Beint á leiðarkerfi vefsins

30.4.2010

Auglýsing um sveinspróf

Sveinspróf í framreiðslu, bakaraiðn, kjötiðn verða haldin í maí.

Sveinspróf í prentsmíð - grafískri miðlun, prentun og bókbandi, verða haldin í maí. Mat á starfsreynslu í fjölmiðlatækni og bókasafnstækni fer fram í maí - júní.

Sveinspróf í húsasmíði, 14. - 16. maí, pípulögnum, 10. - 12. og 17. - 20 maí, múrsmíð, 27. og 29., 30., 31. maí og 1. júní, prófsýning 2. júní.

Sveinspróf í málaraiðn verða haldin dagana   26., 27., 28. og 31. maí og 1. júní  - hópur 1

7.-11. júní - hópur 2.

Umsóknarfrestur fyrir ofangreind próf var til 1. apríl.

Sveinspróf í stálsmíði, verða haldin 9., 10. og 11. júní.

Sveinspróf í blikksmíði verða haldin Í Borgarholtsskóla sem hér segir:
Undirbúningsfundur og skriflegt próf 31. maí 2010 kl . 16.
Verkleg próf verða 2. og 3. júní og hefjast kl. 8. Prófsýning 4. júní kl. 13.

Sveinspróf í hársnyrtiiðn, skriflegt próf mánudaginn 17. maí kl.17.00. Verkleg próf í Iðnskólanum í Hafnarfirði 29. og 30. maí. Í Tækniskólanum 5. og 6. júní. Þeir sem fara í upptökupróf mæti í Tækniskólann 5. júní.

Snyrtifræði, skriflegt próf 14. maí, verkleg próf 15. - 16. maí og 29. - 30. maí.

Sveinspróf í gull- og silfursmíði verður haldið um mánaðamótin maí-júni. 

Kjólasaumi og klæðskeraiðngreinum í maí - júní.

Bifvélavirkjun, 4. júní, bifreiðasmíði, 27. maí í Borgarholtsskóla og bílamálun, 4. júní í Borgarholtsskóla. 

Sveinspróf í veggfóðrun og dúklögnum verða haldin í maí.

Sveinspróf í húsgagnasmíði verða haldin í maí - júní.

Umsóknarfrestur fyrir ofangreind próf er til 1. maí.

Sveinspróf í vélvirkjun verða í september og ljósmyndun í október.

Umsóknarfrestur fyrir ofangreind próf er til 1. júní.

Nánari tímasetningar verða auglýstar á heimasíðu okkar http://www.idan.is/.

Með umsókn skal leggja fram afrit af námssamningi, lífeyrissjóðsyfirlit og burtfararskírteini með einkunnum eða staðfestingu skóla á því að nemi muni útskrifast í maí 2010.

Kostnaður próftaka s.s. efniskostnaður, er mismunandi eftir iðngreinum.

Umsóknareyðublöð má nálgast á heimasíðu okkar, http://www.idan.is/ og á skrifstofunni.

 


Slóðin mín:

Forsíða

Heim

Forsíða IÐUNNARIDAN.IS

Stjórnborð

Minnka letur Upphaflegt letur Stækka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd