Beint á leiðarkerfi vefsins

26.2.2009

Raunfærnimat

Raunfærnimat byggist á því að meta þá færni og þekkingu sem einstaklingur hefur öðlast á vinnumarkaðnum. Metið er hvort að sú þekking og færni uppfylli viðmið sem sett eru til þess að ljúka flestum námsáföngum námsbrautar. Að raunfærnimati loknu er alltaf a.m.k. 1 önn eftir í skóla og námssamningurinn er skoðaður í kjölfarið. Þátttökuskilyrðin eru 5 ára staðfestur vinnutími í greininni og 25 ára lífaldur.

Áhugasömum er bent á að hafa samband við náms- og starfsráðgjafa IÐUNNAR fræðsluseturs. Nánari upplýsingar um raunfærnimatsferlið er undir náms- og starfsráðgjöf hér á síðunni en einnig á heimsíðu Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins.

17.2.2009

Styrkur vegna kennsluefnis í vinnustaðanámi

Móttaka_styrks_SIÍ dag veittu Samtök iðnaðarins styrki til námsefnisgerðar. Starfsmenntadeild IÐUNNAR fræðsluseturs hlaut styrk vegna námsefnisgerðar fyrir tilsjónarmenn þar sem sérstök áhersla verður lögð á kennslufræði tilsjónarmanna.  

Á myndinni eru styrkþegar ásamt framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins, Jóni Steindóri Valdimarssyni 

5.2.2009

Ánægðir með námskeið um viðhald húsa

namsk_isafjNámskeið í viðhaldi og viðgerðum á húsum á vegum Verkalýðsfélags Vestfirðinga og IÐUNNAR fræðsluseturs var haldið um síðustu helgi. Kennarar á námskeiðinu voru þeir Jón Sigurjónsson og Björn Marteinsson hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Það var mál þátttakenda að námskeiðið hefði verið gagnlegt og myndi nýtast vel, sérstaklega ef endurgreiðsla virðisaukaskatts af endurbótum yrði að veruleika. Einnig höfðu reyndari þátttakendur orð á því að margt fróðlegt hefði komið þar fram. Á laugardeginum var síðan farið í vettvangsferð til Bolungavíkur og framkvæmdirnar við Félagsheimili Bolungarvíkur skoðaðar.

5.2.2009

Norræna nemakeppnin í matreiðslu og framreiðslu.

Framreid09Norræna nemakeppnin í matreiðslu og framreiðslu fer fram dagana 17. til 19. apríl nk. Að þessu sinni fer keppnin fram í Lundi í Svíðþjóð. Í framreiðslu keppa fyrir hönd Íslands þeir Styrmir Örn Arnarson nemi á Perlunni og Ari Thorlacíus nemi á Vox-Nordica. Í matreiðslu keppa þeir Ari Þór Gunnarsson nemi á Sjávarkjallaranum og Bjarni Siguróli Jakobsson nemi á Vox-Nordica. Liðin eru þegar byrjuð að æfa fyrir keppnina en æfingar fara fram í samstarfi við Hótel- og matvælaskólann í Kópavogi.

Slóðin mín:

Forsíða

Heim

Forsíða IÐUNNARIDAN.IS

Stjórnborð

Minnka letur Upphaflegt letur Stækka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd