26.6.2009
Sautján nýsveinar fá sveinsbréf í bókiðngreinum
Sautján nýsveinar í bókiðngreinum fengu sveinsbréf afhent við hátíðlega athöfn þann 19. júní sl. Að þessu sinni luku 9 sveinar prófi í grafískri miðlun, 7 í prentun og 1 í bókbandi. Ásta María Sigmarsdóttir og Helgi Ó. Víkingsson hlutu viðurkenningar fyrir afburðaárangur á sveinsprófi. Athöfnin var hin hátíðlegasta að vanda og fór fram í blíðskaparveðri við góðar undirtektir. Tónlist var leikin, gestir nutu veitinga og gerður var góður rómur að athöfninni í hvívetna. Björn M. Sigurjónsson sviðsstjóri prenttæknisviðs afhenti nýsveinum blóm og gjafabréf á námskeið frá IÐUNNI fræðslusetri. Formenn sveinsprófsnefnda, þeir Tryggvi Þór Agnarsson, Hjörtur Guðnason og Theodór Guðmundsson afhentu sveinsbréf og Georg Páll Skúlason og Haraldur Dean Nelson veittu verðlaun fyrir framúrskarandi árangur á sveinsprófi.
26.6.2009
SOFIA verkefnið á Íslandi
SOFIA verkefnið sem er samvinnuverkefni Íslands, Frakklands og Spánar á vegum Leonardo starfsmenntaáætlunar Evrópusambandsins hélt vinnustofu á Íslandi 22.-24. júní sl. SOFIA verkefnið er yfirfærsluverkefni á rafrænum kennsluaðferðum sem CNA CEFAG skólinn í París hefur þróað á undanförnum áratug. Þátttakendur í vinnustofunni komu frá ITA sem er símenntamiðstöð í Aragon, CNA CEFAG skólanum í París , Borgarholtsskóla, Tækniskólanum og Flensborgarskóla. Verkefnið er tæplega hálfnað og felur í sér umtalsverðar nýjungar á sviði rafrænna kennsluhátta. Strax næsta haust má þess vænta að afurðir vinnustofunnar verði teknar til prófana í þremur skólum á Íslandi. Á myndinni eru Marie Rouffort (FR), Manuel Castro (FR), Hákon Már Oddson (IS), Brynhildur Björnsdóttir (IS) og Antoine Pierru (IS). Auk þeirra tóku þátt Elena Pallares (ESP), Reyes (ESP), Halldór Árni Sveinsson (IS), Alfonso Alvarez (ESP), Rosana Monton (ESP) og Björn M. Sigurjónsson (IS) sem stýrir verkefninu fyrir hönd prenttæknisviðs IÐUNNAR.
25.6.2009
Raunfærnimat á Akureyri og Ísafirði
Síðustu vikur hafa 34 einstaklingar lokið raunfærnimati í ýmsum greinum á Akureyri og Ísafirði. Í tilefni þess var haldin smá útskrift. Flestir þátttakendur hafa skráð sig í nám í haust.
22.6.2009
Afhending sveinbréfa í málmiðngreinum
VM - Félag vélstjóra og málmtæknimanna og Málmur - samtök fyrirtækja í málm- og skipaiðnaði, afhentu sveinsbréf í málmiðngreinum. Allir nýsveinar fengu gjafabréf frá IÐUNNI fræðslusetri sem gildir sem inneign á námskeið hjá IÐUNNI.
Sveinsbréfin voru afhent í hófi sem haldið var fyrir útskriftarnema og maka í húsakynnum VM.
Afhentar voru viðurkenningar fyrir góðan námsárangur. Þær hlutu Stefán Friðriksson sem útskrifaðist úr rennismíði og Hákon Gunnarsson sem útskrifaðist úr vélvirkjun. Viðurkenningarnar afhentu Guðmundur Ragnarsson, formaður VM og Ingólfur Sverrisson fyrir hönd Málms.
4.6.2009
Afhending sveinsbréfa í bókiðngreinum 19. júní
3.6.2009
Norrænt bókband opnar um helgina
Leit
Mynd













