28.1.2009
Raunfærnimat - Bættu um betur
Verið er að kanna áhuga á raunfærnimatsverkefnum í eftirtöldum iðngreinum:
- Húsasmíði
- Málaraiðn
- Vélvirkjun
- Stálsmíði
- Blikksmíði
- Matreiðslu
Áhugasömum er bent á að hafa samband við náms- og starfsráðgjafa IÐUNNAR fræðsluseturs í síma 590-6400. Rafrænar fyrirspurnir er jafnframt hægt að senda á radgjof@idan.is
23.1.2009
Námsvísir IÐUNNAR kominn út!
Námsvísir IÐUNNAR vorið 2009 er nú kominn út. Honum hefur verið dreift til aðildarfyrirtækja IÐUNNAR auk starfsmenntaskóla, stéttarfélaga og annarra hópa sem IÐAN þjónar. Skráning á námskeið fer vel af stað og rétt að minna áhugasama á að skrá sig fyrr en síðar.
22.1.2009
Fræðslufundur IÐUNNAR fræðsluseturs
Fræðslufundur var haldin 22. janúar þar sem starfsfólk IÐUNNAR fræðsluseturs, fulltrúar stjórnar og
sviðstjórnar, starfsgreinaráða ásamt fulltrúa frá menntamálaráðuneytinu hlýddu á Jóhönnu Rósu Arnardóttur, Forstöðumann Rannsóknarseturs í barna- og fjölskylduvernd. Hún kynnti helstu niðurstöður skýrslu sem unnin var fyrir Norrænu ráðherranefndina og fjallar um leið ungmenna frá skóla til vinnumarkaðar. From School to Work: The Case of Iceland. Hér er hægt að nálgast glærur Jóhönnu Rósu.
16.1.2009
Sveinspróf í vélvirkjun
Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem umsækjendur verða fyrir vegna þessara breytinga.
12.1.2009
Nýr námsvísir fyrir vorönn 2009 kominn á netið
Námsvísir IÐUNNAR er nú kominn út og verður dreift til aðildarfyrirtækja í vikunni. Fremst í námsvísinum eru þverfagleg námskeið sem henta öllum sviðum, en eins og áður er fagnámskeiðunum skipt niður á svið. Við hvetjum alla aðildarfélaga til að kynna sér vel framboð námskeiða. Hikaðu ekki við að hringja í okkur ef þig vantar aðstoð.
Bestu kveðjur frá starfsfólki IÐUNNAR fræðsluseturs.
12.1.2009
Námskeið hafin á prenttæknisviði
7.1.2009
Farfanámskeið með Michel Jochim
Farfanámskeið með Michel Jochim
Ætlað prenturum og fagmönnum í prentiðnaði.
Eins dags námskeið sem fjallar um efnafræði farfa og vatns. Ítarlega fjallað um fontalausnir og helstu álitaefni hvað þær varðar, blöndun og meðhöndlun.
Kennari er Michel Jochim sérfræðingur frá Horstmann Steinbekk í Þýskalandi.
Námskeiðið er kennt á ensku.
Tími: Þriðjudagur 13. janúar 2009 kl. 9.00-17.00
Lengd: 12 kennslustundir.
Fullt verð:32.100
Verð til aðila Iðunnar: 6.420
Skráning á www.idan.is og síma 5906400
6.1.2009
Nemi í gull – og silfursmíði fær Leonardo da Vinci nemaskipta styrk.
Inga Rut Hlöðversdóttir heldur til Oslóar í næstu viku. Þar verður hún í vinnustaðanámi hjá Hilde Nödtvedt
meistara í gull – og silfursmíði. Hilde hefur sérhæft sig í smíði þjóðlegra fylgihluta. Nánari upplýsingar um Hilde og verkstæði hennar er að finna á http://www.h-nodtvedt-solvsmie.no/om.html .Starfsgreinaráð Hönnunar og handverks sótti um styrkinn. IÐAN fræðslusetur stýrir verkefninu.
2.1.2009
Gleðilegt nýtt ár
IÐAN fræðslusetur óskar viðskiptavinum sínum gleðilegs nýs árs og þakkar samskiptin á liðnu ári.
Leit
Mynd














