Beint á leiðarkerfi vefsins

8.12.2008

Menntaáætlun Evrópusambandsins

Annað hvert ár eru veittar gæðaviðurkenningar fyrir Leonardo mannaskiptaverkefni. Nú er komið að því að veita viðurkenningar fyrir Leonardó fyrirmyndarverkefni fyrir árin 2005 og 2006. Það er sérstök ánægja að tilkynna að IÐAN fræðslusetur er meðal 9 fyrirmyndarverkefna fyrir árin 2005-2006 og verða kynnt sérstaklega nýjum bæklingi Leonardo mannaskiptaverkefna. mannaskiptaverkefni_gusti

Alls uppfylltu 55 verkefni skilyrði fyrir þátttöku.  Öll verkefnin 55 voru metin í formati en þau 9 sem hæstu einkunn hlutu verða metin aftur af dómnefnd og verða tvö verkefni valin sem Fyrirmyndarverkefni ársins 2008. Viðurkenningar verða veittar  í tveimur flokkum:


Fólk í grunnstarfsnámi og á vinnumarkaði

Leiðbeinendur og stjórnendur

Gæðaviðurkenningarnar verða veittar í tengslum við ráðstefnuna Svo lengi lærir sem lifir sem skipulögð er af Landskrifstofu Menntaáætlunar ESB í samstarfi við fulltrúa atvinnulífsins.  Ráðstefnan verður haldin á Radisson SAS Hótel Sögu fimmtudaginn 11. desember frá kl. 9-16.

 Á meðfylgjandi mynd er Gústaf Adolf Hjaltason sem fór til Finnlands að kynna sér nýjungar í suðu og fl.


Slóðin mín:

Forsíða

Heim

Forsíða IÐUNNARIDAN.IS

Stjórnborð

Minnka letur Upphaflegt letur Stækka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd