14.11.2008
Auglýsing um sveinspróf
Auglýsing um sveinspróf
Sveinspróf í eftirtöldum iðngreinum verða haldin sem hér segir ef næg þátttaka fæst:
Í matreiðslu, framreiðslu, bakaraiðn og kjötiðn 2.-12. desember. Umsóknarfrestur er til 1. nóvember.
Sveinspróf í húsasmíði verða haldin 12.-14. desember, í pípulögnum 10.-12. desember og málaraiðn 15.-19. Umsóknarfrestur er til 1. nóvember.
Sveinspróf í bifreiðasmíði 30.-31. janúar, sveinspróf i bílamálun 6.-7. febrúar og í bifvélavirkjun 6. febrúar 2009. Umsóknarfrestur er til 1. desember.
Í hársnyrtiiðn dagana 10.-11. og 17.-18. janúar 2009, skriflegt próf 5. janúar kl. 17.00 að Skúlatúni 2, 105 Reykjavík. Umsóknarfrestur er til 1. desember.
Í snyrtifræði dagana 10.-11. og 17.-18. janúar, skriflegt próf 9. janúar. Umsóknarfrestur er til 1. desember.
Í málmiðngreinum í janúar - mars 2009, ef næg þátttaka fæst. Umsóknarfrestur er til 1. desember fyrir aðrar greinar en vélvirkjun.
Umsóknarfrestur fyrir sveinspróf í vélvirkjun er til 1. janúar 2009, prófið verður haldið dagana 27. febrúar til 1. mars.
Með umsókn skal leggja fram afrit af námssamningi, lífeyrissjóðsyfirlit og burtfararskírteini með einkunnum eða staðfestingu skóla á því að nemi muni útskrifast í desember 2008.
Kostnaður próftaka s.s. efniskostnaður er mismunandi eftir iðngreinum.
Umsóknareyðublöð má nálgast á heimasíðu okkar og á skrifstofunni.
Leit
Mynd














