
Sveinsprófin í matvæla- og veitingagreinum fóru fram í desember sl. Í matreiðslu luku 12 sveinsprófi, í framreiðslu sjö, þrír í bakaraiðn og einn í kjötiðn. IÐAN fræðslusetur gefur nýsveinum gjafabréf á námskeið á vegum IÐUNNAR m.a. til þess að leggja áherslu á mikilvægi símenntunar í þjónustu og iðnaði.