30.4.2009
Starfsmenn hjá Síld og fisk ljúka námskeiði
Starfsmenn í kjötvinnslu fyrirtækisins Síld og fiskur ehf voru að ljúka námskeiðinu Gæðakjöt. Námskeiðið fjallar um meðferð matvæla, innra eftirlit og örverufræði. Samtals luku 48 starfsmenn námskeiðinu. Nokkur aldursmunur var á yngsta og elsta þátttakendanum á námseiðinu eða 58 ár. Margrét Erla Friðjónsdóttir er 78 ára og Justina Namirowska 20 ára en þær tóku á móti skírteinum sínum við útskrift í Hótel- og matvælaskólanum í gær.
29.4.2009
Auglýsing um sveinspróf
Umsóknarfrestur fyrir ofangreind próf var til 1. maí.
Sveinspróf í vélvirkjun og ljósmyndun verða haldin í október.
Umsóknarfrestur fyrir ofangreind próf er til 1. júní.
27.4.2009
Námskeið í hönnun bókakápa í maí
Kristín Ragna Gunnarsdóttir kennir námskeið í hönnun bókakápa í maí. Námskeiðið verður með sama sniði og önnur námskeið í hönnun sem verið hafa í vetur á vegum prenttæknisviðs. Kennt verður á mánudögum og fimmtudögum frá 9-12 frá og með öðrum mánudegi í maí.
Félag bókaútgefenda hefur góðfúslega látið í té handrit til að vinna með þannig að þátttakendur spreyta sig á raunhæfu verkefni, við að hanna bókakápur á handrit sem áætlað er að komi út um næstu jól. Skráning sem fyrr á hlekkin hér til vinstri og í síma 5906400.
24.4.2009
Enn nokkur pláss laus á hannað í málm!
Spútnik verkefnið Hannað í málm rennur í gang í annarri viku maí mánaðar. Enn eru örfá pláss laus í verkefnið en leitað er að hönnuðum, prentsmiðum, grafískum miðlurum, grafískum hönnuðum og öðrum sem hafa fagréttindi í hönnun en vilja víkka út atvinnumöguleika sína með þekkingu á málmiðnhönnun. Verkefnið er hönnuðum að kostnaðarlausu en mun standa yfir í eina 6 mánuði með viðveru á námskeiðum að jafnaði 2svar í viku. Ekki verður kennt í júlí-mánuði og meginþungi verkefnisins áætlaður í ágúst og september.
Best er að skrá sig með því að senda póst á bjorn@idan.is eða hringja í 5906400
24.4.2009
Ben Willmore kennir Photshop 30. apríl nk.
18.4.2009
Norræna nemakeppnin 2009
Norræna nemakeppnin í matreiðslu og framreiðslu fór fram dagana 17. - 18. apríl í Lundi í Svíþjóð. Frá Íslandi kepptu í matreiðslu þeir Bjarni Siguróli Jakobsson nemi á Hilton Nordica og Ari Þór Gunnarsson nemi á Sjávarkjallaranum. Í framreiðslu kepptu þeir Ari Thorlacíus nemi á Hilton Nordica og Styrmir Örn Arnarson nemi á Perlunni. Þjálfara nemanna voru þeir Gunnar Rafn Heiðarsson í framreiðslu og Gunnar Karl Gíslason í matreiðslu. Keppnin var mjög jöfn og hörð. Íslensku nemarnir lentu í þriðja sæti í matreiðslu og fjórða sæti í framreiðslu.
17.4.2009
Aðalfundur IÐUNNAR fræðsluseturs
Aðalfundur IÐUNNAR var haldinn fimmtudaginn 16. apríl, að Hótel Grand Reykjavík.
Dagskrá fundarins var:
1. Skýrsla stjórnar
2. Efnahags- og rekstrarreikningar fyrir liðið fjárhagsár
3. Áætlun fyrir komandi starfsár
4. Kosning stjórnar félagsins og löggilts endurskoðanda
5. Ákvörðun greiðslna til stjórnarmanna fyrir störf þeirra á starfsárinu
6. Önnur mál
Ingi Bogi Bogason tók við stöðu formanns stjórnar af Finnbirni Hermannssyni.
Leit
Mynd














