Beint á leiðarkerfi vefsins

7.6.2007

Danir undirbúa kennslu með farsímum

 Í Danmörku er rannsakað hvort kenna megi með þriðju kynslóðar farsímum. Tilraunir hafa verið gerðar með að senda stutta kennslumola til stétta sem nota ekki tölvur í sínum störfum. Til dæmis hefur verið prófað hvort danskir bændur geti nýtt sér stutt myndskeið um áburðarnotkun, eða rétta sláttutíð. Önnur dæmi eru af starfsfólki við umönnun aldraðra sem fá leiðbeiningar um böðun ósjálfbjarga í símann.

Íslenskir fræðsluaðilar fylgjast grannt með tilraunum Dana og þess má vænta að í framtíðinni verði farsíminn jafn sjálfsagt kennslutæki og krítartaflan.


Slóðin mín:

Forsíða

Heim

Forsíða IÐUNNARIDAN.IS

Stjórnborð

Minnka letur Upphaflegt letur Stækka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd