15.5.2007
Fyrsti samningur um raunfærnimat undirritaður
Raunfærni er öll færni sem einstaklingur hefur náð með starfsreynslu, starfsnámi, frístundanámi, skólanámi, félagsstörfum og í einkalífi. Raunfærnimat er staðfesting á henni. Markmiðið með
raunfærnimati er að fá raunfærni sína viðurkennda til þess að geta fengið framgang í starfi og til þess að þurfa ekki að sækja nám í því sem maður kann.
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og IÐAN fræðslusetur hafa undirritað samning um raunfærnimat. IÐAN mun bjóða upp á þjónustu náms- og starfsráðgjafa og þróun aðferða í raunfærnimati, sem eru sérstaklega til þess fallnar að nýtast þeim sem hófu iðnnám en luku ekki sveinsprófi. IÐAN mun vinna í samstarfi við starfsgreinaráð, framhaldsskóla eða aðra aðila eftir atvikum.
Samningurinn byggir á yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar til að greiða fyrir samkomulagi Alþýðusambands Íslands og Samtökum atvinnulífsins um framlengingu kjarasamninga frá 22. júní 2006 og viðaukasamningi við menntamálaráðuneytið frá 26. janúar 2007 um fjármögnun til að gera fræðslumiðstöðvum í löggiltum iðngreinum kleift að bjóða þjónustu náms- og starfsráðgjafa og þróa raunfærnimat.
Þetta er fyrsti samningur sem gerður er um raunfærnimat eftir að Fræðslumiðstöð atvinnulífsins hóf þróunarvinnuna samkvæmt samningi við menntamálaráðuneytið frá miðju ári 2003.
Leit
Mynd














