15.8.2007
Námskeiðstyrkur - viltu fara til Finnlands?
Ætlunin er að styrkja tvo nemendur, prentnema, nýsveina eða sveina í prentun undir þrítugu. Námskeiðið er samnorrænt og kennt á ensku. Gist verður á heimavist Jyvaskyla skólans. Farið verður rækilega í stafræna prenttækni, prentferla á Xeikon D500 og sambærilegar vélar, viðhald og þjónustu stafrænna prentvéla, gæðastjórnun, framleiðslustjórnun, prentun breytilegra gagna (variable data printing) og helstu strauma og stefnur.
Styrkurinn nemur námskeiðsgjöldum, gistikostnaði og ferðakostnaði.
Upplýsingar veitir Björn M. Sigurjónsson sviðsstjóri Prenttæknisviðs.
Leit
Mynd














