Beint á leiðarkerfi vefsins

23.10.2009

Breytingar á sviðsstjórn prenttæknisviðs

Á síðasta sviðsstjórnarfundi prenttæknisviðs létu þeir Sveinbjörn Hjálmarsson og Kristján G. Bergþórsson af setu í sviðsstjórn. Í þeirra stað koma Sölvi Sveinbjörnsson og Guðbrandur Magnússon.

Þeim Sveinbirni og Kristjáni voru þökkuð vel unnin störf í þágu prentiðnaðar á Íslandi en þeir hafa gegnt trúnaðarstörfum fyrir iðnaðinn í hartnær tvo áratugi. 

Stjórn prenttæknisviðs býður þá Sölva og Guðbrand velkomna. Guðbrandur er framkvæmdastjóri Landsprents og hefur áratuga reynslu af rekstri í prentiðnaði. Sölvi hefur nýtekið við framkvæmdastjórn Umslags og er því fulltrúi ungu kynslóðarinnar í prentiðnaði. 

12.10.2009

Völundarverk - Reykjavík, fyrsta námskeiðið hafið

Fyrsta námskeið Völundarverks - Reykjavíkur hófst í morgun á Árbæjarsafni.  Námskeiðið sitja 18 þátttakendur, 16 húsasmiðir og 2 arkitektar.  Námskeiðið sem stendur í 4 vikur er bæði bóklegt og verklegt.  Bóklegi hlutinn verður kenndur í Kornhúsinu í Árbæjarsafni en verklegi hlutinn mun að mestu fara fram á hverfismiðstöð Reykjavíkurborgar á Ártúsnshöfða.  Á námskeiðinu verður farið í gegnum sögu húsagerðar fyrri tíma og þátttakendum kennt verklag og handverk við viðgerðir á gömlum timburhúsum.  Verkefnið er átaksverkefni í samstarfi Reykjavíkurborgar, Vinnumálastofnunar, Húsafriðunarnefndar, Árbæjarsafns og Iðunnar fræðsluseturs. 

6.10.2009

Rúmlega 200 hafa setið RGB námskeið

Þátttakendur á RGB námskeiðum Ólafs Brynjólfssonar eru nú komnir yfir 200. Góður rómur er gerður að námskeiðunum og er ljóst að þessi nýbreytni mun ganga í gegn af miklum krafti. Fyrirtæki í prentiðnaði hafa tekið Ólafi með kostum og kynjum og augljóst mál að mikill sparnaður hlýst af breyttu vinnulagi auk þess sem sparnaður er þó nokkur í farfagjöf. Þeir sem vilja komast á RGB námskeið gera best í því að hafa samband við Björn M. Sigurjónsson sviðsstjóra prenttæknisviðs með því að senda póst á bjorn@idan.is.

 

5.10.2009

Afhending sveinsbréfa á Norðurlandi

Laugardaginn 3. október s.l. stóð Fagfélagið fyrir hófi þar sem nýútskrifaðir sveinar í byggingariðnaði fengu í hendurnar sveinsbréf því til staðfestingar að þeir hafi lokið námi í sinni iðngrein.  Þetta eru nemar sem tóku sveinspróf í desember 2008 og júní 2009.  Hér er um að ræða stærsta hóp sem útskrifaður hefur verið í byggingariðnaði í Eyjafirði á sama tíma. Er þessi stóri hópur dæmi um þann mikla uppgang sem verið hefur í byggingariðnaði á undanförnum árum.Alls útskrifuðust 48 nýsveinar í 4 iðngreinum, 2 húsgagnasmiðir, 31 húsasmiðir,  7 málarar og 8 pípulagningarmenn.  Síðast var sveinspróf í húsgagnasmíði haldið á Akureyri 1989. 

Sveinarnir hafa flestir stundað nám sitt við Verkmennaskólann á Akureyri og fjölbrautarskóla  Sauðárkróks.  Sveinarnir fengu allir útskriftargjöf frá Fagfélaginu og gjafabréf á námskeið hjá Iðunni fræðslusetri


Slóðin mín:

Forsíða

Heim

Forsíða IÐUNNARIDAN.IS

Stjórnborð

Minnka letur Upphaflegt letur Stækka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd