
Á námskeiðinu var fjallað um mismunandi hitakerfi þ.e. ofnakerfi, blásarakerfi, geislakerfi og gólfhitunarkerfi. Farið var í val á ofnum og ofnlokum til stýringa ofnakerfa. Fjallað var um varmatap, flutning varma með geislum, leiðni og lofthreyfingu, um uppsetningu tækja og lagna í tækjaklefa. Farið var í val á þrýstijafnara og p-band og kv-gildi kynnt. Á námskeiðinu var farið í hvernig á að jafnvægisstilla hitakerfi og fengu nemendur verklega leiðsögn. Á námskeiðinu var byggingareðlisfræði kynnt m.a. formúlur og hitadreifing. Fjallað var um hitamenningu þ.e. hitaþægindi og skynjunarhitastig. Farið var í hvernig á að ákvarða stærð á pípu með tillit til flutningsgetu.