Beint á leiðarkerfi vefsins

21.6.2007

Bættu um betur í húsasmíði lokið

Nú hefur fyrsti hópurinn í Bættu um betur í húsasmíði lokið raunfærnimatsferlinu. Þrjátíu og einn einstaklingur tók þátt í tilraunaverkefninu en umsækjendur voru 60. Í verkefninu var einungis verið að skoða faggreinar húsasmíðanámsins og eru þær 21 talsins, af þeim voru 19 greinar til raunfærnimats. Var mikil ánægja með styrkleika hópsins og voru metnar samtals 893 einingar, sem er að meðaltali tæpar 30 einingar á hvern einstakling.
Næstu skref hjá hópnum er nám í Iðnskólanum í Reykjavík og hefur skólinn mótað námsáætlun sem kemur mikið til móts við þarfir hópsins með einstaklingsmiðuðu námi. Nokkrir þátttakendur stefna á sveinspróf í janúar en meirihluti hópsins hyggur á það að lokinni vorönn 2008.

 BUB husasmidi
Þátttakendur í Bættu um betur í húsasmíði ásamt
Iðunni Kjartansdóttur, námsráðgjafa.

 


Slóðin mín:

Forsíða

Heim

Forsíða IÐUNNARIDAN.IS

Stjórnborð

Minnka letur Upphaflegt letur Stækka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd