Beint á leiðarkerfi vefsins

17.11.2010

Stofnun Skills Ísland

Katrín Jakobsdóttir Skills IslandMánudaginn 15. nóvember voru samtökin Skills Ísland stofnuð með formlegum hætti. Mennta- og menningarmálaráðherra Katrín Jakobsdóttir setti stofnfundinn við hátíðlega athöfn í Iðnskólanum í Hafnarfirði. Stofnaðilar að samtökunum eru Bílgreinasambandið, FBM, Iðanðarmannafélag Reykjavíkur, Iðnmennt, MATVÍS, Meistarasamband byggingarmanna, Rafiðnaðarsambandið, SAF, Samiðn, Samtök iðnaðarins, SART og VM. Stjórn var kosin til næstu tveggja ára. Stjórn skipa Björn Ágúst Sigurjónsson formaður, Ólafur Jónsson og Þór Pálsson. Varamenn eru Ingi Bogi Bogason og Georg Páll Skúlason.

12.11.2010

Meistarafélag húsasmiða gengur til liðs við IÐUNA

Samn_undirrÍ dag gengu Samtök iðnaðarins og Meistarafélag húsasmiða frá kaupum þeirra síðarnefndu á tilteknum hlut SI í IÐUNNI fræðslusetri. Orri Hauksson, framkvæmdastjóri SI, og Baldur Þór Baldvinsson, formaður MH,  undirrituðu samninginn. Baldur og Orri eru sammála um að á erfiðum tímum sé það byggingariðnaðinum mikilvægt að standa þétt saman í menntamálum. Að sögn Hildar Elínar Vignir, framkvæmdastjóra IÐUNNAR, gefur samningurinn byggingariðnaðinum tækifæri til þess að efla endurmenntun í greininni.

Fulltrúi MH tekur sæti í stjórn IÐUNNAR frá og með næsta aðalfundi.

10.11.2010

Kristín Ragna kennir í Gerðubergi

 

Námskeið 15. og 17. nóvember kl. 20-22
Umsjón: Kristín Ragna Gunnarsdóttir

Á námskeiðinu Upp sé ég koma öðru sinni .... skoðar Kristín Ragna Gunnarsdóttir norrænar goðsagnir sem efnivið til sköpunar. Hún hefur sjálf unnið með goðafræðina á mismunandi hátt; í bókarformi, sem veggmyndir, hannað sýningu fyrir ferðamenn, sett upp barnasýningu og er að vinna að teiknimynd sem byggir á Völuspá. Á námskeiðinu segir Kristín frá vinnunni að baki þessara verka og skoðar listaverk nokkurra annarra listamanna sem hafa orðið fyrir áhrifum af þessum menningararfi okkar. Hópurinn mun í sameiningu rýna í heim norrænna goðsagna og skoða hann sem uppsprettu nýrra hugmynda. Námskeiðið er tilvalið fyrir alla þá sem hafa áhuga á þessu efni og hyggjast nýta það sem kveikju að nýjum verkum.

Kristín Ragna er hönnuður og sýningarstjóri sýningarinnar Ormurinn ógnarlangi sem nú stendur yfir í Gerðubergi (sjá nánar hér). Sýningin hefur hlotið afar góðar viðtökur jafnt barna sem fullorðina. Að sýningunni koma fjölmargir aðilar, en nemendur Kristínar við Listaháskóla Íslands og Iðuna fræðslusetur lögðu til hönnun og vinnu. Sýningin byggir á norrænu goðafræðinni og á henni má m.a. sjá Fenrisúlfinn bundinn, Miðgarðsorm, Surt og fleiri illfygli ásamt fésbókum goðanna. Nemendur námskeiðsins Upp sé ég koma öðru sinni ... munu kynnast vinnunni að baki sýningunni og ættu þeir sem eru í skapandi námi eða starfi því ekki að láta þetta tækifæri til að skyggnast inn í skissubækur Kristínar Rögnu fram hjá sér fara.

Kristín Ragna Gunnarsdóttir útskrifaðist úr grafískri hönnun frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands. Hún var gestanemi í málun við sama skóla og lauk BA prófi í almennri bókmenntafræði og ritlist frá Háskóla Íslands. Kristín Ragna er sjálfstætt starfandi teiknari, hugmyndasmiður og kennari.

Skráning á gerduberg@reykjavik.is eða í síma 575 7700.
Þátttökugjald er 6.000 kr. (ATH. áður auglýst verð 8.000 kr.)

10.11.2010

Námskeið í innleiðingu rafrænna reikninga á vegum Staðlaráðs

Prenttæknisvið bendir aðildarfélögum á þetta námskeið Staðlaráðs. 

Þann 18. nóvember næstkomandi heldur Staðlaráð námskeið um tæknilega  innleiðingu rafrænna reikninga.

Námskeiðið er ætlað tæknimönnum sem annast útfærslu og innleiðingu á rafrænum reikningum, eins og sjá má af meðfylgjandi fréttatilkynningu.

Skráning og nánari upplýsingar um námskeiðið eru á vef Staðlaráðs >>

 http://www.stadlar.is/namskeid/rafraenn-taeknimenn/

 

8.11.2010

Arnar og Þórkatla hanna bókarkápu

Tveir þátttakendur af námskeiði í hönnun bókarkápu, fengu verkefni við að hanna bókarkápu á tvær af jólabókunum í ár. Arnar Guðmundsson hönnuður teiknaði kápu fyrir bókina Myndir af ættarmóti eftir Anton Helga Jónsson  og Þórkatla Elín Sigurðardóttir teiknaði kápu fyrir bókina Stolnar raddir eftir Hugrúnu Hrönn Kristjánsdóttur. Báðar bækurnar koma út hjá Forlaginu núna fyrir jólin. Bæði Þórkatla og Arnar þróuðu hugmyndir sínar að bókarkápunum á námskeiði prenttæknisviðs hvar Kristín Ragna Gunnarsdóttir leiðbeindi.

8.11.2010

Þátttakendur IÐUNNAR sýna í Gerðubergi

Nemendur af námskeiðum IÐUNNAR tóku þátt í sýningu í Gerðubergi á dögunum. Þema sýningarinnar er Völuspá og norrænar goðsagnir enda heitir hún Ormurinn ógnarlangi. Sýningarstjóri og hönnuður sýningarinnar er Kristín Ragna Gunnarsdóttir en þátttakendur héðan frá IÐUNNI eru Arnar Guðmundsson, Auður Björnsdóttir, Ágústa Þórðardóttir, Fríða Blöndal, Gunnar Steinþórsson, Hrefna Stefánsdóttir, Ragnheiður Kristjánsdóttir og Þorbjörg Sigurðardóttir. Sýningin er opin til 13. mars 2011.

15.10.2010

Námskeið fyrir bílasala

logo

Námskeið fyrir bílasala 1. nóvember  til 17. nóvember  2010

Kennt er frá kl. 08:00-12:00 alla daga.

Námskeiðið er 44 klukkutíma langt.

Mánudagurinn 15. nóvember er síðasti kennsludagur.

Prófið fer fram 17. nóvember.

Umsóknarfrestur rennur út 28. október og eftir það er ekki tekið við umsóknum.

15.10.2010

Afhending sveinsskírteina í matvæla- og veitingagreinum

Afhending sveinsskírteina í matvæla- og veitingagreinum fór fram sl. miðvikudag. Samtals fengu 31 nýsveinn skírteini sín afhent. Fjölmennastir voru matreiðslumenn eða samtals 18, tveir kjötiðnaðarmenn, fimm bakarar og sex framreiðslumenn. Afhendingin fór fram í húsakynnum MATVÍS að Stórhöfða 31 og tókst vel í alla staði.

8.10.2010

Aldrei fleiri útskrifast úr starfsnámi

Athyglisverð frétt birtist á mbl.is í dag 8. október um brautskráningar nema úr framhaldsskóla og háskóla. Það sem er áhugvert við þessa frétt að aldrei hafa jafn margir útskrifast úr starfsnámi og fram kemur að útskrifuðum sveinum hefur fjölgað um 8,6% frá fyrra ári. Hægt er að lesa fréttina í heild sinni með því að smella á http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2010/10/08/aldrei_fleiri_brautskradir/?ref=fphelst

30.9.2010

Akureyri

Akureyri Dagskrá

29.9.2010

Raunfærnimat í húsasmíði

bub-husNú er að hefjast raunfærnimat í húsasmíði. Áhugasamir eru hvattir til að mæta á kynningarfund um verkefnið sem haldinn verður fimmtudaginn 30. september kl. 18.00 að Skúlatúni 2 Reykjavík. Uppfylla þarf eftirfarandi skilyrði: 25 ára lífaldur og 60 mánaða (5 ára) vinnutíma í greininni staðfest með opinberum gögnum (lífeyrissjóðsyfirliti). Nánari upplýsingar um raunfærnimat má nágast hér.

24.9.2010

Íslandsmeistarar nema í matreiðslu- og framreiðslu 2010

Íslandsmót matreiðslu og framreiðslunema 2010Íslandsmót matreiðslu- og framreiðslunema fór fram í Smáralindinni föstudaginn 24. september. Keppnin sem er haldin á vegum MATVÍS og SAF var bæði jöfn og tvísýn. Íslandsmeistarar matreiðslunema eru þeir Birkir Örn Sveinsson nemi á Fiskfélaginu, meistari Birkis er Jónas Jónsson og Hafsteinn Ólafsson nemi á Vox, meistari Hafsteins er Jóns Már Ragnarsson. Íslandsmeistarar nema í framreiðslu eru þær Ester Jakobsdóttir nemi á Einari Ben, meistari Estarar er Stefán Guðjónsson og Ingadóra Snorradóttir nemi á JT- Veitingum, meistari Ingudóru er Trausti Víglundsson.  

16.9.2010

Morgunfundur um rafbækur 8. október - skráning í fullum gangi

Nú stendur yfir skráning þátttakenda á morgunfund á rafbækur sem Xplor Ísland og IÐAN fræðslusetur gangast fyrir þann 8. október kl. 8.30 - 10.00. Nánari lýsing á fundinum er hér.

Á fundinum mun Leon Baird ásamt þeim Árna Matthíassyni og Einari Hauki Reynissyni kynna iPad og Kindle rafbækurnar möguleika þeirra og kosti. Öllum er heimil þátttaka á meðan húsrúm leyfir. Skráning hér.  

14.9.2010

Helmingur nemenda lýkur ekki starfsnámi í Noregi

 Helmingur norskra nemenda í iðn- og starfsnámi lýkur ekki námi segir í frétt vefútgáfu Aftenpostens í Noregi. Af þeim 3161 nemanda sem hóf nám í starfsmenntaskólum í Osló luku einungis 51% reglubundnu fimm ára námi. Að mati Gunn Elisabeth Birkelund prófessors í félagsfræði er sterk fylgni milli árangurs í grunnskóla og brottfalls í framhaldsskóla. Þeim sem gekk illa í grunnskóla gekk jafnilla í starfsnámi. Að mati Birkelund höfða starfsmenntabrautir ekkert betur til þeirra sem standa sig illa í grunnskóla. Þeir falla brott engu að síður. Hún telur því að starfsmenntabrautir komi ekki betur til móts við þarfir þeirra nemenda sem ná ekki árangri í bóknámi. Hérlendis hefur verið nokkur umræða um brottfall úr framhaldsskóla og sýnt þykir að of stór hluti nemenda fellur brott úr námi. Það er áhyggjuefni og ekki einsýnt um lausnir á því vandamáli.

Fréttina má lesa hér.

8.9.2010

Námsvísir haustannar er kominn út

Námsvísir h2010 2Fjöldi spennandi námskeiða er í boði hjá IÐUNNI á haustönninni. Við hvetjum alla til að skoða vel úrvalið, jafnt fagtengdu námskeiðin sem og stjórnunar- og tölvunámskeiðin. Námsvísinum er dreift til allra félagsmanna okkar sem eiga von á honum í dag eða næstu daga. Einnig er hægt að nálgast námsvísinn hér.

 

Við hlökkum til að starfa með ykkur í vetur og hvetjum ykkur til að hafa samband við okkur í síma 590-6400 ef frekari upplýsinga er þörf.

 

Bestu kveðjur,

Starfsfólk IÐUNNAR fæðsluseturs 

 

6.9.2010

Morgunfundur um rafbækur 8. október

Ráðgert er að halda morgunfund um rafbækur 8. október frá kl. 8.30-10.00. Á fundinum munu þrír sérfræðingar um Kindle og iPad fjalla um rafbækur og helstu eiginleika þeirra. Leon Baird sem er breskur sérfræðingur um forritun fyrir rafbækur, iPad og Kindle mun halda stutta fræðslulotu á miðvikudag og fimmtudag 6. og 7. október. Markmið fundarins er að kynnast rafbókum, eiginleikum þeirra, kostum og göllum. Fundurinn verður haldinn hér í Skúlatúni 2, 6. hæð. Boðið verður upp á kaffi. 

Á seinni fundum verður fjallað um tækifæri og ógnanir sem tilkoma rafbóka hefur í för með sér fyrir útgáfu- og upplýsingaiðnað. Þeir fundir eru ráðgerðir í byrjun nóvember og desember. Dagsetningar verða gefnar út um leið og þær liggja fyrir. 

3.9.2010

Móttaka nema í vinnustaðanámi

 Til að skrá sig á námskeiðið ,,Móttaka nema í vinnustaðanámi“ þarf að smella á Stjórnunarnámskeið undir fyrirsögninni Námskeið.

19.8.2010

Fá vinnu eftir námskeið hjá IÐUNNI

 Reglulega berast okkur fréttir af einstaklingum sem fá vinnu eða launuð verkefni í kjölfar námskeiða IÐUNNAR.  Þessi dæmi eru hvatning til þátttakenda í atvinnuleit að möguleikarnir finnast og að það getur ræst úr.  Arnar Guðmundsson sat námskeið í hönnun bókarkápa. Á námskeiðinu var hönnuð bókarkápa á eina af jólabókunum sem væntanlegar eru um næstu jól. Arnar hannaði kápu á bók Antons Helga Jónssonar, Ljóð af ættarmóti í útgáfu Forlagsins. Útgefendum leist svo vel á hönnun Arnars að þeir keyptu kápuna. 
Þorgeir Jónsson tók þátt í Völundarverki sem var samvinnuverkefni Reykjavíkurborgar og IÐUNNAR. Á námskeiðinu lærðu þátttakendur viðhald gamalla húsa. Þorgeir fékk vinnu í kjölfarið hjá fyrirtæki sem sinnir viðhaldi gamalla húsa, einmitt vegna þátttöku sinnar Völundarverki. 
 Heiða fór á námskeið í smurbrauði hjá IÐUNNI (Sæmundi Fróða) og fékk í kjölfarið vinnu við smurbrauðsgerð.  Kennari var Marentza Poulsen smurbrauðsjómfrú.
Renuka Perera  lauk fagnámi í matvæla- og veitingafræðum. Hún gaf út matreiðslubók sem kallast Fimmtíu kryddríkar frá Sri Lanka að loknu fagnáminu og stefnir í áframhaldandi nám fyrir matartækni. 
Tóku hluta af samningi í matreiðslu erlendis

Trausti Geir Torfason og Brynjar Örn Sigdurdórsson matreiðslunemar á Perlunni hlutu Leonardo da Vinci Mobilty styrk og tóku  hluta af samningsbundu vinnustaðanámi sínu hjá Philippe Girardon Matreiðslumeistara í Domaine de Clairfotine í Frakklandi. Þannig gátu þeir víkkað sjóndeildarhringinn.

Sama gerði Sigríður Edda Bergsteinsdóttir  nemi gull- og silfursmíði, en hún komst ekki námsamning hér á landi. Þá fékk hún styrk frá Norrænu ráðherranefndinni  og stundar nú vinnustaðanámið sitt í Stord í Noregi hjá Atle Myhre - Gull & Solv
(IÐAN er umsjónarmaður styrkjanna sjá http://www.idan.is/styrkir/).

12.8.2010

IÐAN í fjölmiðlum

Kristín RagnaFréttablaðið greindi frá námskeiðum í Myndskreytingu og frásagnarteikningu sem Kristín Ragna Gunnarsdóttir kennir á prenttæknisviði IÐUNNAR. Námskeið Kristínar Rögnu hefjast upp úr miðjum september ásamt öðrum námskeiðum prenttæknisviðs. Hér má lesa viðtalið við Kristínu.

4.8.2010

Námskeið IÐUNNAR á haustönn 2010

Skráning er hafin á námskeið IÐUNNAR á haustönn 2010. Til vinstri á síðunni undir flipanum Námskeið er birt yfirlit yfir námsframboðið og innritunarform fyrir einstök námskeið. Námskeiðin eru að venju mjög fjölbreytt og hafa að markmiði að auka þekkingu, leikni og hæfni fagfólks í iðnaði.  

16.7.2010

Námskeið í pinnasuðu

Námskeið í pinnasuðu verður haldið dagana 24. til 26. ágúst nk. Góður undirbúningur fyrir sveinspróf í vélvirkjun.

Skráning og upplýsingar.

15.6.2010

Nýsveinn í grafískri miðlun

Heiðrún Björt Sigurðardóttir tók við sveinsbréfi í grafískri miðlun föstudaginn 11. júní síðastliðinn.  Heiðrún Björt var að þessu sinni eini nýsveinninn í upplýsinga- og fjölmiðlagreinum en vanalega eru um 20 nýsveinar á hverju vori í prentun, bókbandi og grafískri miðlun.

Athöfnin var því með hófstilltu sniði en Heiðrúnu var boðið í Skúlatúnið ásamt foreldrum, meistara og sveinsprófsnefnd. Athöfnin er í boði Félags bókagerðarmanna og Samtaka iðnaðarins sem hefðinni samkvæmt bjóða nýsveina velkomna til starfa.  Sveinsbréfið afhenti Hjörtur Guðnason formaður sveinsprófsnefndar í grafískri miðlun og Hildur Elín Vignir afhenti gjafabréf frá IÐUNNI. 

Á myndinni eru Jónas Gunnarsson framkvæmdastjóri Expo, meistari Heiðrúnar og Hjörtur Guðnason formaður sveinsprófsnefndar í grafískri miðlun.

14.6.2010

Fyrirlestraröð um rafbækur í bígerð

Um þessar mundir er unnið að því á prenttæknisviði að setja saman fyrirlestraröð um rafbækur. Með rafbókum er átt við tæki s.s. Kindle, e-book, iPad, e-reader o.s.frv.  Fyrirlestrarnir eru ætlaðir öllum sem vilja kynna sér þessa nýjung en einkum verður horft til fagmanna í upplýsinga- og fjölmiðlagreinum. Fyrirlestrarnir munu draga fram helstu eiginleika rafbóka, reynt verður að svara því hverju þær breyta í prentiðnaðinum og hvernig skynsamlegt er að afla sér þekkingar á umbroti og meðhöndlun gagna fyrir þessi viðtæki. Stefnt er að því að fyrirlestrarnir hefjist haustið 2010 og standi fram eftir vetri. Leitað verður til innlendra og erlendra sérfræðinga. Alla ábendingar um menn og konur með þekkingu á rafbókum eru vel þegnar og sendist Birni M. Sigurjónssyni sviðsstjóra prenttæknisviðs á bjorn (hjá) idan.is.

26.5.2010

NÁMSKEIÐ Á NÆSTUNNI.

Rauður bill

Námskeið vegna vottunar ökutækja: 

Það verður haldið upprifjunarnámskeið vegna vottunar ökutækja (burðarvirki og hjólastillingar) fyrir þá aðila sem hafa heimildir til útgáfu slíkra vottorða í dag og hafa ekki sótt námskeið síðast liðin þrjú ár (endurútgáfa vottorða verður nú til fimm ára gegn reglubundnu eftirliti).

21.5.2010

Grunndeildir í málm- og véltækni við 11 framhaldsskóla

Samtök iðnarins og Málmur standa að kynningu á iðnnámi í málm- og véltæknigreinum fyrir ungt fólk. Auglýsingar birtast víða, m.a. í kvikmyndahúsum. Ungt fólk er hvatt til að gefa málmiðngreinum gaum.Vert er að minna á að fyrstu annir í málmiðnaði, sk. grunnnám málmiðna, er kennt víða um land, sjá meira.

12.5.2010

Móttaka nema í vinnustaðanámi

Góð aðsókn var á fyrsta námskeiði fyrir meistara og tilsjónarmenn í hársnyrtiiðn sem haldin var hjá IÐUNNI fræðslusetri í apríl síðastliðnum. Meginmarkmið námskeiðsins er að auka hæfni tilsjónarmanna þegar tekið er á móti nemendum í vinnustaðanámi í löggiltum iðngreinum. Fjallað var um samskipti, inntak og gæði vinnustaðanámsins með sérstaka áherlsu á námsferilbók nema. Einnig var fjallað um áhættuþætti í vinnuumhverfinu m.a. félagslega og líkamlega áhættuþætti. Áætlað er að halda umrætt námskeið í haust bæði á Akureyri og í Reykjavík. hár_nemar
Jóa – meistari og eigandi Unique hár og spa segir þetta:  “námskeiðið er áhugavert, hnitmiðað og mjög  gagnlegt. Komið er víða við, sérstaklega fannst mér kynning á námsferilsbókinni þörf sem nú loksins tengir nemann, meistarann og skólann almennilega saman í náminu. Ég vil meina að allir sem hafa nemaleyfi eigi að sækja þetta námskeið sem fyrst.
“ 

5.5.2010

Ash not Flash! Flash námskeiði með Leon Baird frestað....

Vegna öskufalls í háloftunum eru flugsamgöngur milli Bretlands og Íslands ótryggar á næstu dögum. Það hefur áhrif á Leon Baird sem ætlaði að fljúga til okkar og kenna Flash námskeið 10. - 14. maí. n.k. Námskeiðinu með honum er því frestað. Þetta er þó ekki eina óvissan hvað varðar Flash því óljóst er hvort verður ofan á Html.5 sem Internet Explorer 9 styður eða Flash sem ekki er tækt á iPad.

Það eina sem er ljóst er að við tökum upp þráðinn í haust með þær lausnir sem markaðurinn krefst.

30.4.2010

Auglýsing um sveinspróf

Sveinspróf verða haldin í mars, apríl, maí og júní.

29.4.2010

Uppselt á byrjendanámskeið í Flash!

Ath. að öll sæti eru nú uppseld á byrjendanámskeið í Flash. Enn eru nokkur sæti laus á framhaldsnámskeið. Áhugasömum er bent á að skrá sig á biðlista fyrir næstu námskeið sem verða haldin í upphafi haustannar 2010.

29.4.2010

Sérfræðingar PIRA international í umbúðahönnun og prentun

Tveir sérfræðingar í umbúðahönnun og prentun halda málstofu hérlendis þann 17. maí nk. Málstofan er í tveimur hlutum. Fyrri hlutinn er um markaðsrannsóknir og markaðsmál fyrir umbúðahönnun og prentun.  Nick Waite, sérfræðingur í markaðsrannsóknum PIRA heldur fyrirlestur um þróun og horfur í umbúðahönnun og prentun fyrir hádegi. Seinni hlutinn er um hönnun umbúða þar sem Simon Smith hönnuður og sérfræðingur PIRA í umbúðahönnun fjallar um umbúðaprentun frá sjónarhóli hönnunar.

Málstofan verður haldin á Grand Hótel, sem fyrr segir þann 17. maí frá kl. 10.30 - 14.30. Skráning hér.

29.4.2010

Bein útsending á vefnum um Flash CS5

Adobe hefur nú gefið út CS5 svítuna sem ætla má að verði spennandi útgáfa af þessum frábæru umbrotsforritum. Mánudaginn 3. maí nk. verður bein útsending þar sem Flash CS5 verður sérstaklega tekið til kostanna. Fyrir þá sem vilja verða vitni að þessum ,,heimsviðburði" er einfaldast að skrá sig hér.

 

29.4.2010

Flash vika í maí!

Leon Baird sem er okkur að góðu kunnur sem frábær kennari í Flash kennir þétta dagskrá 10. - 14. maí í Flash CS4. Fyrra námskeiðið er fyrir byrjendur í Flash og verður kennt 10 og 11. maí nk. frá kl. 13.00 - 22.00 í Tölvuhúsi Tækniskólans. Frábært námskeið fyrir þá sem vilja setja sig inn í Flash CS4.

Seinna námskeiðið verður í beinu framhaldi þar sem Leon kennir kóðun og ítarlegri action scripting á þriggja daga stífu námskeiði. Sama tíma dags 12., 13. og 14. maí. Þeir sem halda út þetta bútkamp í Flash ættu að vera prýðilega færir í flestan sjó við skjámiðlun og skiltagerð á vefnum. Skráning hér!

Svo skemmtilega vill til að Adobe hefur útnefnt þessa sömu viku sérstaka kynningarviku í Flash CS5 (sem verður kennt í haust). Fyrir áhugasama er meira hér.

 

24.4.2010

Norræna nemakeppnin í matreiðslu og framreiðslu

NorrænaNoreg10Norrænu nemakeppninni lauk laugardaginn 24. apríl. Keppnin var mjög hörð og jöfn á milli Norrænu liðanna og fá stig skildu á milli efstu þriggja liðanna í keppninni. Matreiðlunemarnir Ari Þór Gunnarsson nemi á Fiskifélaginu og Ylfa Helgadóttir nemi hjá Fiskmarkaðnum unnu til silfur verðlauna eða annað sætið í keppninni. Þær Sigrún Þormóðsdóttir nemi á Humarhúsinu og Stefanía Höskuldsdóttir nemi á VOX unnu bronsið eða þriðja sætið í keppninni.  

23.4.2010

Norræna nemakeppnin í matreiðslu og framreiðslu

Framreiðsla10Norræna nemakeppnina í matreiðslu og framreiðslu fer fram dagana 23. - 24. apríl í Noregi. Keppendur koma frá Íslandi, Noregi, Svíþjóð, Finnland og Danmörku en þetta er í 24 skiptið sem keppnin er haldin. Keppnin hófst kl. 10 í morgun og sýnt er beint frá keppninni á slóðinni http://norcomp.blogspot.com. Frá Íslandi keppa í matreiðslu þau Ylfa Helgadóttir nemi á Fiskmarkaðnum og Ari Gunnarsson nemi hjá Fiskifélaginu. Í framreiðslu keppa þau Sigrún Þormóðsdóttir nemi á Humarhúsinu og Stefanía Höskuldsdóttir á VOX.

22.3.2010

Íslandsmót iðn- og verkgreina

Íslandsmót iðn- og verkgreina fór fram í Smáralind dagana 18. og 19. mars. Þetta var í fimmta sinn sem mótið var haldið og það stærsta hingað til á Íslandi.

Keppt var í eftirtöldum greinum: Málmsuðu, trésmíði, pípulögnum, bíliðngreinum, málaraiðn, dúklagningum, hársnyrtingu, snyrtifræði, grafískri miðlun og ljósmyndun, bakariðn, matreiðslu, framreiðslu, kjötiðn, skrúðgarðyrkju og rafvirkjun.

25.2.2010

Annað námskeið Völundarverks - Reykjavíkur hafið

Mánudaginn 22. febrúar sl. hófst annað námskeið Völundarverks - Reykjavíkur á Árbæjarsafni.  Að þessu sinni eru þátttakendur 18 sem allir eru húsasmiðir úr hópi atvinnuleitenda í Reykjavík.  Námskeiðið stendur í 4 vikur og er bæði bóklegt og verklegt.  Bóklegi hlutinn fer fram á Árbæjarsafni en verklegi hlutinn fer fram á Laugavegi 4 - 6 og á verkstæði við Stórhöfða.  Að loknu námskeiði munu þátttakendur halda til tímabundinna starfa við viðhaldsverkefni á vegum Reykjavíkurborgar.  

Völundarverk - Reykjavík er átaksverkefni sem unnið er í samstarfi IÐUNNAR fræðsluseturs, Reykjavíkurborgar, Vinnumálastofnunar, Húsafriðunarnefndar og Minjasafns Reykjavíkur.

18.2.2010

Forkeppni í matreiðslu fyrir Íslandsmót iðngreina

Íslandsmót10Íslandsmót iðn- og starfsgreina fer fram í Smáralindinni fimmtudaginn 18. og föstudaginn 19. mars nk. Á Íslandsmótinu verður keppt í samtals 15 starfsgreinum og sýning verður í öðrum 15 greinum. Mikill áhugi er á þátttöku í keppnum á Íslandsmótinu. Í matreiðslu og framreiðslu þurfti að halda forkeppnir til þess að velja úr þátttakendum. Forkeppnir í matreiðslu og framreiðslu fór fram miðvikudaginn 17. febrúar. Í matreiðslu tóku 23 nemar og sveinar þátt í forkeppninni og í framreiðslu tóku samtals 10 nemar þátt í forkeppninni. Sigurvegarar í nemakeppninni í Smáralindinni munu taka þátt í Norrænu nemakeppninni sem verður haldin í Noregi í apríl nk.

18.2.2010

Rífandi aðsókn að námskeiðum prenttæknsviðs

Góð aðsókn er að námskeiðum prenttæknisviðs á vorönn 2010 en alls eru 15 námskeið í gangi. Fullt er á Flash námskeið með Leon Baird og biðlisti eftir næsta. Sviðsstjóri mun setja upp nýtt námskeið í Flash um leið og fært er. Þá er von á sérfræðingum frá Heidelberg og Flint sem munu fjalla um farfa og valsaskipti í byrjun mars. Fullt er á valsaskiptinámskeiðið og óðum að fyllast á farfanámskeiðið. Önnur námskeið í umbroti og forvinnslu eru einnig orðin þéttsetin og aðeins um 2-3 sæti laus á hvert þeirra. Áhugasamir eru hvattir til að skrá sig strax til að ná sæti á námskeiðunum. 

9.2.2010

Sveinspróf í matreiðslu

Sveinspróf í matreiðslu, fyrri hluti, kalda stykkið, verður haldið 10.-11. mars n.k. í Hótel- og matvælaskólanum í Kópavogi.

Umsóknarfrestur er til 1. mars n.k. Seinni hluti prófs, heitur matur,  verður í maí. Nánari dagsetning auglýst síðar.

Með umsókn skal leggja fram afrit af námssamningi, lífeyrissjóðsyfirlit og burtfararskírteini eða staðfestingu skóla á því að nemi muni útskrifast í maí 2010.

Umsóknareyðublöð má nálgast á hér á  heimasíðu IÐUNNAR og skrifstofunni.

27.1.2010

Kynningarfundur raunfærnimats í húsasmíði, málaraiðn og pípulögnum

Kynningarfundur raunfærnimats í húsasmíði, málaraiðn og pípulögnum verður haldinn fimmtudaginn 4. febrúar kl. 17:00 að Skúlatúni 2, 1. hæð (gengið inn vestan megin).

22.1.2010

Völundarverk auglýsir eftir þátttakendum

KornhusidVölundarverk – Reykjavík auglýsir eftir þátttakendum í næsta verkefni sem hefst 22. febrúar nk.  Þátttakendur munu sækja fjögurra vikna námskeið um viðhald og viðgerðir á gömlum húsum.  Bóklegur hluti þess er haldinn á Árbæjarsafni og verklegur hluti á verkstað.  Þátttakendur starfa síðan tímabundið (3-6 mánuði) við verkefni á vegum Reykjavíkurborgar.   Þátttakendur munu fá greidd taxtalaun vegna tímabundinnar ráðningar skv. kjarasamningum Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags þegar vinna hefst að loknu námskeiði.  Umsóknareyðublöð eru hér.

Umsóknum skal skilað  til IÐUNNAR fræðsluseturs, Skúlatúni 2 eigi síðar en 1. febrúar 2010. 

 

21.1.2010

Stefnumótun IÐUNNAR í fullum gangi

Stefnumotun hopur 2

Stefnumótun IÐUNNAR er nú fullum gangi. Í nóvember hittust fulltrúar eigenda og starfsmenn á fundi á Hótel Heklu og mótuðu hugmyndir til framtíðar með Davíð Lúðvíkssyni frá Samtökum iðnaðarins. Nú í ársbyrjun hafa verið myndaðir hópar sem vinna úr þeim tillögum að verkefnum sem komu fram í nóvember. Fjórir hópar starfa nú að mótun verkefna sem síðan verða lögð fyrir stjórn IÐUNNAR. Nú í vikunni hittist hópur 2 sem fjallar um markaðsmál og kynningu á starfsemi IÐUNNAR. Hópinn leiða Björn M. Sigurjónsson og Iðunn Kjartansdóttir en hópinn skipa auk þeirra Haraldur Nelson, Halldór A. Guðmundsson, Oddgeir Þór Gunnarsson, Ólafur Magnússon, Sveinn Ingason, Þorsteinn Gunnarsson og Gylfi Einarsson. (Mynd: Björn M.)

7.1.2010

Námsvísir vorannar 2010 er kominn út

Forsíða námsvísis 2010Námsvísir vorannar er kominn út. Við hvetjum alla til að kynna sér framboð á námskeiðum og hafa samband við okkur ef spurningar vakna.

 

Skráning fer fram á heimasíðu eða í síma 590-6400.

 

Hægt er að hlaða niður PDF útgáfu af námsvísinum hér.

 

Kveðja, Starfsfólk IÐUNNAR fræðsluseturs


Slóðin mín:

Forsíða

Heim

Forsíða IÐUNNARIDAN.IS

Stjórnborð

Minnka letur Upphaflegt letur Stækka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd