13.6.2007
Írarnir eru farnir....
Írsku nemarnir eru farin eftir þriggja vikna dvöl. Þau voru öll himinlifandi yfir móttökunum. Christine sem var á Sjávarkjallaranum segir að dvölin hafi verið í einu orði sagt ótrúleg, hún segist hafa fengið frábæra leiðsögn. Það sem stóð upp úr var fiskurinn og framsetning rétta. Þau töluðu öll um að framsetning matarins hér hafi verið frábær. Patrik var á Perlunni og var alsæll, frábær staður og frábært starfsfólk! Emma og Sarah voru á Nordicu fannst skemmtilegast að vera á dagvaktinni, maturinn frábær, skipulagið einstakt. David og Steven voru hjá JT veitingum á Hótel Loftleiðum. Þeir voru ánægðir og segjast vera orðnir sérfræðingar í smáréttum. Fulltrúi frá Landsskrifstofu Leoanrdo á Íslandi hitti hópinn og lýsti mikilli ánægju með framtakið og hversu vel veitingastaðirnir tóku á móti nemunum. Hópurinn verður með kynningu á verkefninu fyrir Landsskrifstofu Leonarodo í London og víða. Góð landkynning! Næsti hópur kemur í október.
Leit
Mynd














