Beint á leiðarkerfi vefsins

7.6.2007

Próf fyrir bílasala - endurtökupróf

Ákveðið hefur verið að halda endurtökupróf fyrir þá sem hafa sótt námskeið fyrir bifreiðasala en náðu ekki tilskildum árangri. Hver þátttakandi hefur rétt til að þreyta endurtökupróf tvisvar sinnum en eftir það verður hann að sækja námskeið á nýjan leik.

 

Prófið verður haldið hjá Iðunni, Hallveigarstíg 1 þriðjudaginn 19. júní 2007 kl. 08:30 til 11:00. Fyrirvari er gerður um næga þátttöku.

 

Staðfesta þarf þátttöku í prófinu í síðasta lagi fimmtudaginn 14. júní 2007 með greiðslu próftökugjalds sem er 26.500 kr. samkvæmt reglugerð um námskeið og próf bifreiðasala. Próftökugjaldi leggist inn á reikning 0513-26-002044 kt. 551203-2980 í síðasta lagi 14. júní nk.

 

Prófað er úr námsefni sem lagt var fram á námskeiði fyrir bílasala í apríl 2007.


Slóðin mín:

Forsíða

Heim

Forsíða IÐUNNARIDAN.IS

Stjórnborð

Minnka letur Upphaflegt letur Stækka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd