31.8.2009
Skipuleg nįlgun hugmyndavinnu
Starfsfólki í upplýsinga- og fjölmiðlagreinum býðst nú námskeið í skipulegri nálgun hugmyndavinnu. Námskeiðið hefst mánudaginn 7. september og er kennt á mánudögum og miðvikudögum út september.
Kristín Ragna Gunnarsdóttir grafískur hönnuður kennir námskeiðið þar sem fjallað verður um aðferðir við að byggja upp hugmyndabanka, og vinna úr hugmyndum við grafísk verkefni.
Skráning á námskeiðið er í síma 5906400 og hér.
24.8.2009
MANNVIT MIKIŠ - Norręn rįšstefna um fręšslumįl fulloršinna
september 2009 í Reykjavík á Hótel Loftleiðum. Dagana 10. – 12. september verður haldin Norræn ráðstefna um fræðslumál fullorðinna. Fræðslunetið Nordiskt nätverk för formell vuxenutbildning tilheyrir Netvärk för Vuxnas lärande(NVL). NVL er samnorrænn vettvangur sem fjallar um menntun fullorðinna og starfar í umboði Norrænu ráðherranefndarinnar. Hægt er að nálgast dagskrána hér.
17.8.2009
Sveinspróf ķ blikksmķši
Sveinspróf verða haldin sem hér segir:
Kynningarfundur og skriflegt próf 28. ágúst á Akureyri og í Reykjavík.
Mjög mikilvægt er að umsækjendur mæti til að kynna sér nýja tilhögun prófa.
Verkleg próf 9. og 10. september í Reykjavík. (Breytt frá áætlun)
Verkleg próf verða dagana 18. og 19. september á Akureyri.
17.8.2009
Podcasting meš Chris Aires 9. nóvember
Chris Aires kennir podcasting á stuttu námskeiði prenttæknisviðs 9. nóvember næstkomandi. Námskeiðið hefst kl. 13.00 og stendur yfir til kl. 20.00. Podcasting er að verða vinsæl aðferð við miðlun dagskrárefnis og allir sem starfa við framleiðslu dagskrárefnis, hvort sem er í fjölmiðlum eða skólum ættu að hafa Podcasting á valdi sínu. Podcasting hentar hvort tveggja fyrir hljóðvarp og sjónvarp.
Podcasting er afar einfalt og fljótlegt að læra. Tæknin er sáraeinföld, aðeins þarf hljóðnema eða upptökuvél, tölvu og nettengingu. Hér er tengill á einfalda útskýringu á podcasting af www.youtube.com. Verði fyrir námskeiðið er stillt í hóf eða aðeins kr. 5.100 fyrir aðildarfélaga IÐUNNAR.
14.8.2009
Sveinspróf ķ ljósmyndun
Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur til 5. september.
Með umsókn skal leggja fram afrit af námssamningi, lífeyrissjóðsyfirlit og burtfararskírteini frá skóla.
Leyfisgjald próftaka er kr. 5.500.
Umsóknareyðublöð má nálgast heimasíðu okkar og á skrifstofunni.
10.8.2009
Hannaš ķ mįlm - AutoCad nįmskeiš hafiš!
Þeir voru fullir einbeitingar nemendur á AutoCad námskeiði Finns Fróðasonar í morgun. Námskeiðið er haldið sérstaklega fyrir þátttakendur í Hannað í málm. Alls taka þrjú fyrirtæki og 8 hönnuðir þátt í verkefninu en verkefnið er að endurhanna smíðisgrip úr málmi. Verkefnið er styrkt af Starfsmenntasjóði.
6.8.2009
Hannaš ķ mįlm - nęsta nįmskeiš fyrir hönnuši og mįlmsmiši
Með námskeiðinu fylgir ókeypis nemendaaðgangur að AutoCad í 13 mánuði.
Námskeiðið er mjög veglegt og þátttakendum í HÍM að kostnaðarlausu en alla jafna kostar sæti á slíku námskeiði milli 150 og 200 þ. kr.
Málmiðnfyrirtækin sem taka þátt eiga sitt sæti á námskeiðinu. Sætin eru takmörkuð því aðeins komast 12 að í einu.
Þátttaka tilkynnist á gylfi@idan.is
Samhliða þessu verður farið í gegnum framleiðslutækni og suðutækni málma. Dagsetningar nánar tilkynntar síðar.
Leit
Mynd














