26.4.2007
Úthlutun úr starfsmenntasjóði félagsmálaráðuneytisins í apríl 2007
Starfsmenntaráð auglýsti í febrúar sl. eftir umsóknum um styrki til starfsmenntunar í atvinnulífinu. Auglýst var eftir umsóknum í 3 flokka verkefna auk opins flokks, en til úthlutunar voru 55 milljónir. Alls sóttu 57 aðilar um styrk samtals að upphæð kr. 180.615.234 til 109 verkefna. Fengu 25 aðilar úthlutað styrkjum samtals að upphæð kr. 48.340.000 til 45 verkefna.
IÐAN fræðslusetur fékk úthlutað styrkjum til 8 verkefna en þau eru m.a. til þróunar og þjálfunaruppbyggingu á vinnustað, vélstjórnar í prentiðnaði, þróunar á plastsuðunámskeiðum og kennslu á iðntölvur og iðntölvustýringar.
Leit
Mynd














