26.3.2009
Hannað í málm leitar að hönnuðum
Viltu læra að hanna í þrívídd?
Geturðu unnið í hópi?
Viltu styrkja möguleika þína á vinnumarkaði?
Hannað í málm gæti verið tækifærið þitt.
Hafðu samband við IÐUNA fræðslusetur og taktu þátt í þinni eigin framtíð.
Til að ná sambandi:
Sími IÐUNNAR er 5906400
Netfangið er idan@idan.is
eða
bjorn@idan.is
eða
gylfi@idan.is
22.3.2009
Hannað í málm hlýtur styrk
Starfsmenntaráð auglýsti í janúar síðastliðnum eftir umsóknum um styrki til starfsmenntunar í atvinnulífinu. Að þessu sinni var lögð áhersla á gæðaverkefni sem tengjast erfiðri stöðu á vinnumarkaði og nýtast þeim hópum sem misst hafa atvinnu eða eru í sérstakri áhættu með að missa vinnuna.
Áhugaverðasta verkefnið að mati sjóðsins var verkefnið Hannað í málm sem unnið er í samstarfi málm- og véltæknisviðs og prenttæknisviðs IÐUNNAR fræðsluseturs.
Félagsmálaráðherra Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir afhenti styrkinn og Björn M. Sigurjónsson kynnti verkefnið.
13.3.2009
Menntatorg
IÐAN fræðslusetur tók þátt í Menntatorgi sem haldið var 6.mars í Skeifunni 8. Þar voru kynnt ýmiss úrræði sem eru í boði fyrir þá sem eru í atvinnuleit. Á meðfylgjandi mynd má sjá Eddu og Iðunni náms- og starfsráðgjafa IÐUNNAR fræðsluseturs spjalla við þátttakendur Menntatorgsins.
6.3.2009
Auglýsing um sveinspróf
Sveinspróf í eftirtöldum iðngreinum verða haldin sem hér segir ef næg þátttaka fæst:
Í matreiðslu, framreiðslu, bakaraiðn og kjötiðn í apríl og maí. Umsóknarfrestur var til 1. mars.
Í byggingagreinum, upplýsinga- og fjölmiðlagreinum í maí - júní, umsóknarfrestur til 1. apríl.
Sveinspróf málmiðngreinum (nema vélvirkjun), bíliðngreinum, snyrtigreinum, kjólasaumi, klæðskurði o. fl. iðngreinum verða haldin í maí - júní. Umsóknarfrestur er til 1. maí.
Sveinspróf í vélvirkjun verður í október 2009, umsóknarfrestur er til 1. júní nk.
3.3.2009
Nigel French kennir InDesign CS4
Nigel French hinn geðþekki englendingur kennir nú námfúsum starfsmönnum úr upplýsinga- og fjölmiðlaiðnaði uppfærslur og nýjungar í InDesign CS4. Ekki var annað að sjá á þátttakendum en þeim hugnaðist tilsögn Nigels vel enda fagmaður á ferð. Námskeiðið spannar tvo daga og lýkur í dag um kl. 20.00
Leit
Mynd














