Beint á leiðarkerfi vefsins

23.6.2008

Raunfærnimat: Bættu um betur

Þann 18.júní útskrifaðist 12 manna hópur úr fyrsta raunfærnimatsverkefninu á Norðurlandi sem stýrt var af IÐUNNI fræðslusetri í samstarfi við Símey, VMA og Fræðslumiðstöð atvinnulífsins.

Fræðslumiðstöð atvinnulífsins hefur þróað viðurkennt ferli sem hægt er að nýta til að kortleggja þekkingu fólks og meta inn í hið formlega skólakerfi. Með  þekkingu fólks er átt við að nám getur farið fram á ýmsan hátt; í vinnu, félagsstarfi og persónulegu lífi. IÐAN fræðslusetur vinnur að raunfærnimati innan iðngreina og í þessu verkefni voru þátttakendur úr bílgreinum, húsasmíði og pípulögnum. Þátttakendur fóru í gegnum ákveðið ferli með viðtölum við námsráðgjafa, færnimöppugerð, yfirferð matslista og matsviðtöl. Óhætt er að segja að hópurinn hafi staðið sig frábærlega og fengið ófáar einingar metnar inn í skólakerfið. Þetta verður þátttakendum vonandi hvatning til að halda áfram námi og stefna á sveinspróf í góðu samstarfi við IÐUNA fræðslusetur og VMA.

IÐAN fræðslusetur óskar þátttakendum til hamingju með árangurinn og samstarfsaðilum afar skemmtilegt samstarf í verkefninu.


Slóðin mín:

Forsíða

Heim

Forsíða IÐUNNARIDAN.IS

Stjórnborð

Minnka letur Upphaflegt letur Stækka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd