30.11.2009
IÐAN fræðslusetur hlaut Starfsmenntaverðlaunin 2009
20.11.2009
Raunfærnimat í fréttum
Með raunfærnimati er færni og þekking einstaklings skoðuð, styrkleikarnir kortlagðir og metnir á móti áföngum í Aðalnámsskrá viðkomandi greinar. Inntökuskilyrði í raunfærnimat er: 25 ára lífaldur og 60 mánaða staðfestur vinnutími í viðkomandi iðngrein. Þrettán iðngreinar hafa verið í raunfærnimati. Fréttin
20.11.2009
Hannað í málm lokið
Hannað í málm lauk með sýningu þátttakenda á smíðisgripum sínum og hönnun fimmtudaginn 19. nóvember í IÐUNNI fræðslusetri. Fjöldi gesta lagði leið sína á sýninguna þar sem þátttakendur greindu frá verkefninu og reynslu sinni af því að taka þátt í því. Verkefnið hófst 1. maí s.l. og hefur því staðið í sex mánuði.
Þátttakendum var skipt í tvo hópa sem unnu með Járnsmiðju Óðins að hönnun Detox stól og Teknís að hönnun hliðgrinda fyrir Norðurmýri í Reykjavík. Teikningar og prótótýpur má sjá næstu daga hjá IÐUNNI að Skúlatúni 2. (Á mynd f.v. Jósef Gíslason, Katrín Jónsdóttir, Óðinn Jónsson vélsm. Óðins, Matthildur Jóhannsdóttir, Arnar Jónsson, Þorleifur Eggertsson og Jón Þór Sigurðsson frá Teknís).
18.11.2009
Námskeið í niðurlögn og meðhöndlun steypu.
Steinsteypufélagið, í samstarfi við IÐUNA fræðslusetur, heldur þriðjudaginn 24.nóvember kl 8:30 til 12:30 námskeið í meðhöndlun og niðurlögn steypu. Leiðbeinendur verða helstu helstu sérfræðingar á þessu sviði á Íslandi. Námskeiðið er haldið á Nýsköpunarmiðstöð Íslands og er opið fyrir alla en einkum ætlað þeim sem meðhöndla steypuna á byggingastöðum. Markmiðið er að þáttakendur öðlist skilning á steypu og meðhöndlun hennar og læri réttu vinnubrögðin við hana.
10.11.2009
Völundarverk - Reykjavík, fyrsta námskeiði lokið
Fyrsta námskeiði verkefnisins Völundarverk - Reykjavík lauk sl. föstudag 6. nóvember. Efnt var til samkomu á Árbæjarsafni í lok dagsins þar sem þátttakendur fengu afhentar viðurkenningar frá IÐUNNI fræðslusetri og bókina Íslensk byggingarfleifð. Óskar Bergsson formaður stjórnar Völundarkverks, Margrét Leifsdóttir formarður verkefnisstjórnar og fulltrúi þátttakenda, Finnbogi Már Guðmundsson fluttu ávörp.
5.11.2009
IÐAN fræðslusetur vinnur með Vinnumálastofnun og býður atvinnuleitendum í viðtal hjá náms- og starfsráðgjafa
Atvinnuleitendur geta á grundvelli þessa samstarfs átt von á að vera kallaðir til skylduviðtals á vegum IÐUNNAR, en ekki eingöngu hjá Vinnumálastofnun eins og áður hefur verið.
3.11.2009
Hönnuðu Detox stól og hliðgrindur!
Þann 1. maí hófst tilraunaverkefnið Hannað í málm, með stuðningi Starfsmenntasjóðs.
IÐAN fræðslusetur setti upp tvo tilraunahópa hönnuða í atvinnuleit, sem störfuðu með málmiðnfyrirtækjunum Járnsmiðju Óðins og Teknís.
Verkefnið var að endurhanna smíðisgrip úr málmi og koma honum í framleiðslu og á markað. Það heppnaðist. Annar hópurinn hannaði Detox stól. Hinn hópurinn hannaði nútímalegar og töff hliðgrindur.
Lokakynning á niðurstöðum verður 19. nóvember kl. 17.00 í IÐUNNI Skúlatúni 2.
Verkefnið var styrkt af Starfsmenntasjóði og var útnefnt fyrirmyndarverkefni ársins 2009 af sjóðnum.
3.11.2009
Raunfærnimat í húsasmíði
Leit
Mynd














