20.2.2008
Hver sér vefinn þinn? Hádegisfyrirlestur 26. febrúar
Hver sér vefinn þinn? er yfirskrift hádegisfyrirlestrar sem Kristján Már Hauksson flytur þriðjudaginn 26. febrúar. Hann fjallar um nýjustu rannsóknir á því hvernig netnotendur skoða vefi og greinir frá aðferðum til að hámarka leitarniðurstöður leitarvéla. Fjölmörg fyrirtæki nýta sér ekki þá möguleika sem felast í internetinu. Með einföldum aðgerðum má auka notkun vefjanna og þannig ná betri útbreiðslu á veraldarvefnum.
Fyrirlesturinn er haldinn í Bláa Salnum (gamla Morgunblaðshúsinu) í Kringlunni þriðjudaginn 26. febrúar kl. 12.10. Ókeypis inn og aðgangur öllum heimill meðan húsrúm leyfir.
Kristján Már Hauksson er sviðsstjóri Internetmarkaðssetningar hjá Nordic eMarketing. Hann er rafeindavirki, kerfisfræðingur og með sérmenntun í vefmarkaðssetningu frá University of British Columbia.
Leit
Mynd














