Beint á leiðarkerfi vefsins

5.2.2008

Verðlaun Iðnaðarmannafélags Reykjavíkur

Dagskráin var hin hátíðlegasta. Menntamálaráðherra Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir setti hátíðina og impraði á frumvarpi til laga um framhaldsskóla sem nú liggur fyrir Alþingi. Í frumvarpinu er sú nýjung að iðn- og starfsmenntun hefur jafnstöðu á við stúdentspróf. Svafa Grönfeldt rektor Háskólans í Reykjavík bauð alla nýsveina velkomna til náms og sagði frá rannsókn sem sýndi að iðnmenntaðir nemendur við HR standa sig alla jafna betur en aðrir í námi við HR.
Forseti Íslands hr. Ólafur Ragnar Grímsson er verndari hátíðarinnar. Í ræðu sinni minnti hann á þau verðmæti sem liggja í gömlum húsum, ekki eingöngu í efnislegum verðmætum heldur þeirri sögu handverks og listfengis sem í þeim finnst.
Graduale kór Langholtskirkju söng undir stjórn Jóns Stefánssonar og Tríó ungra Hafnfirðinga flutti djasslög.   


Slóðin mín:

Forsíða

Heim

Forsíða IÐUNNARIDAN.IS

Stjórnborð

Minnka letur Upphaflegt letur Stækka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd