Beint á leiğarkerfi vefsins

31.3.2008

Norskir ağilar fá kynningu á starfssemi IĞUNNAR

Starfsmenn OBI fá kynningu á starfsemi HellisheiðavirkjunarFimmtudaginn 27. mars nýttu sér sjö starfsmenn OBI ba (Opplæringskontoret for byggfagene i Inn-Tröndelag, www.obi-ba.no ) sér heimboð Bygginga- og mannvirkjasviðs IÐUNNAR (BYG).  Í upphafi dags héldu báðir aðilar kynningu á starfssemi sinni, áherslum, umgjörð og aðferðum. Kynning á starfssemi IÐUNNAR var í höndum þeirra Iðunnar Kjartansdóttur og Helen Williamsdóttur Gray. Iðunn sá um kynningu á þeirri starfssemi sem snýr að námsráðgjöf og raunfærnimati. Helen var svo með almenna kynningu á starfssemi IÐUNNAR, með áherslu á starfssemi Bygginga- og mannvirkjasviðs. Jafnóðum og ekki síður að kynningum loknum spunnust svo umræður um mismunandi aðferðir og umhverfi, kosti og galla þess umhverfis sem báðir aðilar starfa í. Þessi heimsókn er mikilvægur liður í þeirri vinnu BYG að mynda tengslanet við félög og stofnanir erlendis sem einnig hafa það hlutverk að sinna endur- og símenntun starfsmanna í byggingariðnaði.

Eins vilja forráðasmenn OBI endurgjalda gestrisni BYG og bjóða starfsmönnum sviðsins í heimsókn til Noregs sem án alls efa verður þegið með þökkum því mikill samhljómur er í starfsemi þessarra tveggja félaga og mikið hægt að læra og nýta með heimfærslu á þekkingu, vinnuaðferðum sem og ýmissi umgjörð þeirra starfssemi.

Starfsmenn OBI fá kynningu á plastkubbahúsum Varmamóta ehf.Að lokinni kynningu morgunsins var farið í vettvangsferð.  Kl. 13:00 voru allir mættir í Hellisheiðavirkjun þar sem við fengum kynningu á starfsseminni og sýn inn í kosti endurnýtanlegrar orku jarðar.  Að þeirri kynningu lokinni var haldið áfram austur yfir Hellisheiði þar sem Óskar Jónsson, framkvæmdastjóri SG Húsa á Selfossi kynnti starfssemi félagsins. Fengum við kynningu á uppruna og starfsemi fyrirtækisins, skoðunarferð gegnum verksmiðjuna sem og kynningu á SG Húsum á tveimur mismunandi byggingarstigum. Mjög áhugaverð og skemmtileg kynning. Því næst var brunað aftur yfir heiðina og til Hafnafjarðar. Þar var búið að skipuleggja kynningu á plastkubbahúsum Varmamóta ehf. og sá Guðmundur Guðbjörnsson framkvæmdastjóri um að fræða viðstadda um kosti plastkubba sem byggingarefnis. Þar var sama leið farin, þ.e. í kynningunni voru skoðuð tvö hús á mismunandi byggingarstigi og þótti þessi byggingarstíll ekki síður áhugaverður, enda frekar framandi fyrir Norðmennina en timburhús, sem eru algengur byggingarmáti í Noregi.


Slóğin mín:

Forsíğa

Heim

Forsíğa IĞUNNARIDAN.IS

Stjórnborğ

Minnka letur Upphaflegt letur Stækka letur Senda şessa síğu Prenta şessa síğu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd