28.3.2007
Íslandsmót iðnnema 2007

Íslandsmót iðnnema var haldið hinn 23. mars á degi iðn- og starfsmenntunar.
Íslandsmótið er ætlað iðnnemum sem eru 22 ára og yngri. Þátttakendur voru 75 og komu frá flestum framhaldsskólum á landinu.
Í ár var keppt í stálsmíði, málmsuðu, rafvirkjun, trésmíði, málun, múrverki, dúklagningu, pípulögnum, snyrtifræði, hársnyrtiiðn, bílgreinum, grafískri miðlun og ljósmyndun.
Sigurvegari í málmsuðukepnni var Jevgjenijs Guls frá Fjöltækniskóla Íslands en hann sigraði í kverksuðu, TIGsuðu og var með besta smíðastykkið (lítið kolagrill). Í logsuðu sigraði Eðvarð Þór Helgason Verkmenntaskólanum á Akureyri.
Í hársnyrtiiðn sigraði Guðrún Soffía Ólafsdóttir frá Iðnskólanum í Reykjavík og í snyrtifræði Katrín Ósk Gunnarsdóttir frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti.
Sigurvegari í trésmíði var Einar Birkir Sveinbjörnsson frá Menntaskólanum á Ísafirði, í múrverki Jón Hrafn Karlsson frá Iðnskólanum í Reykjavík. Í pípulögnum sigraði Jón Ævar Tómasson frá Iðnskólanum í Hafnarfirði, í dúklagningu Sigurjón Ari Reynisson frá Iðnskólanum í Reykjavík og í málun Gunnar Guðjónsson frá Iðnskólanum í Reykjavík. Í grafískri miðlun sigraði Jón Cleon Sigurðsson og í ljósmyndun Valdís Þórðardóttir bæði frá Iðnskólanum í Reykjavík.
Leit
Mynd














