1.11.2007
Terence O´Reilly fjallar um starfsmannastjórnun í prentiðnaði
Terence O´Reilly, starfsmannastjóri Oxford University Press fjallar um starfsmannastefnu Oxford U.P. á málstofu 9. nóvember nk. kl. 9.30-11.00. Hann kemur í stað George Thomas sem gerði sér lítið fyrir og bauð samstarfsmanni sínum með til Íslands.
Terence O´Reilly hefur verið starfsmannastjóri OUP síðastliðin 8 ár og hefur yfir 20 ára reynslu af starfsmannastjórnun í prentiðnaði í Bretlandi. Hann er félagi í Chartered Institute of Personnel and Development sem eru samtök framúrskarandi starfsmannastjóra á Bretlandseyjum. Hann er einnig harður aðdáandi Manchester United og hefur verið frá fæðingu.
Skráning á málstofur með þeim Terence og George eru undir linknum námskeið hér til hægri.
Leit
Mynd














