7.11.2008
Áhugi fyrir GEMS
Þann 6. Nóvember voru niðurstöður tilraunaverkefnisins GEMS - Guidance for Educators, Mentors and Students (http://www.leogems.org/) kynntar. Ólöf Ýrr Atladóttir, Ferðamálastjóri setti ráðstefnuna en María Kristín Gylfadóttir verkefnisstjóri Alþjóðaskrifstofunnar stýrði henni. Helen Gray verkefnisstjóri GEMS gerði grein fyrir tilurð og þróun verkefnisins. Jón Torfi Jónasson forseti menntavísindasviðs Háskóla Íslands, Hróbjartur Árnason lektor námsbrautarstjóri Kennsluréttindabraut menntavísindasviðs HÍ héldu erindi um vinnustaðanám og Anne-Christin Tannhäuser, Menntavísindasvið Háskóla Íslands gerði grein fyrir ytra mati og niðurstöðum könnunar um verkefnið. Nemendur af ferðamálabraut Menntaskólans í Kópavogi héldu erindi um nemandaskipti og Hrefna Sætran matreiðslumaður fjallaði um ávinninginn af því að vera með nema. Þorvaldur Þorsteinsson rithöfundur og myndlistarmaður fjallaði skapandi lærdóm. Ráðstefna var haldin á Hilton Reykjavik Nordica Hotel. Aðsókn var góð og mikill áhugi fyrir því að efla nemaskipti í matvæla-, veitinga- og ferðaþjónustugeirum. Hægt er að skoða dagskrána hér. Markmið verkefnisins er að auka gæði og gagnsæi í vinnustaðanámi með því að hanna kennsluefni og leiðbeiningar fyrir kennara og tilsjónarmenn í matreiðslu, framreiðslu og ferðaþjónustugreinum með áherslu á nemaskipti milli landa. Þátttakendur í tilraunaverkefninu koma frá Belgíu, Norður-Írlandi, Svíþjóð, Póllandi og Íslandi.
Leit
Mynd














