Beint á leiðarkerfi vefsins

8.8.2007

Nýsveinar í bókiðngreinum

    Að þessu sinni var 7 nemum afhent sveinsbréf í grafískri miðlun, tveimur í prentun og einum í bókbandi. Katrínu Jónsdóttur voru veitt verðlaun fyrir framúrskarandi árangur á sveinsprófi í grafískri miðlun. Katrín hlaut 10 í einkunn og er það hæsta einkunn sem veitt hefur verið fyrir árangur á sveinsprófi. 

Nemum í prentun og bókbandi hefur farið fækkandi á síðustu árum. Það sama á við um sumar aðrar iðngreinar. IÐAN fræðslusetur hefur lagt drög að kynningarátaki og öðrum verkefnum til að stuðla að viðgangi þeirra iðngreina sem eiga erfitt uppdráttar.


Slóðin mín:

Forsíða

Heim

Forsíða IÐUNNARIDAN.IS

Stjórnborð

Minnka letur Upphaflegt letur Stækka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd