29.4.2009
Auglýsing um sveinspróf
Söðlasmíði, dagsetning ekki ákveðin.
Rennismíði 4., 5., 6. og 7. júní.
Gull- og silfursmíði í lok maí.
Sveinspróf í blikksmíði verður eftir miðjan ágúst að ósk umsækjenda.
Hársnyrtiiðn, skriflegt próf 18. maí og verklegt 16. maí í Iðnskólanum í Hafnarfirði og 6. - 7. júní í Tækniskólanum.
Snyrtifræði, skriflegt 15. maí, verkleg próf 16. maí og 23. eða 24. maí.
Klæðskurði 3. - 9. júní. og kjólasaumi 25. - 30. maí.
Bifvélavirkjun 29. maí, bifreiðasmíði 25. - 26. maí ath. breyttan tíma, og bílamálun 3. - 9. júní.
Veiðafæragerð - netagerð, 4. júní verklegt, 5. júní skriflegt próf.
Sveinspróf í stálsmíði fer fram á Ísafirði og á Akureyri dagana 24.- 26. júní n.k.
Umsóknarfrestur fyrir ofangreind próf var til 1. maí.
Sveinspróf í vélvirkjun og ljósmyndun verða haldin í október.
Umsóknarfrestur fyrir ofangreind próf er til 1. júní.
Sveinspróf í prentsmíð - grafískri miðlun, prentun og bókbandi, verða haldin í maí. Mat á starfsreynslu í fjölmiðlatækni og bókasafnstækni fer fram í maí.
Sveinspróf í húsasmíði verður haldið dagana 15. - 17. maí, í pípulögnum, 4. - 6. og 11. - 13. maí. Sveinspróf í málaraiðn verður haldið 18., 19., 20., 22. og 25. maí og í múrsmíð, 22. og 25. -28. maí.
Umsóknarfrestur ofangreind próf var til 1. apríl.
Með umsókn skal leggja fram afrit af námssamningi, lífeyrissjóðsyfirlit og burtfararskírteini með einkunnum eða staðfestingu skóla á því að nemi muni útskrifast í maí 2009.
Kostnaður próftaka s.s. efniskostnaður, er mismunandi eftir iðngreinum.
Leit
Mynd














