Beint á leiðarkerfi vefsins

29.5.2009

Vinnustaðanám á Norðurlöndunum

IÐAN fræðslusetur hefur tekið að sér í umboði Menntamálaráðuneytisins að annast undirbúning, framkvæmd  og úthlutun styrkja frá Norrænu ráðherranefndinni til nemenda í iðn-og starfsnámi ásamt eftirliti með gerð og framkvæmd samninga við nemendur eftir atvikum. Hægt er að nálgast nánari upplýsingar á http://www.idan.is/styrkir/

28.5.2009

Umfang náms og afdrif nemenda í upplýsinga- og fjölmiðlagreinum

Starfsgreinaráð í Upplýsinga- og fjölmiðlagreinum hefur látið Rannóknir og greiningu ehf kanna umfang náms og afdrif nemenda í upplýsinga- og fjölmiðlagreinum. Niðurstöður þeirrar rannsóknar verða kynntar á fundi SUF á Grand Hótel Reykjavík fimmtudaginn 4. júní kl. 15.00. Sigríður Kristín Hrafnkelsdóttir kynnir niðurstöður rannóknarinnar og ráðgjafa Alta stjórna verkefnum og hópavinnu í kjölfarið. Björn M. Sigurjónsson sviðsstjóri prenttæknisviðs Iðunnar setur fundinn. Fundarslit eru áætluð um kl. 16.30. Niðurstöður fundarins ásamt samantekt könnunarinnar verða gefnar út í kjölfarið. Þess er vænst að gögnin nýtist við endurritun námskrár í upplýsinga- og fjölmiðlagreinum. Verkefnið er styrkt af Starfsmenntasjóði.

26.5.2009

Frábær reynsla – írskt hráefni í hávegum.

nemarognám_sveinn

Sveinn Pálsson matreiðslunemi á Lækjarbrekku er nýkomin heim frá Írlandi. Hann hlaut Leonardo da Vinci mobility styrk  til að stunda hluta af sínu námi á Nuremore http://www.nuremore.com/monaghan-restaurants . Að hans sögn var starfsfólkið frábært og yfirmatreiðslumaðurinn Raymond McArdle mjög fær. Einstök upplifun!

18.5.2009

Hannað í málm hefst!

Hannað í málm hefst nú eftir nokkurn undirbúningstíma. Fyrsti fundur með þátttakendum, umsjónarmönnum og fyrirtækjum verður haldinn mánudaginn 25. maí kl. 15 hér að Skúlatúni 2. Þeir sem enn hafa áhuga á að taka þátt í verkefninu geta skráð sig. Eitt pláss er enn laust. Áhugasömum er bent á að senda póst til Björns M. Sigurjónssonar á bjorn@idan.is.

8.5.2009

Útskrift úr raunfærnimati

Útskrift BUB vor 2009Útskrift úr raunfærnimati var haldin fimmtudaginn 7.mai. Að þessu sinni útskrifuðust 32 úr raunfærnimati í húsasmíði, 9 úr málaraiðn, 8 úr vélvirkjun og 3 úr stálsmíði. Þetta var í fyrsta skipti sem IÐAN fræðslusetur vinnur að raunfærnimati í stálsmíði en áður hefur verið unnið að raunfærnimatsverkefnum í hinum greinunum. Á meðfylgjandi mynd má sjá hluta af þátttakendum sem kláruðu raunfærnimatið.

7.5.2009

Fagnámskeið í matvælagreinum, brúargerð yfir í formlegt nám.

Fagnamskeið2Fagnámskeiði II lauk núna í vikunni með útskrift. Að þessu sinni luku samtals 15 þátttakendur 60 kennslustunda námi með formlegu námsmati. Fagnámið er metið til eininga og gefur styttingu á formlegu námi í matvælagreinum en námsleiðin er hugsuð sem brúargerð yfir í formlegt nám í greinunum. Þátttakendur hafa nú lokið samtals 120 kennslustunda námi stefna á áframhaldandi nám við Hótel- og matvælaskólann. Mikill hugur er í hópnum að halda áfram námi. Hópurinn sem útskrifaðist núna stefnir á raunfærnimat matartækna sem verður haldið á næstunni. IÐAN fræðslusetur mun annast raunfærnimatið.   


Slóðin mín:

Forsíða

Heim

Forsíða IÐUNNARIDAN.IS

Stjórnborð

Minnka letur Upphaflegt letur Stækka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd