13.9.2007
Vel mætt á Ben Willmore
Góð þátttaka var á Photoshop námskeiði með Ben Willmore sem hófst í morgun. Uppselt er á námskeiðið en 40 sæti voru í boði. Ben var kátur með Íslandsheimsóknina að þessu sinni þó það rigndi hressilega á hann við komuna hingað. Ben kennir í dag og á morgun í ráðstefnurými í Laugardalshöll frá 8.00-16.00. Að námskeiðinu loknu fer hann í nokkurra daga ferðalag um Ísland á húsbíl sem hann hefur leigt sér.
Leit
Mynd














