Beint á leiðarkerfi vefsins

11.4.2007

IÐAN og HR undirrita samning um stjórnendanám

Samningurinn markar tímamót þar sem tekist verður með markvissari hætti en áður á við stjórnunar- og rekstrarþekkingu í íslenskum iðnaði. Þá verður lögð áhersla á vinnumarkaðsrannsóknir í iðnaði auk þess sem hæfni stjórnenda við þjálfun iðnnema í vinnustaðanámi verður bætt.  

Stjórnunar-, rekstrar- og markaðsnám fyrir stjórnendur í þeim greinum sem IÐAN sinnir

Iðan og HR stefna að því að hefja stjórnunar-, rekstrar- og markaðsnám í janúar 2008. Markmið námsins er að efla stjórnunar- og rekstrarþekkingu stjórnenda í iðnaði og verður námið metið til eininga í framhaldsnámi í Háskólanum í Reykjavík. 

Rannsóknir á sviði iðn- og starfsnámsgreina.

IÐAN og HR gera með sér samkomulag um rannsóknir á sviði iðnaðar. Þær taki m.a. til iðn- og starfsmenntunar, verk- og tæknifræði, nýliðunar í iðngreinum og færni í einstökum námsgreinum, s.s. stærðfræði.  

Þjálfun kennara / leiðbeinenda á vinnustöðum.

Svafa Grönfelt og Sveinn Hannesson undirrita samninginn

Svafa Grönfelt og Sveinn Hannesson undirrita samninginn 

IÐAN og HR vinna að sérstöku samkomulagi um að bjóða kennslufræði á vinnustað og hefst kennslan formlega í janúar 2008. Markmið námsins er að gera starfsmenn hæfa til að kenna og þjálfa í fyrirtækjum, og koma á framfæri sérfræðikunnáttu sinni.  Námið verður metið til eininga hjá HR.


Slóðin mín:

Forsíða

Heim

Forsíða IÐUNNARIDAN.IS

Stjórnborð

Minnka letur Upphaflegt letur Stækka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd