
Í apríl 2007 hleypti Orkuveita Reykjavíkur í samstarfi við Sjóvá Forvarnarhús, Landspítala Háskólasjúkrahús og byggingafulltrúann í Reykjavík af stokkunum átakinu „Stillum hitann hóflega". Markmiðið með átakinu var að fækka brunaslysum af völdum heits neysluvatns og höfða til almennings og fagaðila um hitastýringu á heitu neysluvatni. Einn hluti átaksins var að undirbúa og standa fyrir námskeiði fyrir fagmenn. Á námskeiðinu var afrakstur samvinnu Orkuveitunnar við Ísleif Jónsson, Tengi og Danfoss sýndur, þar sem lagnasalar höfðu þróað lausn sem hentar í eldri húsnæðum. Námskeiðsgögn hafa verið afhent Iðunni Fræðslusetri sem mun halda utan um það í framtíðinni og er það komið inn á fræðsludagskrá þeirra fyrir vorið 2008.
Þótt vissulega beri að fagna merkum áfanga í þessum málum, er rétt að minna á að víðast hvar í eldra húsnæði hefur ekkert verið gert. Lausnir á viðfangsefninu hafa raunar lítt verið á boðstólum. Nú hafa lagnaefnissalar hinsvegar svarað kalli og þróað lausnir sem henta íslenskum aðstæðum.