24.9.2009
Völundarverk - umsóknarfrestur framlengdur til 1. október
Umsóknarfrestur um þáttöku í Völundarverki - Reykjavíkur, átaksverkefni um endurgerð eldri húsa hefur verið framlengdur til 1. október nk. Gert er ráð fyrir að þátttakendur séu skráðir atvinnuleitendur hjá Vinnumálastofnun. Verkefnið sjálft er tvíþætt. Annars vegar undirbúningsnámskeið u.þ.b 1 mánuður sem hefst í október og hins vegar tímabundin störf þátttakenda á byggingarstað/teiknistofu að því loknu í 2-5 mánuði.
Umsóknareyðublað má nálgast hér
21.9.2009
Afhending sveinsbréfa í bygginga- bíl-, málm- og véltæknigreinum
21.9.2009
Starfsmenn GuðjónÓ fá námskeið í RGB vinnuferlinu
Starfsmenn GuðjónÓ fengu námskeið í RGB vinnuferlinu hjá Ólafi Brynjólfssyni sem fer nú milli prentsmiðja og breiðir út erindið. Ólafur fer í gegnum nýja prentprófíla, fer yfir vinnustöðvar í forvinnslunni og stillir skjái þar sem það á við. Vel er tekið á móti Ólafi í hvívetna og er ekki annað að sjá en verkefnið gangi að óskum. Þeir sem óska eftir heimsókn Ólafs hafi samband við Björn í síma 5906400 eða með tölvupósti á bjorn@idan.is.
16.9.2009
Völundarverk - Umsóknarfrestur er til 21. september
Völundarverk-Reykjavík í samvinnu við Vinnumálastofnun, Minjasafn Reykjavíkur og IÐUNA Fræðslusetur auglýsir eftir húsasmiðum og arkitektum í átaksverkefni um endurgerð eldri húsa í Reykjavík. Gert er ráð fyrir að þátttakendur séu skráðir atvinnuleitendur hjá Vinnumálastofnun. Verkefnið sjálft er tvíþætt. Annars vegar undirbúningsnámskeið u.þ.b 1 mánuður sem hefst í október og hins vegar tímabundin störf þátttakenda á byggingarstað/teiknistofu að því loknu í 2-5 mánuði. Umsóknarfrestur er til 21. september nk.
Umsóknareyðublað má nálgast hér
14.9.2009
World Skills í Kanada 2009
Nú er keppni lokið á World Skills í Kanada 2009 en fulltrúar IÐUNNAR fylgdust með keppninni sem fór mjög faglega fram í alla staði. Keppnisgleði skein af ungum iðnnemum ekki síst þeim íslensku.
Okkar fólk stóð sig mjög vel og niðurstaðan varð svona:
Kristófer Þorgeirsson keppti í pípulögnum og lenti í 12. sæti með 505 stig.
Þorbjörg Bergþórsdóttir keppti í hársnyrtiiðn og lenti í 17. sæti með 471 stig.
Stefán Ingi Ingvason keppti í rafvirkjun og lenti í 27. sæti með 472 stig.
Kristófer fékk sérstök fagverðlaun fyrir að vera með meira en 500 stig og einnig með besta árangur Íslendinga. (Best of nation)
14.9.2009
Kynningarfundur um Völundarverk
Þriðjudaginn 15. september kl. kl. 13:30 verður haldinn kynningarfundur í húsakynnum Vinnumálastofnunar í Engjateigi 11 á 2. hæð um Völundarverk - Reykjavík. Atvinnuleitendur í röðum húsasmiða og arkitekta sem áhuga hafa á að kynna sér verkefnið eru eindregið hvattir til að sækja fundinn. IÐAN fræðslusetur er þátttakandi í verkefninu fyrir hönd Samiðnar, Samtaka Iðnaðarins og Meistarafélags byggingamanna.
Umsóknir um þátttöku í verkefninu er að finna hér.
14.9.2009
RGB námskeið í fullum gangi!
Ólafur Brynjólfsson fer nú eins og stormsveipur um fyrirtæki í prentiðnaði og innleiðir nýtt verklag við forvinnslu mynda og litgagna. Aðferðin hefur verið kölluð RGB vinnuflæði og leysir úr vanda þeirra sem hafa glímt við ójafna CMYK vinnslu milli hönnuða, ljósmyndara og prentsmiðja. Vinnuhópur skipaður af lykiltæknimönnum úr prentiðnaði þróaði lausnina sem er líkt við byltinguna sem varð þegar .pdf var innleitt fyrir 10 árum.
Þeir sem vilja fá Ólaf í heimsókn á sinn vinnustað hafa samband við Björn sviðsstjóra prenttæknisviðs IÐUNNAR í síma 5906400 eða með tölvuskeyti á bjorn@idan.is
(Á myndinni eru ánægðir starfsmenn Svansprents að loknu námskeiði hjá Ólafi).
10.9.2009
Afhending sveinsprófsskírteina í matvæla- og veitingagreinum
Afhending sveinsprófsskírteina í matvæla- og veitingagreinum fór fram miðvikudaginn 9. september. Prófin fóru fram í maí sl. en samtals luku 31 sveinsrófi. Matreiðslusveinar voru 11, framreiðslumenn 11, bakarar 5 og kjötiðnarmenn samtals 4. Afhendingin fór fram að Stórhöfða 31 í húsakynnum MATVÍS.
8.9.2009
Völundarverk - Reykjavík auglýsir eftir þátttakendum
Völundarverk-Reykjavík í samvinnu við Vinnumálastofnun (VMST), Minjasafn Reykjavíkur og IÐUNA Fræðslusetur auglýsir eftir húsasmiðum og arkitektum í átaksverkefni um endurgerð eldri húsa í Reykjavík. Gert er ráð fyrir að þátttakendur séu skráðir atvinnuleitendur hjá Vinnumálastofnun. Verkefnið sjálft er tvíþætt. Annars vegar undirbúningsnámskeið u.þ.b 1 mánuður sem hefst í október og hins vegar tímabundin störf þátttakenda á byggingarstað/teiknistofu að því loknu í 2-5 mánuði. Umsóknarfrestur er til 21. september nk.
Umsóknareyðublað má nálgast hér
3.9.2009
Námsvísir haustsins kominn út
Námsvísir haustannar er nú kominn út. Í boði eru margvísleg námskeið og hvetjum við félagsmenn okkar til að athuga framboðið vel og skrá sig á www.idan.is eða í síma 590-6400.
Félagsmenn án atvinnu þurfa að sækja vottorð hjá Vinnumálastofnun áður en þeir koma á námskeiðin. Vottorðið gildir sem greiðsla. Við hvetjum ykkur sem eruð án atvinnu að nýta þennan tíma til að viðhalda og byggja ofan á þekkingu ykkar.
Námsvísi haustannar er hægt að nálgast hér
Bestu kveðjur,
starfsfólk IÐUNNAR fræðsluseturs
Leit
Mynd














