17.9.2007
Yfirlit yfir bestu aðferðir rekstrar
IÐAN fræðslusetur heldur námskeið í samvinnu við Háskólann í Reykjavík um bestu aðferðir rekstrar. Námskeiðið er ætlað stjórnendum, millistjórnendum og tilvonandi stjórnendum. Á námskeiðinu verður farið yfir flestar þær aðferðir sem beitt er við rekstur lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Markmiðið með námskeiðinu er að nemendur geri sér grein fyrir því hvaða hluti af rekstrarnámi hentar þeim og þeirra fyrirtækjum. Í framhaldinu geta þátttakendur valið sér lengri námskeið í gegnum Símennt HR.
Allir stjórnendur og starfsmenn iðnfyrirtækja eru hvattir til að nýta sér þetta tækifæri.
Leit
Mynd














