5.3.2008
Bættu um betur
Margir einstaklingar á vinnumarkaði hafa í gegnum áralanga reynslu byggt upp umtalsverða færni í ákveðinni iðngrein, en ekki lokið námi af einhverjum ástæðum. Þessir einstaklingar búa yfir raunfærni sem vert er að skoða og meta. Raunfærni er samanlögð færni sem einstaklingur hefur náð með ýmsum hætti, s.s. starfsreynslu, starfsnámi, frístundanámi, skólanámi, félagsstörfum og fjölskyldulífi.
Bættu um betur er tilraunaverkefni þar sem gengið er út frá að eðilegt sé að meta færni sem til staðar er óháð því hvernig hennar hefur verið aflað.
Verkefnið felst í því að búa til leiðir til að meta færni þátttakenda, stöðu þeirra og gefa þeim kost á að ljúka námi sínu. Mat á raunfærni byggir á þeirri hugmynd að nám fari ekki eingöngu fram innan formlega skólakerfisins heldur í alls konar aðstæðum en að allt nám sé verðmætt og að það sé skjalfest óháð því hvar þess hefur verið aflað. Tilgangur raunfærnimats er að draga fram og meta fjölbreytilega raunfærni sem einstaklingurinn býr yfir.
Nánari upplýsingar fást í síma 590-6400. Jafnframt er hægt að senda tölvupóst á radgjof@idan.is
Leit
Mynd














