27.1.2010
Kynningarfundur raunfærnimats í húsasmíði, málaraiðn og pípulögnum
Kynningarfundur raunfærnimats í húsasmíði, málaraiðn og pípulögnum verður haldinn fimmtudaginn 4. febrúar kl. 17:00 að Skúlatúni 2, 1. hæð (gengið inn vestan megin).
22.1.2010
Völundarverk auglýsir eftir þátttakendum
Völundarverk – Reykjavík auglýsir eftir þátttakendum í næsta verkefni sem hefst 22. febrúar nk. Þátttakendur munu sækja fjögurra vikna námskeið um viðhald og viðgerðir á gömlum húsum. Bóklegur hluti þess er haldinn á Árbæjarsafni og verklegur hluti á verkstað. Þátttakendur starfa síðan tímabundið (3-6 mánuði) við verkefni á vegum Reykjavíkurborgar. Þátttakendur munu fá greidd taxtalaun vegna tímabundinnar ráðningar skv. kjarasamningum Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags þegar vinna hefst að loknu námskeiði. Umsóknareyðublöð eru hér.
Umsóknum skal skilað til IÐUNNAR fræðsluseturs, Skúlatúni 2 eigi síðar en 1. febrúar 2010.
21.1.2010
Stefnumótun IÐUNNAR í fullum gangi
Stefnumótun IÐUNNAR er nú fullum gangi. Í nóvember hittust fulltrúar eigenda og starfsmenn á fundi á Hótel Heklu og mótuðu hugmyndir til framtíðar með Davíð Lúðvíkssyni frá Samtökum iðnaðarins. Nú í ársbyrjun hafa verið myndaðir hópar sem vinna úr þeim tillögum að verkefnum sem komu fram í nóvember. Fjórir hópar starfa nú að mótun verkefna sem síðan verða lögð fyrir stjórn IÐUNNAR. Nú í vikunni hittist hópur 2 sem fjallar um markaðsmál og kynningu á starfsemi IÐUNNAR. Hópinn leiða Björn M. Sigurjónsson og Iðunn Kjartansdóttir en hópinn skipa auk þeirra Haraldur Nelson, Halldór A. Guðmundsson, Oddgeir Þór Gunnarsson, Ólafur Magnússon, Sveinn Ingason, Þorsteinn Gunnarsson og Gylfi Einarsson. (Mynd: Björn M.)
7.1.2010
Námsvísir vorannar 2010 er kominn út
Námsvísir vorannar er kominn út. Við hvetjum alla til að kynna sér framboð á námskeiðum og hafa samband við okkur ef spurningar vakna.
Skráning fer fram á heimasíðu eða í síma 590-6400.
Hægt er að hlaða niður PDF útgáfu af námsvísinum hér.
Kveðja, Starfsfólk IÐUNNAR fræðsluseturs
Leit
Mynd














