29.2.2008
Leon Baird kennir InDesign og Flash
Leon kennir grafíska hönnun, umbrot, týpógrafíu, Animation, TooBoom, Flash, gagnvirka forritun, klippingar og myndbandsgerð ásamt visual FX og samsetningu. Hann er einnig gestakennari við Kings College í London. Frá 1993-2004 starfaði Leon við grafíska hönnun og umbrot, kennslu, ráðgjöf og rekstur margmiðlunar. Leon er einn virtasti kennari í hreyfimyndagerð á Adobe forrit í London og mikill fengur að komu hans hingað.
InDesign námskeið með Leon verður haldið 8. og 9. apríl í tölvuhúsi Iðnskólans. Flash námskeiðið verður hins vegar haldið 10. og 11. apríl. Námskeiðin eru ætluð grafískum hönnuðum, grafískum miðlurum, prentsmiðum, hönnuðum, teiknurum og öllum þeim sem vilja nota InDesign eða Flash í störfum sínum. Flash er óðum að verða helsta tæki hönnuða til að búa til hreyfiskilti á vef. Í Flash sameinast sveigjanleiki vektor mynda og hreyfimyndagerð, gagnvirkni, video og hljóð til að búa til myndefni sem nær til áhorfandans. Action Scripting tækin og samvirkni þeirra við Photoshop og Illustrator gerir Flash að hönnunartæki með endalausum möguleikum. Skrá mig á námskeiðið
Leit
Mynd














