27.9.2007
Blái salurinn vaknar á ný!
Ingi Erlingsson, ungur hönnuður í London, heldur fyrirlestur um notkun teiknimynda í auglýsingum í Bláa salnum í Háskólanum í Reykjavík í Kringlunni (gamla Morgunblaðshúsið) 11. október.
Ingi Erlingsson var fenginn til að gera teiknimyndir í auglýsingu Hvíta hússins fyrir Umferðarstofu sem sýndar voru í sumar. Auglýsingarnar blönduðu saman teiknimyndum og vídeó á áhrifaríkan hátt. Á klukkutíma fyrirlestri gerir hann grein fyrir vinnuferlinu og þeim aðferðum sem hann beitti, forritum sem hann notaði og hugmyndunum sem unnið var úr.
Ingi er 25 ára gamall hönnuður búsettur í London. Síðastliðin tvö ár hefur hann starfað í New York og London, en er nú Art Director fyrir hönnunarstofuna ilovedust og veitir hreyfimyndadeild fyrirtækisins forstöðu. Hann hefur gert teiknimyndir fyrir aðila á borð við Nike, Jordan, Pepsi, Comedy Central, Universal, Beyoncé Knowles, Macy´s, Barclays, Orange og var nýlega fenginn til að hanna forsíðu tímaritsins Computer Arts.
Leit
Mynd














