23.10.2007
Forstjóri Oxford University press til Íslands
George Thomas, forstjóri Oxford University Press heldur fyrirlestra og málstofur 9. nóvember nk. George hefur náð undraverðum árangri í rekstri prentsmiðju Oxford bókaútgáfunnar. Hann hefur ma. aukið hagnað um 58% og sölu um 33% á sama tíma og starfsmannafjöldi hefur eingöngu vaxið um 4%. Þá hefur hann náð miklum árangri í ráðningum starfsmanna og lækkað starfsmannaveltu niður í 4%.
George kynnti árangur sinn og aðferðirnar sem hann beitti við að ná honum á þingi EGIN síðastliðið vor og í kjölfarið var honum boðið að heimsækja Ísland.
George heldur hádegisfyrirlestur kl. 12.00 í Bláa sal HR í Kringlunni (gamla Morgunblaðshúsinu). Þá mun George einnig halda málstofur um ráðningar á rétta fólkinu og hvernig staðið skal að aukningu sölu.
Leit
Mynd














