun dagskrárefnis og allir sem starfa við framleiðslu dagskrárefnis, hvort sem er í fjölmiðlum eða skólum ættu að hafa Podcasting á valdi sínu. Podcasting hentar hvort tveggja fyrir hljóðvarp og sjónvarp.

Podcasting er afar einfalt og fljótlegt að læra. Tæknin er sáraeinföld, aðeins þarf hljóðnema eða upptökuvél, tölvu og nettengingu. Hér er tengill á einfalda útskýringu á podcasting af www.youtube.com.  Verði fyrir námskeiðið er stillt í hóf eða aðeins kr. 5.100 fyrir aðildarfélaga IÐUNNAR.

14.8.2009

Sveinspróf í ljósmyndun

Sveinspróf í ljósmyndun verða haldin í vikunni 5.- 9. október n.k. ef næg þátttaka fæst.

Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur til 5. september.

Með umsókn skal leggja fram afrit af námssamningi, lífeyrissjóðsyfirlit og burtfararskírteini frá skóla.

Leyfisgjald próftaka er kr. 5.500.

Umsóknareyðublöð má nálgast  heimasíðu okkar og á skrifstofunni.

10.8.2009

Hannað í málm - AutoCad námskeið hafið!

Hannað í málm nemendur AutoCadÞeir voru fullir einbeitingar nemendur á AutoCad námskeiði Finns Fróðasonar í morgun. Námskeiðið er haldið sérstaklega fyrir þátttakendur í Hannað í málm. Alls taka þrjú fyrirtæki og 8 hönnuðir þátt í verkefninu en verkefnið er að endurhanna smíðisgrip úr málmi. Verkefnið er styrkt af Starfsmenntasjóði.

6.8.2009

Hannað í málm - næsta námskeið fyrir hönnuði og málmsmiði

Námskeið í AutoCad Inventor og útflattningum verður haldið 10.,12., 13. og 25. ágúst frá 9.00 - 17.00 alla dagana, hér í Skúlatúni 2.

Með námskeiðinu fylgir ókeypis nemendaaðgangur að AutoCad í 13 mánuði.

Námskeiðið er mjög veglegt og þátttakendum í HÍM að kostnaðarlausu en alla jafna kostar sæti á slíku námskeiði milli 150 og 200 þ. kr.
Málmiðnfyrirtækin sem taka þátt eiga sitt sæti á námskeiðinu. Sætin eru takmörkuð því aðeins komast 12 að í einu.
Þátttaka tilkynnist á gylfi@idan.is

Samhliða þessu verður farið í gegnum framleiðslutækni og suðutækni málma. Dagsetningar nánar tilkynntar síðar.

26.6.2009

Sautján nýsveinar fá sveinsbréf í bókiðngreinum

Sautján nýsveinar í bókiðngreinum fengu sveinsbréf afhent við hátíðlega athöfn þann 19. júní sl. Að þessu sinni luku 9 sveinar prófi í grafískri miðlun, 7 í prentun og 1 í bókbandi. Ásta María Sigmarsdóttir og Helgi Ó. Víkingsson hlutu viðurkenningar fyrir afburðaárangur á sveinsprófi. Athöfnin var hin hátíðlegasta að vanda og fór fram í blíðskaparveðri við góðar undirtektir. Tónlist var leikin, gestir nutu veitinga og gerður var góður rómur að athöfninni í hvívetna. Björn M. Sigurjónsson sviðsstjóri prenttæknisviðs afhenti nýsveinum blóm og gjafabréf á námskeið frá IÐUNNI fræðslusetri. Formenn sveinsprófsnefnda, þeir Tryggvi Þór Agnarsson, Hjörtur Guðnason og Theodór Guðmundsson afhentu sveinsbréf og Georg Páll Skúlason og Haraldur Dean Nelson veittu verðlaun fyrir framúrskarandi árangur á sveinsprófi.

26.6.2009

SOFIA verkefnið á Íslandi

SOFIA wshopSOFIA verkefnið sem er samvinnuverkefni Íslands, Frakklands og Spánar á vegum Leonardo starfsmenntaáætlunar Evrópusambandsins hélt vinnustofu á Íslandi 22.-24. júní sl. SOFIA verkefnið er yfirfærsluverkefni á rafrænum kennsluaðferðum sem CNA CEFAG skólinn í París hefur þróað á undanförnum áratug. Þátttakendur í vinnustofunni komu frá ITA sem er símenntamiðstöð í Aragon, CNA CEFAG skólanum í París , Borgarholtsskóla, Tækniskólanum og Flensborgarskóla. Verkefnið er tæplega hálfnað og felur í sér umtalsverðar nýjungar á sviði rafrænna kennsluhátta. Strax næsta haust má þess vænta að afurðir vinnustofunnar verði teknar til prófana í þremur skólum á Íslandi. Á myndinni eru Marie Rouffort (FR), Manuel Castro (FR), Hákon Már Oddson (IS), Brynhildur Björnsdóttir (IS) og Antoine Pierru (IS). Auk þeirra tóku þátt Elena Pallares (ESP), Reyes (ESP), Halldór Árni Sveinsson (IS), Alfonso Alvarez (ESP), Rosana Monton (ESP) og Björn M. Sigurjónsson (IS) sem stýrir verkefninu fyrir hönd prenttæknisviðs IÐUNNAR.

25.6.2009

Raunfærnimat á Akureyri og Ísafirði

Síðustu vikur hafa 34 einstaklingar lokið raunfærnimati í ýmsum greinum á Akureyri og Ísafirði. Í tilefni þess var haldin smá útskrift. Flestir þátttakendur hafa skráð sig í nám í haust.

 utskrift_akureyri utskrift_isafjordur

22.6.2009

Afhending sveinbréfa í málmiðngreinum

Afhending viðurkenningaVM - Félag vélstjóra og málmtæknimanna og Málmur - samtök fyrirtækja í málm- og skipaiðnaði, afhentu sveinsbréf í málmiðngreinum. Allir nýsveinar fengu gjafabréf frá IÐUNNI fræðslusetri sem gildir sem inneign á námskeið hjá IÐUNNI.
Sveinsbréfin voru afhent í hófi sem haldið var fyrir útskriftarnema og maka í húsakynnum VM.
Afhentar voru viðurkenningar fyrir góðan námsárangur. Þær hlutu Stefán Friðriksson sem útskrifaðist úr rennismíði og Hákon Gunnarsson sem útskrifaðist úr vélvirkjun. Viðurkenningarnar afhentu Guðmundur Ragnarsson, formaður VM og Ingólfur Sverrisson fyrir hönd Málms.

4.6.2009

Afhending sveinsbréfa í bókiðngreinum 19. júní

Afhending sveinsbréfa í bókiðngreinum fer fram þann 19. júní kl. 17.00 að Hverfisgötu 21, í húsi FBM. Athöfnin verður sem fyrr með hátíðlegu sniði, viðurkenningar verða veittar fyrir framúrskarandi námsárangur og gestir njóta veitinga.  Þá má vænta tónlistaratriða og myndatökur verða með hefðbundnu sniði. Nýsveinar, aðstandendur þeirra, meistarar og aðrir velunnarar eru hvattir til að njóta stundarinnar með nýju fagfólki í bókiðngreinum.

3.6.2009

Norrænt bókband opnar um helgina

Jam hópurinn (hópur norrænna bókbindara sem stundar listband á bókum) opnar sýningu á norrænu listbókbandi í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu 5. júní kl. 16.00. Frú Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi forseti Íslands opnar sýninguna. Á sýningunni getur að líta listbókband norrænna bókbindara. Hver þátttakandi fær handrit að bók til að binda inn á sem fegurstan hátt og afrakstur þeirrar vinnu verður til sýnis í Þjóðmenningarhúsinu fram eftir sumri. Jam hópurinn hefur starfað um árabil og telur á annan tug íslenskra listbókbindara.

29.5.2009

Vinnustaðanám á Norðurlöndunum

IÐAN fræðslusetur hefur tekið að sér í umboði Menntamálaráðuneytisins að annast undirbúning, framkvæmd  og úthlutun styrkja frá Norrænu ráðherranefndinni til nemenda í iðn-og starfsnámi ásamt eftirliti með gerð og framkvæmd samninga við nemendur eftir atvikum. Hægt er að nálgast nánari upplýsingar á http://www.idan.is/styrkir/

28.5.2009

Umfang náms og afdrif nemenda í upplýsinga- og fjölmiðlagreinum

Starfsgreinaráð í Upplýsinga- og fjölmiðlagreinum hefur látið Rannóknir og greiningu ehf kanna umfang náms og afdrif nemenda í upplýsinga- og fjölmiðlagreinum. Niðurstöður þeirrar rannsóknar verða kynntar á fundi SUF á Grand Hótel Reykjavík fimmtudaginn 4. júní kl. 15.00. Sigríður Kristín Hrafnkelsdóttir kynnir niðurstöður rannóknarinnar og ráðgjafa Alta stjórna verkefnum og hópavinnu í kjölfarið. Björn M. Sigurjónsson sviðsstjóri prenttæknisviðs Iðunnar setur fundinn. Fundarslit eru áætluð um kl. 16.30. Niðurstöður fundarins ásamt samantekt könnunarinnar verða gefnar út í kjölfarið. Þess er vænst að gögnin nýtist við endurritun námskrár í upplýsinga- og fjölmiðlagreinum. Verkefnið er styrkt af Starfsmenntasjóði.

26.5.2009

Frábær reynsla – írskt hráefni í hávegum.

nemarognám_sveinn

Sveinn Pálsson matreiðslunemi á Lækjarbrekku er nýkomin heim frá Írlandi. Hann hlaut Leonardo da Vinci mobility styrk  til að stunda hluta af sínu námi á Nuremore http://www.nuremore.com/monaghan-restaurants . Að hans sögn var starfsfólkið frábært og yfirmatreiðslumaðurinn Raymond McArdle mjög fær. Einstök upplifun!

18.5.2009

Hannað í málm hefst!

Hannað í málm hefst nú eftir nokkurn undirbúningstíma. Fyrsti fundur með þátttakendum, umsjónarmönnum og fyrirtækjum verður haldinn mánudaginn 25. maí kl. 15 hér að Skúlatúni 2. Þeir sem enn hafa áhuga á að taka þátt í verkefninu geta skráð sig. Eitt pláss er enn laust. Áhugasömum er bent á að senda póst til Björns M. Sigurjónssonar á bjorn@idan.is.

8.5.2009

Útskrift úr raunfærnimati

Útskrift BUB vor 2009Útskrift úr raunfærnimati var haldin fimmtudaginn 7.mai. Að þessu sinni útskrifuðust 32 úr raunfærnimati í húsasmíði, 9 úr málaraiðn, 8 úr vélvirkjun og 3 úr stálsmíði. Þetta var í fyrsta skipti sem IÐAN fræðslusetur vinnur að raunfærnimati í stálsmíði en áður hefur verið unnið að raunfærnimatsverkefnum í hinum greinunum. Á meðfylgjandi mynd má sjá hluta af þátttakendum sem kláruðu raunfærnimatið.

7.5.2009

Fagnámskeið í matvælagreinum, brúargerð yfir í formlegt nám.

Fagnamskeið2Fagnámskeiði II lauk núna í vikunni með útskrift. Að þessu sinni luku samtals 15 þátttakendur 60 kennslustunda námi með formlegu námsmati. Fagnámið er metið til eininga og gefur styttingu á formlegu námi í matvælagreinum en námsleiðin er hugsuð sem brúargerð yfir í formlegt nám í greinunum. Þátttakendur hafa nú lokið samtals 120 kennslustunda námi stefna á áframhaldandi nám við Hótel- og matvælaskólann. Mikill hugur er í hópnum að halda áfram námi. Hópurinn sem útskrifaðist núna stefnir á raunfærnimat matartækna sem verður haldið á næstunni. IÐAN fræðslusetur mun annast raunfærnimatið.   

30.4.2009

Starfsmenn hjá Síld og fisk ljúka námskeiði

Sildogfisk1Starfsmenn í kjötvinnslu fyrirtækisins Síld og fiskur ehf voru að ljúka námskeiðinu Gæðakjöt. Námskeiðið fjallar um meðferð matvæla, innra eftirlit og örverufræði. Samtals luku 48 starfsmenn námskeiðinu. Nokkur aldursmunur var á yngsta og elsta þátttakendanum á námseiðinu eða 58 ár. Margrét Erla Friðjónsdóttir er 78 ára og Justina Namirowska  20 ára en þær tóku á móti skírteinum sínum við útskrift í Hótel- og matvælaskólanum í gær.  

29.4.2009

Auglýsing um sveinspróf

Sveinspróf í bifreiðasmíði, bifvélavirkjun, bílamálun, blikksmíði, bókbandi, dúklögnum og veggfóðrun, gull- og silfursmíði, hársnyrtiiðn, húsgagnasmíði, netagerð, prentsmíð - grafískri miðlun, prentun, rennismíði, snyrtifræði, skósmíði, stálsmíði, söðlasmíði og  verða haldin í maí - júní ef næg þáttaka fæst.

Umsóknarfrestur fyrir ofangreind próf var til 1. maí.

Sveinspróf í vélvirkjun og ljósmyndun verða haldin í október.

Umsóknarfrestur fyrir ofangreind próf er til 1. júní.  

27.4.2009

Námskeið í hönnun bókakápa í maí

Kristín Ragna Gunnarsdóttir kennir námskeið í hönnun bókakápa í maí. Námskeiðið verður með sama sniði og önnur námskeið í hönnun sem verið hafa í vetur á vegum prenttæknisviðs. Kennt verður á mánudögum og fimmtudögum frá 9-12 frá og með öðrum mánudegi í maí.

Félag bókaútgefenda hefur góðfúslega látið í té handrit til að vinna með þannig að þátttakendur spreyta sig á raunhæfu verkefni, við að hanna bókakápur á handrit sem áætlað er að komi út um næstu jól. Skráning sem fyrr á hlekkin hér til vinstri og í síma 5906400.

24.4.2009

Enn nokkur pláss laus á hannað í málm!

Spútnik verkefnið Hannað í málm rennur í gang í annarri viku maí mánaðar. Enn eru örfá pláss laus í verkefnið en leitað er að hönnuðum, prentsmiðum, grafískum miðlurum, grafískum hönnuðum og öðrum sem hafa fagréttindi í hönnun en vilja víkka út atvinnumöguleika sína  með þekkingu á málmiðnhönnun. Verkefnið er hönnuðum að kostnaðarlausu en mun standa yfir í eina 6 mánuði með viðveru á námskeiðum að jafnaði 2svar í viku. Ekki verður kennt í júlí-mánuði og meginþungi verkefnisins áætlaður í ágúst og september.

Best er að skrá sig með því að senda póst á bjorn@idan.is eða hringja í 5906400

24.4.2009

Ben Willmore kennir Photshop 30. apríl nk.

Hinn geðþekki Íslandsvinur og Photoshop-gúrú Ben Willmore kennir á undraforritið Photoshop fimmtudaginn 30. apríl næstkomandi. Námskeiðið hefst kl. 09.00 á Grand Hótel Reykjavík við Sigtún og stendur yfir til kl. 17.00. Ben Willmore fer sérstaklega yfir nýjungar í CS4 (sjá eldri frétt) og mælst er til þess að þátttakendur hafi fartölvur sínar meðferðis. Ath. ekki er kennt í tölvustofu heldur er um sýnikennslu að ræða. Ben hefur áralanga reynslu af kennslu á photoshop og er einn af þekktari photoshop-gúrúum heims. Skráning á www.idan.is eða með því að smella á námskeið hér til vinstri og í síma 5906400.

18.4.2009

Norræna nemakeppnin 2009

NNLundi09Norræna nemakeppnin í matreiðslu og framreiðslu fór fram dagana 17. - 18. apríl í Lundi í Svíþjóð. Frá Íslandi kepptu í matreiðslu þeir Bjarni Siguróli Jakobsson nemi á Hilton Nordica og Ari Þór Gunnarsson nemi á Sjávarkjallaranum. Í framreiðslu kepptu þeir Ari Thorlacíus nemi á Hilton Nordica og Styrmir Örn Arnarson nemi á Perlunni. Þjálfara nemanna voru þeir Gunnar Rafn Heiðarsson í framreiðslu og Gunnar Karl Gíslason í matreiðslu.  Keppnin var mjög jöfn og hörð. Íslensku nemarnir lentu í þriðja sæti í matreiðslu og fjórða sæti í framreiðslu.

17.4.2009

Aðalfundur IÐUNNAR fræðsluseturs

Stjornin_2Aðalfundur IÐUNNAR var haldinn fimmtudaginn 16. apríl, að Hótel Grand Reykjavík.

Dagskrá fundarins var:
1.   Skýrsla stjórnar
2.   Efnahags- og rekstrarreikningar fyrir liðið fjárhagsár
3.   Áætlun fyrir komandi starfsár
4.   Kosning stjórnar félagsins og löggilts endurskoðanda
5.   Ákvörðun greiðslna til stjórnarmanna fyrir störf þeirra á starfsárinu
6.   Önnur mál

Ingi Bogi Bogason tók við stöðu formanns stjórnar af Finnbirni Hermannssyni.

26.3.2009

Hannað í málm leitar að hönnuðum

Ertu hönnuður, prentsmiður, grafískur hönnuður, grafískur miðlari eða vefhönnuður?
Viltu læra að hanna í þrívídd?
Geturðu unnið í hópi?
Viltu styrkja möguleika þína á vinnumarkaði?
Hannað í málm gæti verið tækifærið þitt.
Hafðu samband við IÐUNA fræðslusetur og taktu þátt í þinni eigin framtíð.

Til að ná sambandi:
Sími IÐUNNAR er 5906400
Netfangið er idan@idan.is
eða
bjorn@idan.is
eða
gylfi@idan.is

22.3.2009

Hannað í málm hlýtur styrk

Félagsmálaráðherra við styrkveitingunaStarfsmenntaráð auglýsti í janúar síðastliðnum eftir umsóknum um styrki til starfsmenntunar í atvinnulífinu. Að þessu sinni var lögð áhersla á gæðaverkefni sem tengjast erfiðri stöðu á vinnumarkaði og nýtast þeim hópum sem misst hafa atvinnu eða eru í sérstakri áhættu með að missa vinnuna.

Áhugaverðasta verkefnið að mati sjóðsins var verkefnið Hannað í málm sem unnið er í samstarfi málm- og véltæknisviðs og prenttæknisviðs IÐUNNAR fræðsluseturs. 

Félagsmálaráðherra Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir afhenti styrkinn og Björn M. Sigurjónsson kynnti verkefnið.

13.3.2009

Menntatorg

IÐAN fræðslusetur tók þátt í Menntatorgi sem haldið var 6.mars í Skeifunni 8. Þar voru kynnt ýmiss úrræði sem eru í boði fyrir þá sem eru í atvinnuleit. Á meðfylgjandi mynd má sjá Eddu og Iðunni náms- og starfsráðgjafa IÐUNNAR fræðsluseturs spjalla við þátttakendur Menntatorgsins.

6.3.2009

Auglýsing um sveinspróf

Sveinspróf í eftirtöldum iðngreinum verða haldin sem hér segir ef næg þátttaka fæst:
Í matreiðslu, framreiðslu, bakaraiðn og kjötiðn í apríl og maí. Umsóknarfrestur var til 1. mars.

Í byggingagreinum, upplýsinga- og fjölmiðlagreinum í maí - júní, umsóknarfrestur  til 1. apríl.

Sveinspróf málmiðngreinum (nema vélvirkjun), bíliðngreinum, snyrtigreinum, kjólasaumi, klæðskurði o. fl. iðngreinum verða haldin í maí - júní. Umsóknarfrestur er til 1. maí.

Sveinspróf í vélvirkjun verður í október 2009, umsóknarfrestur er til 1. júní nk.

3.3.2009

Nigel French kennir InDesign CS4

Nigel French hinn geðþekki englendingur kennir nú námfúsum starfsmönnum úr upplýsinga- og fjölmiðlaiðnaði uppfærslur og nýjungar í InDesign CS4. Ekki var annað að sjá á þátttakendum en þeim hugnaðist tilsögn Nigels vel enda fagmaður á ferð. Námskeiðið spannar tvo daga og lýkur í dag um kl. 20.00

   

26.2.2009

Raunfærnimat

Raunfærnimat byggist á því að meta þá færni og þekkingu sem einstaklingur hefur öðlast á vinnumarkaðnum. Metið er hvort að sú þekking og færni uppfylli viðmið sem sett eru til þess að ljúka flestum námsáföngum námsbrautar. Að raunfærnimati loknu er alltaf a.m.k. 1 önn eftir í skóla og námssamningurinn er skoðaður í kjölfarið. Þátttökuskilyrðin eru 5 ára staðfestur vinnutími í greininni og 25 ára lífaldur.

Áhugasömum er bent á að hafa samband við náms- og starfsráðgjafa IÐUNNAR fræðsluseturs. Nánari upplýsingar um raunfærnimatsferlið er undir náms- og starfsráðgjöf hér á síðunni en einnig á heimsíðu Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins.

17.2.2009

Styrkur vegna kennsluefnis í vinnustaðanámi

Móttaka_styrks_SIÍ dag veittu Samtök iðnaðarins styrki til námsefnisgerðar. Starfsmenntadeild IÐUNNAR fræðsluseturs hlaut styrk vegna námsefnisgerðar fyrir tilsjónarmenn þar sem sérstök áhersla verður lögð á kennslufræði tilsjónarmanna.  

Á myndinni eru styrkþegar ásamt framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins, Jóni Steindóri Valdimarssyni 

5.2.2009

Ánægðir með námskeið um viðhald húsa

namsk_isafjNámskeið í viðhaldi og viðgerðum á húsum á vegum Verkalýðsfélags Vestfirðinga og IÐUNNAR fræðsluseturs var haldið um síðustu helgi. Kennarar á námskeiðinu voru þeir Jón Sigurjónsson og Björn Marteinsson hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Það var mál þátttakenda að námskeiðið hefði verið gagnlegt og myndi nýtast vel, sérstaklega ef endurgreiðsla virðisaukaskatts af endurbótum yrði að veruleika. Einnig höfðu reyndari þátttakendur orð á því að margt fróðlegt hefði komið þar fram. Á laugardeginum var síðan farið í vettvangsferð til Bolungavíkur og framkvæmdirnar við Félagsheimili Bolungarvíkur skoðaðar.

5.2.2009

Norræna nemakeppnin í matreiðslu og framreiðslu.

Framreid09Norræna nemakeppnin í matreiðslu og framreiðslu fer fram dagana 17. til 19. apríl nk. Að þessu sinni fer keppnin fram í Lundi í Svíðþjóð. Í framreiðslu keppa fyrir hönd Íslands þeir Styrmir Örn Arnarson nemi á Perlunni og Ari Thorlacíus nemi á Vox-Nordica. Í matreiðslu keppa þeir Ari Þór Gunnarsson nemi á Sjávarkjallaranum og Bjarni Siguróli Jakobsson nemi á Vox-Nordica. Liðin eru þegar byrjuð að æfa fyrir keppnina en æfingar fara fram í samstarfi við Hótel- og matvælaskólann í Kópavogi.

28.1.2009

Raunfærnimat - Bættu um betur

Verið er að kanna áhuga á raunfærnimatsverkefnum í eftirtöldum iðngreinum:

- Húsasmíði
- Málaraiðn
- Vélvirkjunalm
- Stálsmíði
- Blikksmíði
- Matreiðslu

Áhugasömum er bent á að hafa samband við náms- og starfsráðgjafa IÐUNNAR fræðsluseturs í síma 590-6400. Rafrænar fyrirspurnir er jafnframt hægt að senda á radgjof@idan.is

 

23.1.2009

Námsvísir IÐUNNAR kominn út!

Námsvísir IÐUNNAR vorið 2009 er nú kominn út. Honum hefur verið dreift til aðildarfyrirtækja IÐUNNAR auk starfsmenntaskóla, stéttarfélaga og annarra hópa sem IÐAN þjónar. Skráning á námskeið fer vel af stað og rétt að minna áhugasama á að skrá sig fyrr en síðar.

Námsvísi má hlaða niður hér

22.1.2009

Fræðslufundur IÐUNNAR fræðsluseturs

Fræðslufundur var haldin 22. janúar þar sem starfsfólk IÐUNNAR fræðsluseturs, fulltrúar stjórnar og sviðstjórnar, starfsgreinaráða ásamt fulltrúa frá menntamálaráðuneytinu hlýddu á Jóhönnu Rósu Arnardóttur, Forstöðumann Rannsóknarseturs í barna- og fjölskylduvernd. Hún kynnti helstu niðurstöður skýrslu sem unnin var fyrir Norrænu ráðherranefndina og fjallar um leið ungmenna frá skóla til vinnumarkaðar. From School to Work: The Case of Iceland. Hér er hægt að nálgast glærur Jóhönnu Rósu.

  

16.1.2009

Sveinspróf í vélvirkjun

Breyttar dagsetningar: Sveinspróf í vélvirkjun verða haldin dagana 6.  - 8. mars 2009.

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem umsækjendur verða fyrir vegna þessara breytinga.

12.1.2009

Nýr námsvísir fyrir vorönn 2009 kominn á netið

Námsvísir IÐUNNAR er nú kominn út og verður dreift til aðildarfyrirtækja í vikunni.  Fremst í námsvísinum eru þverfagleg námskeið sem henta öllum sviðum, en eins og áður er fagnámskeiðunum skipt niður á svið. Við hvetjum alla aðildarfélaga til að kynna sér vel framboð námskeiða. Hikaðu ekki við að hringja í okkur ef þig vantar aðstoð.

Bestu kveðjur frá starfsfólki IÐUNNAR fræðsluseturs.

12.1.2009

Námskeið hafin á prenttæknisviði

Námskeið vorannar hófust í morgun á prenttæknisviði. Nemendur voru mættir galvaskir til leiks í vefmiðlun og Frásagnarteikningu. Enn er möguleiki að slást í hópinn út þessa viku. Örfá sæti eru laus á hvoru námskeiði fyrir sig. Skráning er á www.idan.is og í síma 5906400.

7.1.2009

Farfanámskeið með Michel Jochim

Farfanámskeið með Michel Jochim

Ætlað prenturum og fagmönnum í prentiðnaði.

Eins dags námskeið sem fjallar um efnafræði farfa og vatns. Ítarlega fjallað um fontalausnir og helstu álitaefni hvað þær varðar, blöndun og meðhöndlun.
Kennari er Michel Jochim sérfræðingur frá Horstmann Steinbekk í Þýskalandi.
Námskeiðið er kennt á ensku.

Tími: Þriðjudagur 13. janúar 2009 kl. 9.00-17.00
Lengd: 12 kennslustundir.

Fullt verð:32.100
Verð til aðila Iðunnar: 6.420

Skráning á www.idan.is og síma 5906400

6.1.2009

Nemi í gull – og silfursmíði fær Leonardo da Vinci nemaskipta styrk.

Inga Rut Hlöðversdóttir heldur til Oslóar í næstu viku. Þar verður hún í vinnustaðanámi hjá Hilde Nödtvedt meistara í gull – og silfursmíði. Hilde hefur sérhæft sig í smíði þjóðlegra fylgihluta. Nánari upplýsingar um Hilde og verkstæði hennar er að finna á  http://www.h-nodtvedt-solvsmie.no/om.html .Starfsgreinaráð Hönnunar og handverks  sótti um styrkinn.  IÐAN fræðslusetur stýrir verkefninu.

 Á myndinni eru Helen Gray, IÐUNNI fræðslusetri, Inga Rut Hlöðversdóttir og Sigurdís Unnur dóttir Ingu.

2.1.2009

Gleðilegt nýtt ár

Áramót

IÐAN fræðslusetur óskar viðskiptavinum sínum gleðilegs nýs árs og þakkar samskiptin á liðnu ári.


Slóðin mín:

Forsíða

Heim

Forsíða IÐUNNARIDAN.IS

Stjórnborð

Minnka letur Upphaflegt letur Stækka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd